Síða 1 af 1

Vandræði með Word.

Sent: Fim 10. Nóv 2016 16:39
af johannig88
Góðan daginn, er í smá vandræðum með Word hjá mér.

Ég reyni að kveikja á því og tölvan spyr mig hvort ég vilji kveikja á því í Safe Mode því það opnaðist ekki seinast. Ég ýti á Yes og þá kemur Microsoft Word has stopped working og svo crashar það.

Mbkv, Jóhann Ingi.

Re: Vandræði með Word.

Sent: Fim 10. Nóv 2016 19:29
af asgeirbjarnason
Þegar ég hef lent í svona á vélum í vinnunni sem kerfisstjóri hef ég venjulega uninstallað Office og sett það inn aftur. Ef þú ert með innsetningarpakkann á reiðum höndum myndi ég gera það. Ef þú ert ekki með innsetningarpakkann tiltækann eru til tól sem hreinsa Word stillingarnar af tölvunni, það virkar oft.

Re: Vandræði með Word.

Sent: Fim 10. Nóv 2016 19:35
af svanur08
Registry Clean gæti virkað.