Síða 1 af 1

WTF !!!!!!!! Cpu: 61 C°

Sent: Mán 17. Jan 2005 21:25
af sprayer
stenst þetta ? ég er með tvær 80mm viftur á kassanum, á hliðinni og að aftan, svo er ég með nokkuð góða örgjörva viftu en hvernig stenst þessi gífurlegi hiti ? hitinn í kassanum er 37 C°.

hvað á ég að gera ?

Sent: Mán 17. Jan 2005 22:29
af sveik
Situr heatsinkið rétt á ? líklega það fyrsta sem ég myndi gá að

Sent: Þri 18. Jan 2005 10:51
af ponzer
Hvernig örri er þetta og hvernig scoket ?

Sent: Þri 18. Jan 2005 10:58
af MuGGz
er þetta í idle eða í fullri vinnslu ?

Sent: Þri 18. Jan 2005 13:16
af Mysingur
ef þetta er í fullri vinnslu þá er þetta langt frá því að vera óeðlilegt... en ef þetta er svona idle þá skaltu tékka hvort að heatsinkið er eitthvað skakkt á eða þá hvort þú hefur gleymt að setja hitaleiðandi krem á örrann

Sent: Mið 26. Jan 2005 20:19
af Dust
það þarf að passa að hafa gott lag yfir honum öllu, má ekki klikka á að setja á smá horn því þá hitnar það bara og örrinn verður of heitur......annars er ég með amd64 með Zalman stóru viftuna og hann er mest um 35-40 í fulltri vinnslu (reyndar með viftuna þá í botn snúning :) sem er held ég 2500 snúningar

Sent: Mið 26. Jan 2005 20:35
af hahallur
Þoli ekki þegar fólk gerir WTF 61°C og ekkert meira, er þetta semsagt s775 ?

Sent: Fim 27. Jan 2005 07:34
af kristjanm
Dust skrifaði:það þarf að passa að hafa gott lag yfir honum öllu, má ekki klikka á að setja á smá horn því þá hitnar það bara og örrinn verður of heitur......annars er ég með amd64 með Zalman stóru viftuna og hann er mest um 35-40 í fulltri vinnslu (reyndar með viftuna þá í botn snúning :) sem er held ég 2500 snúningar


Það þarf ekki að setja nema örlítinn dropa á miðjuna á innbyggða heatsinkinu, þar dreifist hitakremið yfir það svæði sem hitinn kemur frá. Getur fundið leiðbeiningar um þetta á heimasíðu hitakremsframleiðanda.

Sent: Fim 27. Jan 2005 11:31
af wICE_man
Já, ekki setja "gott lag" af hitaleiðandi kremi á gjörvan, ég gerði það einu sinni og það lak út um allt, einn dropi á miðjuna er nóg.

Sent: Fim 27. Jan 2005 13:20
af einarsig
hehe fyrst þegar ég setti svona gumms á örrgjörva hjá mér var með sagt að nota ekki of lítið og ekki of mikið... þannig að ég sullaði slatta á... og það var alltof mikið :oops: enda byrjaði viftan að snúast ansi hratt eftir smá tíma :)

Sent: Fim 27. Jan 2005 18:58
af everdark
ég set alltaf á örgjörvann.. og slétti svo úr því með rakvélar eða dúkahnífsblaði.. þarf bara að vera passlegt.. ekki of mikið og ekki of lítið.

Sent: Fim 27. Jan 2005 18:59
af Mencius
Ég hef oft gert þetta sko......hef líka klikkað á að stja á smá horn sem kremið náði ekki og þá hitnaði örrinn upp í 60-70 svo setti ég krem þar sem vantaði og hann fór frá 45-50 í vinnslu

Sent: Fim 27. Jan 2005 19:06
af Dust
Þú þarft líka þá að vita hvað þessi dropi á að vera stór, annars gerist eins og wICE_man var að segja....getur lekið út um allt, og efa hann verður of lítill þessi dropi þá nær það ekki yfir allt......ég hef alltaf gert þetta eins og everdark og það hefur aldrei klikkað....aldrei lekið og aldrei verið of lítið (sem hefur skipt máli)

Sent: Fim 27. Jan 2005 19:54
af kristjanm
Þá eruð þið að sóa kreminu.

Sent: Fim 27. Jan 2005 20:01
af Mencius
já já ok....enda alveg FOK dýrt