Síða 1 af 1

Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Mið 24. Ágú 2016 22:03
af Tóti
Er með eitt svona http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=3194.
Er eitthvað vit í því að bæta annað kort við í SLI ?

Re: Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Mið 24. Ágú 2016 22:27
af HalistaX
Til hvers?

Re: Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Mið 24. Ágú 2016 22:42
af Tóti
Fór aðeins að skoða þetta og fann þessa grein http://proclockers.com/reviews/video-cards/gigabyte-geforce-gtx-1070-g1-gaming-2-way-sli-review?nopaging=1 Vildi bara fá álit ef menn hefðu það.
Þessi grein segir sig sjálf kannski en samt sakar ekki að spyrja sérfræðingana :)

Re: Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Fim 25. Ágú 2016 01:37
af Moldvarpan
SLI er overkill NEMA, þú ætlir að fara spila í 4k upplausn.

Re: Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Fim 25. Ágú 2016 14:07
af Porta
Veltur á skjánum.

Ég er með 2560x1440, 144hz skjá og er að gæla við að fá mér annað 1070 kort.
Mér finnst eitt kort ekki duga.

Re: Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Fim 25. Ágú 2016 17:10
af Hnykill
Ég er með Palit Super jetstream GTX 1070 og er að spila á BenQ XL2411T 144Hz.. ég er bara með alla leiki í Ultra. í 100+ FPS. málið er líka að þú spilar ekkert með AA í hröðum FPS leikjum. þú ert að hreyfa þig of hratt til að vera hugsa um svona hluti. svo ef þú ert með 1080p skjá þá nægir þér 1 GTX 1070 kort. en ef þú ert með 1440p 144Hz skjá. þá aðeins færðu þér annað kort í SLI.

Re: Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Fim 25. Ágú 2016 20:54
af Alfa
Við þetta er að bæta að þó SLi sé voða kúl og öflugt þá hef ég ekki ennþá spilað á SLi eða Crossfire vél þar sem ég verð ekki var við microstuttering að einhverju leiti, allavega í þeim leikjum sem ég spila. Persónulega er ég með 1070 gtx og 1440p (144hz) GSync skjá og myndi ekki fórna smooth gameplay fyrir SLi. En það er auðvitað smekksatriði og fer mikið eftir leikjum.

Re: Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Fim 25. Ágú 2016 22:20
af Tóti
Er með svona skjá http://www.elko.is/elko/is/vorur/utsala_-_Tolvuskjair/AOC_27_tolvuskjar_G2770PF.ecp
þannig að þetta skjákort sem ég er með er fullnægjandi.

Takk fyrir ábendingarnar :)

Re: Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Lau 27. Ágú 2016 04:40
af HalistaX
Finnst það vera peningaeyðsla að fara í 1070 SLI. Ég myndi frekar þá fara í eitt 1080. Bæði ódýrara og ætti að framkalla álíka performance og tvö 1070 í SLI.

Ekki það að ég hafi séð neitt comparison á þessu, þar að segja; 1080 vs. 2x1070. Þannig að ég er bara að tala útum rassgatið á mér og segja mína skoðun :)

Re: Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Lau 27. Ágú 2016 12:11
af darkppl
þegar ég var með 570 Sli í hérna áður fyrr þá gleymdi maður oft að enablea Sli í nvidia controle panelnum.
Sumir leikir fengu verra perf með Sli og sumir framleiðendur styðja ekki einusinni SlI né Crossfire.
og eftir mína reynslu þá mæli ég frekar með að fá eitt gott kort í staðinn fyrir að fara í Sli

Re: Gigabyte GTX1070 G1 GAMING 8GB í SLI

Sent: Lau 27. Ágú 2016 13:08
af Alfa
darkppl skrifaði:þegar ég var með 570 Sli í hérna áður fyrr, þá mæli ég frekar með að fá eitt gott kort í staðinn fyrir að fara í Sli



My point exactly, en svona í smá djóki er ekki komin til að uppfæra undirskriftina þá :)

darkppl skrifaði:I5 2500k|Scythe ninja|Asrock P67 Fatal1ty Professional|8GB G.Skill Sniper 1600Mhz|x2 MSI GTX 570 Twin Frozr III|
Cooler Master 690 II Advanced|1TB Seagate Barracuda|Tacens Radix v 850W|Win 8 x64