Síða 1 af 1
LCD eða CRT?
Sent: Þri 06. Maí 2003 12:42
af zooxk
Hey, ég ætlaði að spyrja ykkur í þessari skoðanakönnun hvort er betra LCD eða CRT ? (á erfitt með að ákveða hvort ég vill)
Admin: Ég breytti bréfhaus í meira lýsandi nafn. Lesa þetta!
Sent: Þri 06. Maí 2003 12:59
af gumol
CRT er betra eins og er, skýrari mynd
Sent: Þri 06. Maí 2003 13:59
af Spirou
gumol skrifaði:CRT er betra eins og er, skýrari mynd
Ég er ekki sammála, þar sem minn 15"LCD Dell skjár(1400xupplausn) er bara mjög skýr og reyndar bara skýrasti skjár sem ég hef séð(engin bjögun). Aftur á móti hef ég séð LCD skjái sem eru alls ekki góðir, en þeir eru vanalega orðnir frekar gamlir...
Sent: Þri 06. Maí 2003 14:20
af Hannesinn
Fer alveg eftir notkun. Fyrir venjulega skrifstofuvinnu eða þetta standard browse-office-póstur, þá myndi ég taka lcd. Fyrir leikjapakkið er crt betra (minna "trail"). Þó eru lcd skjáirnir að taka hröðum framförum.
Sent: Þri 06. Maí 2003 14:27
af Castrate
Ég ætla að taka undir þetta hjá honum Hannesi fer algjörlega eftir notkun.
Sent: Þri 06. Maí 2003 14:57
af halanegri
Ég hef ekki prófað marga svona benjulega LCD skjái, en efþú ert líka að tala um LCD sjái á ferðatölvum, þá er CRT MIKLU betri, það er bara ótrúlega pirrandi að nota ferðatölvu. Meira að segja þegar hún er í sambandi(meiri birta á skjánum) þá sér marr alltaf bara hluta skjásins eins og hann á að vera, hitt er allt of dimmt, og ekki má gleyma trail-inu.
Sent: Þri 06. Maí 2003 17:05
af gumol
Þetta er ömurlegt bréfsheiti hjá þér, common, gera betri bréfsheiti
Sent: Þri 06. Maí 2003 17:59
af Voffinn
ætlaði einmitt að fara benda honum á það... kommon, þetta er ekki í fyrsta skipti sem við bendum þér á þetta. Hvað með "Munur á lcd & crt" ?
LCD hefur hægara refresh
Sent: Þri 06. Maí 2003 19:33
af AntonSigur
LCD hefir hægara refresh, svo í tölvuleikjum, þar sem þú vilt hafa marga ramma, er miklu betra að nota CRT (túpuskjái)
Hinsvegar eru LCD skjáir miklu nettari!
That's it folks
Sent: Þri 06. Maí 2003 21:11
af Voffinn
ég myndi frekar eyða peningunum mínum í 21" crt skjá (nánar tiltekið triniton skjá
) heldur en að kaupa krabbý lcd skjá....
Sent: Mið 07. Maí 2003 17:50
af valur
Voffinn skrifaði:ég myndi frekar eyða peningunum mínum í 21" crt skjá (nánar tiltekið triniton skjá
) heldur en að kaupa krabbý lcd skjá....
Góður 21" crt skjár kostar alveg 100 þús, frekar myndi eyða aðeins meira og fá mér 19" Dell 1900FP, gjeeeðveikt skarpur
Sent: Mið 07. Maí 2003 18:40
af Voffinn
gæti verið að ég splæsi í skjá í sumar, langar í einn, þarf ekkert að vera stærri en 17", styða í kringum 80~85 í refresh rate, og það er náttúrlega crt skjá með flötum skjá
vitið um einhverja góða (30~40k ?)
Sent: Fim 08. Maí 2003 00:42
af halanegri
Tölvulistinn selur þessa skjái, þeir eru frekar góðir, báðir flatir, styðja háar upplausnir/refresh rate og kosta ekki mikið:
19" Hansol (920D), Samsung Dynaflat, True FLAT 1280x1024@85Hz, 1600x1200@75Hz, 0.25mm 29.900
19" Dell Mainstream FST skjár með flatri túbu (M992) - Midnight Grey, 1600x1200@75Hz, 0,26mm 31.900
Sent: Fim 08. Maí 2003 08:18
af Voffinn
nauhh kúl, flottir skjáir hjá uppáhaldsbúðinni minni
:D:D:D:D
Sent: Fim 08. Maí 2003 15:17
af gumol
Voffinn skrifaði:...náttúrlega crt skjá með flötum skjá...
Þú meinar með flötum skerm
Sent: Fim 08. Maí 2003 15:21
af Voffinn
já, meina það. hefur einhver reynslu af skjáunum sem halanegri benti á ?
Sent: Fim 08. Maí 2003 16:04
af halanegri
Sko, ég keypti mér Sampo 19" flatan á 31.00 seinasta ágúst hjá Tölvulistanum. Hann er eiginlega alveg eins og Hansol skjárinn sem þeir eru að selja núna. Sampo skjárinn reynst mér mjög vel, allavega finnst mér hann svo geðveikt þægilegur að ég hata að vera í tölvunni hjá vini mínum með hans "bogna" skjá.
Það væri heldur ekki svo heimskt hjá þér að kaupa Dell skjáinn, það er nú þekkt merki. Held líka að hann sé svartur(eða silvurlitaður).
Sent: Fim 08. Maí 2003 16:30
af Voffinn
amm ætla að skoða hann bráðum
loksins, þá verður ahnn í stíll við kassan, lyklaborðið og hátalarakerfið og hubinn
Sent: Fim 08. Maí 2003 16:41
af halanegri