Síða 1 af 2
Uppfærsla?
Sent: Þri 06. Maí 2003 15:38
af dadi
Ég er að hugsa um að kaupa mér nýtt móðurborð og nýjan örgjöja til þess að spila leiki og slíkt.
Það á helst ekki að kosta meira en svona 20000 - 25000 saman.
Hvað leggið þið til að ég fái mér?
Þú ferð fram á lítið...af peningum
Sent: Þri 06. Maí 2003 16:04
af AntonSigur
Þú ferð fram á lítið...af peningum
Mér sýnist þú vera að fara að kaupa þér celeron bitch og móðurborð fyrir hann...
mæli samt með meiri pening til að kaupa, kaupa sér 20K móðurborð, það er jú það sem tölvan byggir á!!
Sent: Þri 06. Maí 2003 16:23
af elv
Ertu að spá í AMD eða Intel
Sent: Þri 06. Maí 2003 16:46
af dadi
ég veit mjög lítið um tölvur og veit ekki muninn á AMD og Intel þannig að ég hef ekki hugmynd um hvort ég er að spá í.
Ég veit samt að núna er ég með 600 Mhz Pentium III
Sent: Þri 06. Maí 2003 16:49
af gumol
dadi skrifaði:ég veit mjög lítið um tölvur og veit ekki muninn á AMD og Intel þannig að ég hef ekki hugmynd um hvort ég er að spá í.
Ég veit samt að núna er ég með 600 Mhz Pentium III
Þá ertu með Intel, og þú ættir að halda þig við það
þ.e. Intel
Intel
Sent: Þri 06. Maí 2003 17:08
af AntonSigur
Intel lætur tölvuna tala!
Sent: Þri 06. Maí 2003 17:38
af elv
AMD
Mobo Shuttle AK32E kostar 8.120 kr
http://leit.is/thjonsla/go.aspx?url=htt ... et&id=2683
ER neðst á síðunni
Intel
Mobo MSI 645 Combo kostar 7.990
Bæði þessi borð taka Sdram og DDR svo þú getur notað minnið úr gömlu vélinni og uppfært það seinna.
Hérna sérðu bestu verðin á örgjörvum
http://vaktin.is
Og áður en einhver fer að bögga með móðurborðin þá eru þetta ódýr og ágætt borð.
Sent: Þri 06. Maí 2003 17:42
af Hannesinn
Intel Celeron skaltu forðast eins og heitann eldinn.
Með lítinn pening í hönd er ekki spurning hvernig örgjörva, þú færð þér AMD. Prufaðu að tala t.d. við Þór hf. og gefa þér tilboð í vél. Þú þarft að kaupa minni með þessu líka og ég veit þú getur fengið fínt Shuttle móðurborð á uþb. 10 þúsund, AMD ca/rúmlega 2GHz á svipað og 512DDR minni á svona 10 þúsund líka, og með þessu ertu kominn með flotta vél.
Sent: Þri 06. Maí 2003 20:39
af dadi
Gumol: Afhverju ætti ég að halda mig við Intel, þeir ódýrustu á þessari síðu kosta ca. 20000, en ef að ég fæ mér nýjan Intel get ég notað hann í gamla móðurborðið mitt, sem nokkurra ára gamalt (svona 4 ára) eða er það bara rugl að gera það?
Sent: Þri 06. Maí 2003 21:10
af Voffinn
því t.d. að p4 2.4ghz er ekki það sama og xp2400 ( sem sagt, xp-inn er ekki 2.4ghz, minnir að hann nái ekki einu sinni uppí 2ghz )
Getur ekki einhver komið með svona tölvu, hvað hver af xpunum er mörg ghz ?
Sent: Þri 06. Maí 2003 21:16
af gumol
Intel örgjörfarnir eru þeir bestu(stöðugustu) sem fást á viðráðanlegu verði, það er bara þannig. AMD er að reina að svindla á kaupendum með því að nefna örgjörfana tölum sem eru hærri en tiftíðni örrans:
XP 2000+ = 1670 MHz
XP 2100+ = 1733 MHz
XP 2200+ = 1800 MHz
XP 2400+ = 2000 MHz
XP 2600+ = 2133 MHz
XP 2700+ = 2167 MHz
XP 2800+ = 2083 MHz
XP 3000+ = 2167 MHz
er þetta rétt hjá mér, ég trúi því ekki
Þetta er svona viðskiptahættir(svindl) sem ég er mjög á mót (kanski útaf þessu sem ég er svona á móti AMD)
Annars veit ég mjög lítið um þetta, þetta er allavega mín skoðun
Sent: Þri 06. Maí 2003 21:19
af Spirou
gumol skrifaði:Intel örgjörfarnir eru þeir bestu(stöðugustu) sem fást á viðráðanlegu verði, það er bara þannig. AMD er að reina að svindla á kaupendum með því að nefna örgjörfana tölum sem eru hærri en tiftíðni örrans:
XP 2000+ = 1670 MHz
XP 2100+ = 1733 MHz
XP 2200+ = 1800 MHz
XP 2400+ = 2000 MHz
Þetta er svona viðskiptahættir(svindl) sem ég er mjög á mót (kanski útaf þessu sem ég er svona á móti AMD)
Annars veit ég mjög lítið um þetta, þetta er allavega mín skoðun
Er það ekki frekar Intel sem er að reyna svindla í þessu máli ? Það eru nú einusinni þeir sem gefa út örgjörva sem keyra á 50% meiri örgjörvatíðni en ná bara 10% meiri afkastagetu? Ástæðan fyrir því að AMD fór að skýra örgjörvana sína svona er til að gefa fólki raunhæfan samanburð á AMD og Intel.
Sent: Þri 06. Maí 2003 21:27
af elv
Nei þú getur ekki notað P4 í gamla moboið þitt
Sent: Þri 06. Maí 2003 22:25
af Voffinn
Spirou : ég verð að viðurkenna að ég ætti ekki að vera rífast um þetta... veit ekkert það mikið um þetta. EN tölurnar tala sínu máli.
Lét upp smá tölvu, bara fyrir okkur einmitt núna, hún verður örugglega ekki þarna lengi.
Sent: Þri 06. Maí 2003 22:42
af Alli
Sent: Þri 06. Maí 2003 22:54
af elv
Þetta er ekki spurning um hvor er betri, í guðsbænu ekkert AMD vs INTEL
og hugsið um að hjálpa drengnum með innkaupinn.
PS ef þið þurfið svona að tjá ykkur um örrana farið þá hingað
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?p=5266#5266
Sent: Þri 06. Maí 2003 22:55
af Voffinn
ertu hálfviti ? þarna er verið að bera saman AMD En ekki AMD vs. INTEL
Þetta er beint að Alla ekki þér elv.
Sent: Þri 06. Maí 2003 23:02
af Alli
lol ég verð sem sagt að ganga út frá því að þú getir ekki lesið Ensku
Snati?
Sent: Þri 06. Maí 2003 23:12
af kiddi
AMD MHz vs. Intel (þá P4 línan) MHz er eins og að bera saman Mílu og Kílómeter, það má í raun segja, að ef við tökum Intel P4 megahertzin og berum við AMD, RISC (Apple) megahertzin þá eru Intel(P4) megahertzin kraftminni en hin... hinsvegar býður P4 uppá breiðari og sterkari minnisbandvíddir en keppinautarnir =) - Gæti t.d. nefnt að persónulega hef ég enginn mun fundið á milli PentiumIII 1GHz og PentiumIV 1.6GHz (PentiumIII voru held ég bestu örgjörvarnir sem hafa komið frá Intel)
Sent: Þri 06. Maí 2003 23:37
af gumol
Ég verð nú að segja það að ég sé það ekki svart á hvítu þarna
Sent: Mið 07. Maí 2003 07:03
af elv
Sé ekki betur en það sé verið að bera saman AMD og INTEL
http://www.deviantpc.com/reviews/barton3000/p4.shtml
Sérð meiri að segja á nafninu á urlinu barton3000/p4
Svo slakaðu á Durgurinn þinn
Sent: Mið 07. Maí 2003 08:35
af MezzUp
guys guys guys, tjill it down
gumol(svara hinum korkinum hérna :), það er ekkert verið að reyna að svindla á kúnnanum. AMD er með meira L1 minni þannig að þeir eru hraðvirkari heldur en P4 örgjörvar með sömu tiftíðni. Þú sérð það á línuritinu hjá kidda að XP3000 er svipaður og P43.06Ghz og XP2800 er svipaður og P42.8Ghz.
Síðan vill ég benda á að þótt að P4 séu aðeins hærri í benchmarkinu þarna þá skulið þið skoða
þetta þar sem að sést að þeir kosta aðeins meira.
Sent: Mið 07. Maí 2003 09:03
af Voffinn
Alli skrifaði:lol ég verð sem sagt að ganga út frá því að þú getir ekki lesið Ensku
Snati?
Bara þótt að þú hafi unnið þessa lotu...
BTW. Ég er ekkert lélegur í ensku.
Sent: Mið 07. Maí 2003 10:51
af gumol
Alli skrifaði:lol ég verð sem sagt að ganga út frá því að þú getir ekki lesið Ensku
Snati?
Útafþví að hann gat ekki lesið AMD vs. Intel?
Lol, þetta þíðir næstum alveg það sama á Íslensku
Sent: Mið 07. Maí 2003 17:57
af dadi
Ég var að spá í að fá mér kannski þetta:
Móðurborð:
http://www.computer.is/vorur/2926 eða
http://www.computer.is/vorur/1889
Málið er að ódýrara móðurborðið tekur líka SDRAM þannig að ég get notað gamla minnið mitt
Örgjövi:
http://www.computer.is/vorur/1839
Kassi:
http://www.computer.is/vorur/2129
Eða þá að fá sér eitthvað af þessum tilboðum:
http://www.computer.is/voruflokkar/37/0/0/1/
Hvað finnst ykkur?