Síða 1 af 1

Öflug Leikjavél

Sent: Þri 18. Jan 2005 16:04
af ByeRing
Mig langar að fá álit fólks hérna á því hvaða vélbúnað maður á að kaupa sér til að spila nýjustu leikina flawless.

Ég var að spá í að fá mér AMD64 3200+ eða 3500+, 2x 512mb DDR minni og Radeon X800 XT 256mb skjákort.

Hvernig minni mæliði með?
Hvaða móðurborð mæliði með?
Frá hvaða framleiðendum á ég að fá mér X800 XT? (Powercolor, gigabyte etc...)
Hafa harðir diskar einhver áhrif á hraða leikja, ef svo er hvernig HD á ég að fá mér fyrir best performance?
Er mikill munur á 3200+ og 3500+ eða er bara peningasóun að vera fara uppí 3500+?

Ég var að skoða uppfærslu hjá tölvuvirkni sem mér leist ágætlega á.

Hvað segið þið?

Sent: Þri 18. Jan 2005 16:10
af hahallur
AMD 64 3500 s939
Asus A8V Deluxe Rev.2 eða MSI K8N Neo 2 Platinium
Ég er ekki rétti maðurinn til að segja þér hvaða minni þú átt að fá þér, OCz - Kingston - Corsair eru öllu mjög góð.
Bara taka háan hraða á lágum timings.
X800 XT er mjög gott, annars hef ég séð að EAX Asus X800 XT sé að performa best. Held sammt ekki að það sé alvailable hér.
Myndi taka X800XT í start, það var að lækka í verði og er mjög öflugt.

Sent: Þri 18. Jan 2005 16:58
af kristjanm
Taktu móðurborð með nForce 4.

Ef þú ætlar að overclocka er lítill tilgangur í að taka 3500+, ef þú vilt spara peningana þína geturðu overclockað 3200+ örgjörvann þannig að hann verður miklu hraðari en 3500+ án þess að kaupa aukakælingu. En þá þarftu að hafa minni sem ræður við háan klukkuhraða.

Harðir diskar hafa ekki áhrif á hraða í leikjum nema þá kannski hvað þú ert lengi að opna borðin.

Edit: Já og ég mæli líka með því að þú kaupir þér frekar geforce kort þar sem að það er með Shader Model 3.0.

Sent: Þri 18. Jan 2005 18:16
af ByeRing
Kristjanm: Hvaða minni mæliru þá með? Á ég þá s.s. að fá mér 90nm 3200+?

Sent: Þri 18. Jan 2005 18:27
af MuGGz
já keyptu 90nm 3200+

Sent: Þri 18. Jan 2005 19:03
af kristjanm
ByeRing skrifaði:Kristjanm: Hvaða minni mæliru þá með? Á ég þá s.s. að fá mér 90nm 3200+?


Það eru mörg fyrirtæki sem selja góð minni, en ef ég væri að fara að versla núna myndi ég taka Corsair eða OCZ minni sem ræður við DDR400 með 2-2-2-5 timings en getur yfirklukkast alveg upp í DDR500 eða hærra með því að slaka á timings.

En það er bara ég, svona minni eru mjög dýr.

Já, það er skynsamlegra að kaupa 3200+ þar sem að 3500+ er mikið dýrari. Þú ættir líka að ná þeim svipað hátt ef þú yfirklukkar þá.

Sent: Þri 18. Jan 2005 20:04
af Ice master
mér finnst það varla enginn munur á xt eða pro en sumir segja að xt sé betri kauptu alt þetta stuff frá tölvuvirkni þeir bjóda mjög lá verð góð þjónusta og alla pakkan :D

Sent: Þri 18. Jan 2005 21:27
af Cascade
Ef þú villt góða vél..

DFi NF4 SLi
2x6800 Ultra
FX-55
2x512mb G.Skill PC4800

Svo eitthvað í restina

Sent: Þri 18. Jan 2005 21:28
af Cascade
Já.. og taktu 2x74gb WD Raptor diska

Sent: Þri 18. Jan 2005 22:37
af Ice master
það eru snilldar diskar marh :D

Sent: Mið 19. Jan 2005 10:39
af sveik
Cascade skrifaði:Ef þú villt góða vél..

DFi NF4 SLi
2x6800 Ultra
FX-55
2x512mb G.Skill PC4800

Svo eitthvað í restina

Cascade skrifaði:Já.. og taktu 2x74gb WD Raptor diska

og vinna í víkíngalottóinu í kvöld.......Þá myndi maður líklega taka svona vél........

Sent: Mið 19. Jan 2005 12:06
af Cascade
Hann spurði um góða vél og minntist ekkert á budget, svo ég bjóst við að það væri ekki vandamál.

Sent: Mið 19. Jan 2005 14:54
af Ice master
:oops: já hehe