Síða 1 af 1

Nvidia 1080 GTX verð?

Sent: Lau 04. Jún 2016 19:28
af Gemini
Hvernig er það er þetta verð sem er verið að bjóða upp á ekki að fara að lækka verulega á næstu 1-2 mánuðum. Nvidia talaði um 600$ og svo er þetta á 130k+ hérna heima.

Re: Nvidia 1080 GTX verð?

Sent: Lau 04. Jún 2016 19:37
af jonsigmar
114.000 í Noregi :(

Re: Nvidia 1080 GTX verð?

Sent: Lau 04. Jún 2016 20:49
af htmlrulezd000d
líka skrítið að custume 1080 eru dýrari hérna heima þegar þau eru ódýrari en founders edition

Re: Nvidia 1080 GTX verð?

Sent: Lau 04. Jún 2016 23:11
af billythemule
Er einhver ástæða til þess að kaupa ekki beint frá útlöndum? Ég kíkti á Overclockers.co.uk sem senda til Íslands og mér sýnist verðin þar einfaldlega vera betri heldur en er í boði hérna heima. PNY Geforce 1080 Founders Edition fæst á rétt rúmlega 121 þúsund kr á móti 135 þúsund heima. Auk þess geturðu valið um fleiri tegundir og jafnvel ódýrari týpur. Ég fann eitt á 108 þúsund. Er ekki örugglega rétt hjá mér að virðisaukaskatturinn er 24% og eina aukagjaldið er tollafgreiðslugjald sem er eitthvað klink?

Re: Nvidia 1080 GTX verð?

Sent: Lau 04. Jún 2016 23:15
af Xovius
Eins og þeir í att.is sögðu mér þegar ég fór og spurði þá um þetta er þetta bara supply/demand. Kortin lækka í verði strax og fyrstu nokkrar sendingarnar klárast. Þú borgar slatta aukalega fyrir að fá þetta núna, ef þú ert til í að bíða (eins og þú þarft að gera ef þú pantar þetta erlendis frá) þá geturðu fengið þetta ódýrara. Annars er helsti kosturinn við að kaupa heima ábyrgðin.
Það sem mér finnst hinsvegar furðulegast við verðlagninguna hérna heima er að aftermarket kortin eru dýrari en founder's edition ólíkt því sem gerist allstaðar annarsstaðar í heiminum. Almennt dýrt að versla þetta hérna heima, veit ekki hvort það er bara álagningin eða hvað en maður getur alltaf sparað á því að versla erlendis.

Re: Nvidia 1080 GTX verð?

Sent: Sun 05. Jún 2016 16:11
af Gemini
Já takk fyrir þessi svör. Held ég slappi aðeins af. Ekkert sem ég þarf kortið í asap er með 960 núna sem svona dugar.

Re: Nvidia 1080 GTX verð?

Sent: Sun 05. Jún 2016 17:55
af Moldvarpan
nVidia gerði þetta viljandi, þeir settu bara örfá kort í verslanir sem slegist var um.

En það ætti að koma nýjar sendingar af þessum kortum í þessari viku.

http://www.newegg.com/Product/ProductList.aspx?Submit=ENE&IsNodeId=1&N=100007709%20601201888

Ég kaupi það væntanlega frá newegg, en læt ekki senda beint til Íslands. Ég er svo heppinn að eiga systir sem flugfreyju \:D/

Re: Nvidia 1080 GTX verð?

Sent: Mán 06. Jún 2016 17:40
af billythemule
Hvað finnst ykkur um þetta kort hérna?
https://www.overclockers.co.uk/kfa2-gef ... 87-kf.html

Spurningin er bara hvort viftan endist eitthvað. Mér er sama þótt það yfirklukkist ekki mikið eða líti ekki eitthvað flott út. GTX 460 kortið mitt á sínum tíma var með einhverri sleeve bearing viftu og á endanum hætti hún að virka (kortið virkaði þó áfram og ég teipaði kassaviftu við það sem gaf mér lægri hitatölur, ótrúlegt en satt).

Re: Nvidia 1080 GTX verð?

Sent: Mán 06. Jún 2016 17:53
af worghal
billythemule skrifaði:Hvað finnst ykkur um þetta kort hérna?

Mætti alveg sleppa þessum trúð á kortinu.

Re: Nvidia 1080 GTX verð?

Sent: Mán 06. Jún 2016 18:20
af mercury
billythemule skrifaði:Hvað finnst ykkur um þetta kort hérna?
https://www.overclockers.co.uk/kfa2-gef ... 87-kf.html

Spurningin er bara hvort viftan endist eitthvað. Mér er sama þótt það yfirklukkist ekki mikið eða líti ekki eitthvað flott út. GTX 460 kortið mitt á sínum tíma var með einhverri sleeve bearing viftu og á endanum hætti hún að virka (kortið virkaði þó áfram og ég teipaði kassaviftu við það sem gaf mér lægri hitatölur, ótrúlegt en satt).

myndi klárlega borga örfáum þúsurum meira fyrir "flottara" kort.