Síða 1 af 2

GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Lau 13. Ágú 2016 20:15
af JVJV
Sælir vaktarar...

byrjum á vélinni minni:
P8P67 PRO REV 3.1
Intel(R) Core(TM) i5-2500K CPU @ 3.30GHz
NVIDIA GeForce GTX 660
8GB DDR3
24" Benq G2400W (Frekar þreyttur)

Ég er ekki gríðarlega mikill leikjaspilari en ég tek syrpur og vill hafa hlutina í lagi, Battlefield 1 verður spilaður slatta, þannig að hugmyndin mín var að fara og kaupa mér 1070 og annan skjá sem væri vonandi töluvert mýkri og skýrari en minn.

Getur tölvan mín notað 1070 þannig að ég myndi sjá mikinn mun eftir þessa uppfærslu? Verð ég að fara í örgjörva og móðurborð líka? Aðrar hugmyndir og kannski uppástungur með skjá, 24 eða 27 tommu sem eru góð kaup(best buy dæmi).

Takk

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Lau 13. Ágú 2016 21:27
af mindzick
http://www.tl.is/product/strix-gtx980ti ... ara-abyrgd gtx 980ti strix betra enn gtx1070 g1 kostar ekki nema 69900 kr

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Lau 13. Ágú 2016 21:37
af Emarki
Mátt nefna aflgjafann líka sem þú ert með, gerð og týpu. Hann skiptir mestu máli hvort þú getir tekið nýtt kort.

i5 2500k á stock hraða, 3,3 ghz, mun ekki geta fleygt 1070gtx á mesta hraða. Enn það myndi verða töluverður munur.

Myndir líka performa meira við hver auka 100mhz sem þú gætir overclockað örgjörvann.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Lau 13. Ágú 2016 21:42
af Emarki
980ti gtx er ekki hraðara enn 1070gtx g1 gaming.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Lau 13. Ágú 2016 22:03
af Hnykill
Emarki skrifaði:980ti gtx er ekki hraðara enn 1070gtx g1 gaming.

Nei ekki beint, GTX 1070 er samt bara örfáum prósentum betra. fyrir utan að vera með 8GB minni staðinn fyrir 6GB hjá 980TI. svo notar GTX 1070 150W í staðinn fyrir 250w hjá GTX 980TI. keyrir þar af leiðandi kaldara. en það væri tilgangslaust fyrir GTX 980TI eiganda að fjárfesta í GTX 1070 allavega.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Lau 13. Ágú 2016 23:51
af I-JohnMatrix-I
Emarki skrifaði:980ti gtx er ekki hraðara enn 1070gtx g1 gaming.

Ekki stock gtx980ti nei en 980ti strix vinnur 1070 g1 gaming í nánast öllum benchmarks.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 00:19
af Moldvarpan
Já, fáðu þér 1070, ekki spurning.

Það skiptir engu máli þótt 980Ti hafi tærnar þar sem 1070 hefur hælana, það er líka hægt að fá yfirklukkaðar útgáfur af 1070....

http://thepcenthusiast.com/geforce-gtx-1070-compared-asus-evga-zotac-msi-gigabyte/

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 00:25
af HalistaX
Klárlega 1070, vinur minn. Ættir ekki að sjá eftir því :D

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 00:27
af Emarki
Ég trúi nú ekki svona youtube myndböndum..

Enn jú ég áætla að asus 980ti gtx strix sé nokkuð líkt g1 gaming 1070gtx í benchmörkum.. en nú skaltu athuga að overclocking headroomið á 1070 er miklu meira og kortið tekur mun minni straum og er kaldara enn 980ti strix.

Svo er talað um að 900 serían eigi eftir að taka töluvert högg þegar directx 12 leikir koma, og 1000 serían eigi eftir að performa betur.

Annars er þetta bara að bera saman epli og epli, er það ekki :D

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 00:46
af Macgurka
1070 ekki spurning þetta er frábært kort. Hef ekki séð hærra en 71° og er ekki búinn að snerta vifturnar neitt í MSI afterburner.

Myndi halda 2500k, kaupa bara evo 212 eða sambærilega kælingu og yfirklukka þá er hann ekki svo langt frá þessum nýju í afköstum.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 00:58
af HalistaX
Emarki skrifaði:Ég trúi nú ekki svona youtube myndböndum..

Enn jú ég áætla að asus 980ti gtx strix sé nokkuð líkt g1 gaming 1070gtx í benchmörkum.. en nú skaltu athuga að overclocking headroomið á 1070 er miklu meira og kortið tekur mun minni straum og er kaldara enn 980ti strix.

Svo er talað um að 900 serían eigi eftir að taka töluvert högg þegar directx 12 leikir koma, og 1000 serían eigi eftir að performa betur.

Annars er þetta bara að bera saman epli og epli, er það ekki :D

Epli og aðeins eldra epli held ég hahaha ;)

En klárlega, OP, gerðu tölvuni greiða og hentu einu 1070 í hana. Þá verða held ég allir sáttir! :happy

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 02:02
af I-JohnMatrix-I
Emarki skrifaði:Ég trúi nú ekki svona youtube myndböndum..

Enn jú ég áætla að asus 980ti gtx strix sé nokkuð líkt g1 gaming 1070gtx í benchmörkum.. en nú skaltu athuga að overclocking headroomið á 1070 er miklu meira og kortið tekur mun minni straum og er kaldara enn 980ti strix.

Svo er talað um að 900 serían eigi eftir að taka töluvert högg þegar directx 12 leikir koma, og 1000 serían eigi eftir að performa betur.

Annars er þetta bara að bera saman epli og epli, er það ekki :D

Skiptir ekki máli hverju þú trúir, tölfræðin lýgur ekki. Varðandi Directx12 að þá sigraði strix kortið í Rise of the tomb raider sem er dx12 leikur. non-refference 980ti kortin yfirklukkast alveg fáranlega vel. Ég er ekki að segja að hann eigi að kaupa sér 980ti frekar en það er lágmark að fara með rétt mál. :)

Já, fáðu þér 1070, ekki spurning.

Það skiptir engu máli þótt 980Ti hafi tærnar þar sem 1070 hefur hælana, það er líka hægt að fá yfirklukkaðar útgáfur af 1070....

http://thepcenthusiast.com/geforce-gtx- ... -gigabyte/

Ef þú hefðir horft á myndbandið hefðiru séð að þetta eru bæði yfirklukkaðar útgáfur, s.s. 1070 oc vs 980ti oc.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 04:21
af Moldvarpan
I-JohnMatrix-I skrifaði:

Þetta er 1 video... það er ekkert að marka niðurstöður hjá einum náunga.
Ef þú hefðir svo lesið commentin fyrir neðan, þá var þetta ekki marktækt, hann gerði mistök við gerð video-ins.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 04:24
af Moldvarpan
Og tilhvers ertu að þrasa þetta?

980Ti er ekki betra en 1070 fyrir gamer, sama hvaða 980Ti kort þú velur. Bara svo stupid að vera bera saman non oc kort vs oc kort.

Það eru til tonn af reviews sem segja að 1070 sé betra en 980Ti, en það er eitt video sem segir að það sé öfugt. Og sá náungi viðurkennir að hafa klúðrað videoinu.

Ég ætla í háttinn, heyri í ykkur á morgun :D

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 11:40
af I-JohnMatrix-I
Moldvarpan skrifaði:Og tilhvers ertu að þrasa þetta?

980Ti er ekki betra en 1070 fyrir gamer, sama hvaða 980Ti kort þú velur. Bara svo stupid að vera bera saman non oc kort vs oc kort.

Það eru til tonn af reviews sem segja að 1070 sé betra en 980Ti, en það er eitt video sem segir að það sé öfugt. Og sá náungi viðurkennir að hafa klúðrað videoinu.

Ég ætla í háttinn, heyri í ykkur á morgun :D

Þetta er 1 video... það er ekkert að marka niðurstöður hjá einum náunga.
Ef þú hefðir svo lesið commentin fyrir neðan, þá var þetta ekki marktækt, hann gerði mistök við gerð video-ins.

Ég las commentin, greinilegt að þú hefur verið orðinn eitthvað þreyttur því að í commentinu tekur hann fram að hann hafi lagað mistökin. Þannig að jú þetta er marktægt. Enn aftur ertu að tala um einhvern samanburði á non oc vs. oc, í videoinu er einmitt verið að bera saman OC kort svs OC kort þannig ég veit ekki alveg hvað þú ert að bulla ? Fyrir gamer er það kortið sem fær flest fps í leikjum fyrir peninginn sem er best, hinsvegar ef maður ætlar í VR þá er pascal kortin klárlega málið. Ég er að þrasa þetta því það fer í taugarnar á mér þegar menn tala útum rassgatið á sér og hafa ekkert til að bakka það upp. :)

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 20:04
af JVJV
Emarki skrifaði:Mátt nefna aflgjafann líka sem þú ert með, gerð og týpu. Hann skiptir mestu máli hvort þú getir tekið nýtt kort.

i5 2500k á stock hraða, 3,3 ghz, mun ekki geta fleygt 1070gtx á mesta hraða. Enn það myndi verða töluverður munur.

Myndir líka performa meira við hver auka 100mhz sem þú gætir overclockað örgjörvann.

Ég er með Antec CP-1000 aflgjafa. Semsagt 1000W. Er þetta spurning um rétt tengi líka?

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 20:33
af Moldvarpan
I-JohnMatrix-I skrifaði:Ég er að þrasa þetta því það fer í taugarnar á mér þegar menn tala útum rassgatið á sér og hafa ekkert til að bakka það upp. :)

Það er enginn að tala útum rassgatið á sér.

Ég skal gefa þér það, að það eru til örfá review á netinu, sem benda til þess að 980Ti STRIX sé með nokkur FPS fyrir ofan 1070 GTX.

En til að gagnrýna það, að þá eru mjög takmarkaðar upplýsingar um það. Fáir cherry picked leikir/forrit benchmörkuð notuð, svo þetta gefur ekki neina heildarmynd á 980Ti STRIX vs 1070 GTX.

Það eru til þó nokkrar útgáfur af 1070 GTX sem eru hátt yfirklukkuð og eru þau að performa nánast á pari við 980Ti STRIX, í DX11.

En það sem 1070 GTX á inni er að DX12 support, sem á eftir að komast betur í gagnið á næstu misserum.
Einnig er kortið nýlegt á markaði og pottþétt eftir að koma betri driverar.

Með þetta í huga, þá getur 1070 GTX, hækkað um nokkur FPS í komandi framtíð og tekið þar með frammúr öllum útgáfum af 980Ti.

Ég nenni ekki að fara í qoute æfingar að benda öll review-in.

Og vinsamlega hættum að skemma þennan þráð. OP er að spurja að allt öðru.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 20:36
af Moldvarpan
JVJV skrifaði:
Emarki skrifaði:Mátt nefna aflgjafann líka sem þú ert með, gerð og týpu. Hann skiptir mestu máli hvort þú getir tekið nýtt kort.

i5 2500k á stock hraða, 3,3 ghz, mun ekki geta fleygt 1070gtx á mesta hraða. Enn það myndi verða töluverður munur.

Myndir líka performa meira við hver auka 100mhz sem þú gætir overclockað örgjörvann.

Ég er með Antec CP-1000 aflgjafa. Semsagt 1000W. Er þetta spurning um rétt tengi líka?

Þinn aflgjafi ræður léttilega við 1070 GTX.

1070GTX þarf 30A sem þinn er með á öllum 12v railunum.

Ég myndi ekki hika við að fá mér 1070GTX í þínum sporum.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 20:48
af I-JohnMatrix-I
Moldvarpan skrifaði:
I-JohnMatrix-I skrifaði:Ég er að þrasa þetta því það fer í taugarnar á mér þegar menn tala útum rassgatið á sér og hafa ekkert til að bakka það upp. :)

Það er enginn að tala útum rassgatið á sér.

Ég skal gefa þér það, að það eru til örfá review á netinu, sem benda til þess að 980Ti STRIX sé með nokkur FPS fyrir ofan 1070 GTX.

En til að gagnrýna það, að þá eru mjög takmarkaðar upplýsingar um það. Fáir cherry picked leikir/forrit benchmörkuð notuð, svo þetta gefur ekki neina heildarmynd á 980Ti STRIX vs 1070 GTX.

Það eru til þó nokkrar útgáfur af 1070 GTX sem eru hátt yfirklukkuð og eru þau að performa nánast á pari við 980Ti STRIX, í DX11.

En það sem 1070 GTX á inni er að DX12 support, sem á eftir að komast betur í gagnið á næstu misserum.
Einnig er kortið nýlegt á markaði og pottþétt eftir að koma betri driverar.

Með þetta í huga, þá getur 1070 GTX, hækkað um nokkur FPS í komandi framtíð og tekið þar með frammúr öllum útgáfum af 980Ti.

Ég nenni ekki að fara í qoute æfingar að benda öll review-in.

Og vinsamlega hættum að skemma þennan þráð. OP er að spurja að allt öðru.

Greinilega hefur einhver misskilningur verið í gangi, umræðan snérist allan tíman um 980ti strix kortið vs. 1070 g1 gaming en ekki öll gtx980ti vs öll gtx1070. mindzick bendir á þetta og emarki segir að þetta sé ekki satt hjá honum, þá bendi ég hinsvegar á að mindzick sé að fara með rétt mál og vísa í benchmarks og samanburð á akkúrat þessum tveimur kortum. Eftir það kemur þú inní umræðuna og ferð að bulla um non-oc vs oc og eitthvað sem enginn var að tala um.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 20:56
af Hnykill
Fáðu þér bara þetta og ekkert væl =)

Nvidia GTX 1070 JetStream 8GB
https://kisildalur.is/?p=2&id=3189

BenQ XL2411Z 24" 144Hz
http://kisildalur.is/?p=2&id=2336

Góður næstu árin og átt ekki eftir að sjá eftir þessu :happy

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Sun 14. Ágú 2016 23:03
af JVJV
Hnykill skrifaði:Fáðu þér bara þetta og ekkert væl =)

Nvidia GTX 1070 JetStream 8GB
https://kisildalur.is/?p=2&id=3189

BenQ XL2411Z 24" 144Hz
http://kisildalur.is/?p=2&id=2336

Góður næstu árin og átt ekki eftir að sjá eftir þessu :happy

Hljómar vel... Takk fyrir mig, nú er maður að verða almennilega hyped fyrir BF1, var ekki alveg til í allsherjar uppfærslu.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 11:41
af Alfa
JVJV skrifaði:Sælir vaktarar...

byrjum á vélinni minni:
P8P67 PRO REV 3.1
Intel(R) Core(TM) i5-2500K CPU @ 3.30GHz
NVIDIA GeForce GTX 660
8GB DDR3
24" Benq G2400W (Frekar þreyttur)

Ég er ekki gríðarlega mikill leikjaspilari en ég tek syrpur og vill hafa hlutina í lagi, Battlefield 1 verður spilaður slatta, þannig að hugmyndin mín var að fara og kaupa mér 1070 og annan skjá sem væri vonandi töluvert mýkri og skýrari en minn.

Getur tölvan mín notað 1070 þannig að ég myndi sjá mikinn mun eftir þessa uppfærslu? Verð ég að fara í örgjörva og móðurborð líka? Aðrar hugmyndir og kannski uppástungur með skjá, 24 eða 27 tommu sem eru góð kaup(best buy dæmi).

Takk

Spilað alla BF seríuna og var með 2500k aldrei klukkaðan minna en 4.2Ghz, uppfærði í 4790K og jú það er munur, töluverður munur sérstaklega ef 2500k fór að nálgast 100%, en samt myndi ég mæla með að prufa 2500K og fara í 1070 GTX (sem ég uppfærði í reyndar sjálfur líka seinna). (8gb minni er þó í minna lagi með BF4 og Hardline) myndi skoða hvort þú finndir ekki 8gb í viðbót persónulega.

Sammála þeim sem benti á 2411z BenQ ef þú ætlar í 24" skjá þá er hann bestu kaupin fyrir gaming peningalega séð þrátt fyrir ömurlegar default stillingar, en það er hægt að finna á netinu betri.

Varðandi 980ti debate og 1070 gtx þá er lítill munur á þeim í leiknum sem umræðir BF4 t.d. er innan við 10% svo taktu bara það sem er ódýrara ef þér er sama um rafmagnsnotkun.

Hér er græna línan msi 1070 gtx (134fps) og bláa Founders Ed 1070 Gtx.)129fps) 980ti er þarna fyrir neðan en þetta er reference kort.(113fps) MSI 980ti Ganing t.d. er nánast með sömu ramma í BF4 og 1070 GTX. eða (129fps) Séð það hér https://www.techpowerup.com/reviews/MSI ... ng/10.html

Mynd

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 14:17
af Graven
Hnykill skrifaði:Fáðu þér bara þetta og ekkert væl =)

Nvidia GTX 1070 JetStream 8GB
https://kisildalur.is/?p=2&id=3189

BenQ XL2411Z 24" 144Hz
http://kisildalur.is/?p=2&id=2336

Góður næstu árin og átt ekki eftir að sjá eftir þessu :happy

HAHA:

https://kisildalur.is/?p=2&id=3189

Stærð þess minnis sem skjákortið hefur aðgang að. Þetta minni er venjulega staðsett á skjákortinu sjálfur, en þó nota sum ódýrari skjákort sér vinnsluminni tölvunar og er það þá tekið fram innan sviga.
Mikill misskilningur er að minnisstærðin gefi til kynna afköst skjákorta og er hún oftar en ekki miklu meiri en þörf er fyrir. Það er þó yfirleitt nokkur munur á afköstum 64MB korts og 128MB korts sömu gerðar, sjaldnar finnst munur á 128MB og 256MB kortum og aðeins er í undantekningar tilfellum einhver munur á 256MB kortum og 512MB kortum af sömu tegund.

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 18:06
af Moldvarpan
Hvað í ósköpunum ertu að tala um?

Re: GTX 1070 og nýr skjár nóg?

Sent: Mán 15. Ágú 2016 18:35
af Hnykill
Graven skrifaði:
Hnykill skrifaði:Fáðu þér bara þetta og ekkert væl =)

Nvidia GTX 1070 JetStream 8GB
https://kisildalur.is/?p=2&id=3189

BenQ XL2411Z 24" 144Hz
http://kisildalur.is/?p=2&id=2336

Góður næstu árin og átt ekki eftir að sjá eftir þessu :happy

HAHA:

https://kisildalur.is/?p=2&id=3189

Stærð þess minnis sem skjákortið hefur aðgang að. Þetta minni er venjulega staðsett á skjákortinu sjálfur, en þó nota sum ódýrari skjákort sér vinnsluminni tölvunar og er það þá tekið fram innan sviga.
Mikill misskilningur er að minnisstærðin gefi til kynna afköst skjákorta og er hún oftar en ekki miklu meiri en þörf er fyrir. Það er þó yfirleitt nokkur munur á afköstum 64MB korts og 128MB korts sömu gerðar, sjaldnar finnst munur á 128MB og 256MB kortum og aðeins er í undantekningar tilfellum einhver munur á 256MB kortum og 512MB kortum af sömu tegund.

Gamli. minnishraði skiptir máli og einnig hvort það er GDDR3 eða GDDR5. ef þú ert að nota háa upplausn eins og 4K þá er gott að hafa 8GB t.d frekar en 4GB. þetta quote sem þú ert að paste-a frá Kísildal er svona frekar léleg og gömul útskýring. þar er verið að tala um mun á 128MB og 256MB kortum sem ég hef bara ekki séð í 10 ár eða svo.

en þetta HAHA þitt ? :happy má ég þá biðja þig snillinginn að mæla með öðru korti fyrir strákinn og leyfðu mér að heyra rök þín fyrir því.
hlakka til að heyra frá þér ;)