Síða 1 af 1
Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 01:38
af Drilli
Sæl verið þið,
ég hef undanfarin tvö árin verið að keyra þessa vél með góðu móti:
CPU: i5-4670K 3.4GHz / OC@4.2GHz
CPUC: Corsair H80i
GPU: MSI~GTX 970 GAMING 4GB/OC
MOB: MSI~Z87-G45 Gaming
PSU: Corsair GS700
RAM: Corsair Vengeance 16GB (4x4GB) DDR3 1600Mhz
HDD: 1TB Samsung 2.5
SDDs: Samsung 840 EVO 120GB and 500GB
CPC: C.M.Storm Stryker/White
Gaming Monitor: BenQ XL2411Z 24"
Second Monitor: BenQ GL2240M 21.5"
KBD: Logitech G710+ Mechanical Gaming KBD
Mouse: Logitech G700
HS: Logitech G930 Wireless Gaming HS
Cam: Microsoft LifeCam CinemaÍ dag fékk ég mér auka skjákort af sömu tegund og er hér fyrir ofan, en datt í hug að kannski sé PSU-aflið mitt ekki nóg til að keyra vélina?
Vaknuðu þá í kjölfarið upp nokkrar spurningar sem ég hef ekki svarið við, og datt í hug að leita hingað.
Get ég keyrt vélina með góðu móti með 700w aflgjafa? Er í lagi að 'prófa' það? Er einhver hætta á að ég skemmi eitthvað við það að keyra hana á lágu afli? Og, ef ég kaupi mér nýjan sterkari aflgjafa, er þá 1000w eitthvað sem ég ætti að vera að líta á?
- Fyrir fram þakkir: Andri
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 02:27
af demaNtur
Þú runnar þetta setup fínt á 700w, ég keyrði 2x 770gtx í SLi á corsair 700W aflgjafa og það var ekki til neinna vandræða
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 15:27
af Drilli
Er það samt? Þetta eru náttúrulega 2 4GB kort með stórum kassa, hörðum diskum og 2 skjáum.
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 17:03
af I-JohnMatrix-I
Kortin þín taka ekki nema 213w hver við algjörar maximum aðstæður og skjáirnir eru náttúrulega ekki poweraðir af power supply-inu. Ættir ekki að þurfa hafa neina áhyggjur með 700w aflgjafa.
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 17:19
af Gunnar
þar sem þú ert með corsair þá ertu safe. ef þetta væri eh noname brand væri það kannski á mörkunum. og aflgjafinn ætti að passa uppá íhlutina, einmitt útaf þetta er corsair.
Over-voltage, under-voltage, over-current, and short circuit protection provide maximum safety for your critical system components
High-quality capacitors provide uncompromised performance and reliability
þetta stendur i Technical Specifications
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 18:37
af dragonis
Þetta er nú engin eðal typa af Corsair PSU þarftu ekki 30amp per kortá 12v railinu? GS'inn er 56amp á 12v.
Ég myndi ekki keyra þetta á þessum aflgjafa tala nú ekki um ef þú vilt yfirklukka aðeins.
En til hamingju með kortið þetta er þrusu setup
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 19:40
af mind
Ég fæ þetta út í kringum max 600W í load, plús smádótið.
Ert farinn að nálgast 90% usage sem er ágætis regla vera ekki að fara yfir. Ert samt með Corsair GS svo ég hefði ekki einusinni pælt í þessu, hefði bara stungið kortinu í og byrjað að nota
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 20:14
af Emarki
Nákvæmlega rétt hjá dragonis.
Þú þarft að vita hvað aflgjafinn þolir á 12v railinu, hversu mörg amper, og hvað kortin eru að taka mikið amper per stk það er það sem skiptir máli ekki hversu mörg Wött hann er, ég var einu sinni með eldri 700w aflgjafa og hélt að ég gæti uppfært skjákortið enn amper á 12v railinu var ekki nóg, þannig ég þurfti nýjan aflgjafa.
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 21:09
af Drilli
Er í lagi að stinga þessu inn og 'prófa' að (það er rangt að tala um að rönna, ég lofa að vanda málfar mitt annars verð ég bannaður, lengi lifi ritskoðun!) tölvuna? Eða er það áhætta?
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 21:12
af Drilli
Whut? xD
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 21:22
af dragonis
Um að gera að prófa, það sem ég hefði átt að segja að ég myndi ekki keyra þetta til lengdar á þessum PSU
Þú keyrir þetta á þessum PSU engin spurning en þetta er í það minnsta finnst mer.
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 22:24
af Xovius
Ég keyrði 2x970, vatnskælingu (helling af viftum og pumpa), corei7 3930k (hexacore top end örgjörvi), 4 diska (3xhdd, 2xssd) og fleira þar sem örgjörvi og bæði skjákort voru yfirklukkuð á 850w coolermaster aflgjafa. Var aldrei neitt vesen. Um að gera að prófa þetta, ætti sennilega að virka þar sem þetta er gott powersupply þó það sé ekkert svakalega stórt. Held að þetta ætti alveg að virka.
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 22:37
af Jon1
ég er að keyra mitt settup (undirskrift) á cx 750m gjörvinn og kortin eru klukkuð
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Mán 04. Apr 2016 23:08
af Varg
Ég mældi tölvuna sem ég er með í undirskriftini hjá mér nema með gtx 770 oc og ég fékk um 350W undir álagi sem er innan við 50% níting á corsair cx750m sem er 62A á 12V railinu. Ég hef ekki enn nennt að mæla hana aftur eftir að ég uppfærði í gtx 970.
Re: Hversu mikið afl þarf ég?
Sent: Þri 05. Apr 2016 05:13
af Drilli
Takk kærlega fyrir ráðleggingarnar! Ég fer í þetta í dag
aftur, takk fyrir!