Síða 1 af 2
Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Mið 06. Júl 2016 21:29
af snakkop
Er ekkert nýtt að koma frá þeim samband við móðurborð og örgjörva þér eru svo langt á eftir
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Mið 06. Júl 2016 21:52
af GuðjónR
Varstu búinn að sjá þennan?
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Mið 06. Júl 2016 21:55
af Nördaklessa
GuðjónR skrifaði:Varstu búinn að sjá þennan?
Hahaha :-P
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Mið 06. Júl 2016 21:58
af EOS
GuðjónR skrifaði:Varstu búinn að sjá þennan?
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Mið 06. Júl 2016 22:05
af EOS
Nei ok..sorry memmi..
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Mið 06. Júl 2016 22:53
af asgeirbjarnason
Hefurðu fylgst eitthvað með Zen örgjörvanum sem AMD eru að fara að setja á markaðinn seinna á árinu eða í byrjun 2017, snakkop? Fyrsta nýja micro-architectureið frá AMD síðan fyrstu Bulldozer kjarnarnir komu á markað 2011. Bulldozer serían var talsvert stór feill hjá AMD og það er ekki beinlínis hlaupið að þvi að skipta um micro-architecture þegar búið er að leggja í R&D vinnuna fyrir það, svo AMD voru nokkurnveginn fastir á rangri braut í 5 ár. Margir vona að Zen muni veita Intel einhvern vott af samkeppni í fyrsta skipti í 5 ár.
Það er margt sem bendir til þess að Zen verði áhugaverður. AMD náðu að fá hönnuð K8 örgjörvans, fyrsta x86_64 örgjörvans, til að snúa aftur til AMD til að leiða hönnun örgjörvans. Zen verður heldur ekki með þessa furðulega floating point útfærslu þar sem tveir integer kjarnar deila einum floating point kjarna. Zen mun líka verða aftur með hyper-threading, ólíkt Bulldozer kjörnunum. Instruction Per Clock á síðan að vera miklu hærra en í Bulldozer, nokkurnveginn á pari við Haswell eða Broadwell.
Því miður er þó líklegt að þetta sé of seint; AMD er í mjög slæmri peningastöðu og ekki með góðan orðstír, svo jafnvel þótt Zen væri jafn góður og þeir eru að láta í veðri vaka þá gæti AMD farið á hausinn. Zen og Polaris/Vega eru líklega síðustu forvöð AMD til að vera keppinautur við Intel og Nvidia. Sem er frekar skítt, því einokunarstöður sjúga.
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Mið 06. Júl 2016 23:12
af Macgurka
asgeirbjarnason skrifaði:Hefurðu fylgst eitthvað með Zen örgjörvanum sem AMD eru að fara að setja á markaðinn seinna á árinu eða í byrjun 2017, snakkop? Fyrsta nýja micro-architectureið frá AMD síðan fyrstu Bulldozer kjarnarnir komu á markað 2011. Bulldozer serían var talsvert stór feill hjá AMD og það er ekki beinlínis hlaupið að þvi að skipta um micro-architecture þegar búið er að leggja í R&D vinnuna fyrir það, svo AMD voru nokkurnveginn fastir á rangri braut í 5 ár. Margir vona að Zen muni veita Intel einhvern vott af samkeppni í fyrsta skipti í 5 ár.
Það er margt sem bendir til þess að Zen verði áhugaverður. AMD náðu að fá hönnuð K8 örgjörvans, fyrsta x86_64 örgjörvans, til að snúa aftur til AMD til að leiða hönnun örgjörvans. Zen verður heldur ekki með þessa furðulega floating point útfærslu þar sem tveir integer kjarnar deila einum floating point kjarna. Zen mun líka verða aftur með hyper-threading, ólíkt Bulldozer kjörnunum. Instruction Per Clock á síðan að vera miklu hærra en í Bulldozer, nokkurnveginn á pari við Haswell eða Broadwell.
Því miður er þó líklegt að þetta sé of seint; AMD er í mjög slæmri peningastöðu og ekki með góðan orðstír, svo jafnvel þótt Zen væri jafn góður og þeir eru að láta í veðri vaka þá gæti AMD farið á hausinn. Zen og Polaris/Vega eru líklega síðustu forvöð AMD til að vera keppinautur við Intel og Nvidia. Sem er frekar skítt, því einokunarstöður sjúga.
Vonum að Jim keller hafi náð að wörka eitthvað magic með Zen því við þurfum samkeppni eins og þú segjir. Annars eigum við eftir að sjá meira af broadwell-E þar sem eina sem hækkar er verðið á vörunni.
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 07. Júl 2016 00:37
af GuðjónR
asgeirbjarnason skrifaði: Margir vona að Zen muni veita Intel einhvern vott af samkeppni í fyrsta skipti í 5 ár.
Heftur AMD einhverntíman verið samkeppni fyrir Intel? Eru þeir ekki að höfða á öðruvísi markhóp með budged örgjörvum?
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 07. Júl 2016 01:05
af asgeirbjarnason
GuðjónR skrifaði:asgeirbjarnason skrifaði: Margir vona að Zen muni veita Intel einhvern vott af samkeppni í fyrsta skipti í 5 ár.
Heftur AMD einhverntíman verið samkeppni fyrir Intel? Eru þeir ekki að höfða á öðruvísi markhóp með budged örgjörvum?
Það hafa verið að minnsta kosti tvö tímabil þar sem AMD veitti harða samkeppni; Þegar K6 kom út annarsvegar og síðan þegar K8 kom út og var stór þáttur í því að Itanium komst aldrei á flug.
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 07. Júl 2016 01:11
af asgeirbjarnason
Síðan er spurning hvort Apple og/eða ARM markaðurinn teljist ekki samkeppni við Intel. Sein viðbrögð Intel í snjallsímaheiminum hefur meinað þeim aðgangi að einum stærsta og arðbærasta skika heimsins af örgjörvum og Intel hefur í fyrsta skipti þurft að bregðast við með uppsögnum af stórum parti starfsmanna sinna. Intel mun segja upp um 10-15% starfsmanna sinna næstu árin. A-línan frá Apple er síðan að standa sig miklu betur en nokkuð sem Intel gaf út í þeim parti iðnaðarins.
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 07. Júl 2016 02:36
af snakkop
GuðjónR skrifaði:Varstu búinn að sjá þennan?
Já að sjálfsögðu var svona í fyrstu tölvuna minni
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 07. Júl 2016 21:10
af jonsig
Ég er búinn að festa tíma á október til að kaupa nýja zen core tölvu
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Lau 27. Ágú 2016 14:14
af jonsig
Já hvenar kemur hann ! Það var búið að lofa að hann kæmi Q4
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Lau 27. Ágú 2016 14:20
af Henjo
jonsig skrifaði:Já hvenar kemur hann ! Það var búið að lofa að hann kæmi Q4
Er ekki búið að seinka þeim þangað til byrjun 2017?
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Lau 27. Ágú 2016 14:22
af jonsig
NOOOOO
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Lau 01. Okt 2016 12:37
af jonsig
Er zen ekki að drullast í gang ? vantar nýja tölvu !
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Lau 01. Okt 2016 15:21
af upg8
Ætli það hafi ekki tafið aðeins fyrir AMD að Jim Keller fór til Tesla?
Hann kom aftur til AMD 2012 árið til að vinna að Zen og K12(ARM) og hætti aftur í lok 2015
Hann er tengdur við nokkur af blómaskeiðum AMD t.d. Athlon og er meðhöfundur x86-64
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 27. Okt 2016 22:03
af jonsig
bump
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 27. Okt 2016 22:17
af Frost
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 27. Okt 2016 22:22
af jonsig
Ég bjóst við að uppfæra núna í október, en nú er þetta komið frammá Q1
. samt spennandi tímar frammundan.
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 27. Okt 2016 22:23
af Lallistori
Bíð spenntur eftir Zen! #TeamRed
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 27. Okt 2016 23:02
af Minuz1
Þetta er samt rosa fínt, cpu's endast manni nánast líftíma kísilsins núna, í staðinn fyrir að þurfa að uppfæra á 2 ára fresti.
Það eru bara skjákortin og tengibúnaðurinn sem maður þarf að uppfæra.
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fim 27. Okt 2016 23:22
af jonsig
þetta voru samt góðir tímar þegar maður þurfti að uppfæra helst á 6mánaða fresti. Kannski dýrt en spennandi hobbý.
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fös 16. Des 2016 20:23
af jonsig
Er ég eini spenntur fyrir ZEn?
Re: Hvað er að frétta af amd ?
Sent: Fös 16. Des 2016 20:25
af svanur08
- FMWCCCOHCAXG9TR.MEDIUM.jpg (23.12 KiB) Skoðað 5402 sinnum