Síða 1 af 1

vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 01:36
af OddBall
Hvernig virkar þessi samsetning á leikjavél?:

MSI Z170A-G45 Gaming 1151 móðurborð

Intel Skylake i5 6600 processor

EVGA GeForce GTX 950

G.Skill Ripjaws V series.
RAM DDR4 16GB (2x8GB) 2400

vil geta spilað EVE og nýjustu leikina (Mass Effect 4...)
móðurborðið tekur i7 þegar ég hef efni á að upgrade-a

Eru flöskuhálsar?
overkill?
eitthvað betra en það sem er þarna?

ég kann ekkert á yfirklukkun svo að það þarf ekki að vera í myndinni

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 01:56
af Steinman
Ef þú getur eitt aðeins meira þá myndi ég taka 6600K. Þó þú yfirklukkir ekki núna þá langar þig kannski að geta það í framtíðinni? Það er tiltörlega auðvellt á skylake og góðar leiðbeiningar til á vefnum og youtube.
Ég er með 6600K og gerði mína fyrstu yfirklukkun á þessum örgjörva. Gekk eins og í sögu og keyri hann núna í 4.6Ghz með AIO vatnskælingu. Veit ekki hveru hátt þú nærð honum með loftkælingu, en þetta er þess virði að kynna sér.

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 02:04
af OddBall
Já þetta er einmitt eitt af því sem ég hef verið að spá í, takk fyrir þetta

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 04:56
af Swanmark
Villt eyða aðeins meira í skjákort fyrir leikjavél, 960 eða jafnvel 970. Leikir eru farnir að vera með higher resolution textures svo að þeir nota meira VRAM, held að þú fáir ekki meira en 2GB í 960 og undir.

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 07:48
af Njall_L
Ef þú ætlar ekki að yfirklukka þarft þú ekki svona flott móðurborð með Z170 chipsetti. Myndi frekar skoða borð með H170 og nýta peninginn sem þú sparar þér í betra skjákort.

Hinsvegar ef þú villt vera nokkuð future proof þá myndirðu fara í móðurborðið sem þú talar um, i5 6600k og betra skjákort(GTX960 eða 970). Síðan gætirðu lært á yfirklukkun og þá ættirðu ekki að þurfa að uppfæra í i7 í framtíðinni.

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 08:45
af 2ndSky
Ég myndi fá mér 960 GTX með 4gb minni

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 11:48
af worghal
Þú í rauninni þarft ekki i7 og væri því betri kostur að uppfæra frekar skjákortið svo ætti 6600 að vera nóg fyrir þig ef þú ætlar ekki að overclocka, 3.9Ghz í boost er nógu gott. Þá geturu frekar fengið þér betra skjákort :)

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 12:02
af mind
Það er soddan misræmi í hlutunum ef markmiðið er að nota vélina í leikjaspilun.

Þarft ekki öflugri örgjörva en i5
Þarft ekki meira en 8GB minni
Þarft ekki Z170 borð nema ætlir SLI síðar, svo ódýrara fara H170

Ég myndi skafa þennan pening af og sökkva honum í skjákort til að ná því upp í ásættanleg afköst.

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 18:21
af worghal
mind skrifaði:Það er soddan misræmi í hlutunum ef markmiðið er að nota vélina í leikjaspilun.

Þarft ekki öflugri örgjörva en i5
Þarft ekki meira en 8GB minni
Þarft ekki Z170 borð nema ætlir SLI síðar, svo ódýrara fara H170

Ég myndi skafa þennan pening af og sökkva honum í skjákort til að ná því upp í ásættanleg afköst.

er ekki alveg sammála með minnið. 8GB er að verða of lítið í dag.

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 18:53
af mind
worghal skrifaði:

Hvað tölvuleiki varðar er afkastamunurinn á 16GB vs 8GB vinnsluminni gott sem enginn, búið að athuga þetta nokkuð oft.

http://www.techspot.com/article/1043-8gb-vs-16gb-ram/

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 18. Feb 2016 19:18
af worghal
mind skrifaði:

Það er ekki það sem ég meina. Þú keyrir ekki einn hlut í einu. Ef hann er eins og ég. Með 100 chrome tabs og allskonar forrit í gangi og svo leik. Þá er minnið að fara að klárast. Ég dauðsé eftir því að hafa ekki tekið mér 16gb minni en fer bráðum að bæta við.

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fös 19. Feb 2016 11:08
af Hawkuro
mind skrifaði:
worghal skrifaði:
mind skrifaði:Það er soddan misræmi í hlutunum ef markmiðið er að nota vélina í leikjaspilun.

Þarft ekki öflugri örgjörva en i5
Þarft ekki meira en 8GB minni
Þarft ekki Z170 borð nema ætlir SLI síðar, svo ódýrara fara H170

Ég myndi skafa þennan pening af og sökkva honum í skjákort til að ná því upp í ásættanleg afköst.

er ekki alveg sammála með minnið. 8GB er að verða of lítið í dag.

Hvað tölvuleiki varðar er afkastamunurinn á 16GB vs 8GB vinnsluminni gott sem enginn, búið að athuga þetta nokkuð oft.

http://www.techspot.com/article/1043-8gb-vs-16gb-ram/

Orðið á götunni er að Just Cause 3 keyri ansi illa með bara 8GB RAM, þ.a. ef þú villt future-proofa viltu fara í AMK 12 GB.

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fös 19. Feb 2016 11:16
af nidur
Persónulega finnst mér 16 gb lágmark í mína tölvu og þá tveir 8gb kubbar ekki 4x4gb

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fös 19. Feb 2016 23:04
af OddBall
mind skrifaði:Það er soddan misræmi í hlutunum ef markmiðið er að nota vélina í leikjaspilun.

Þarft ekki öflugri örgjörva en i5
Þarft ekki meira en 8GB minni
Þarft ekki Z170 borð nema ætlir SLI síðar, svo ódýrara fara H170

Ég myndi skafa þennan pening af og sökkva honum í skjákort til að ná því upp í ásættanleg afköst.

mig grunar að ég þurfi i7 til að spila EVE online án þess að verða mér til skammar...

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fös 19. Feb 2016 23:09
af nidur
Eve er meira GPU en CPU en það er nátturulega hægt að stilla hann í frekar temmilegt quality

Nema að þú sért að keyra marga accounta í einu þá er cpu nr1. :)

Re: vantar álit á samsetningu

Sent: Fim 25. Feb 2016 19:14
af baldurgauti
Ég myndi ekki kaupa þetta móðurborð ef þú ætlar að kaupa non-k örgjörva, og ég myndi miklu frekar fara í gtx 960 eða 970 því 950 er mögulega mesta budget kort sem þú færð í dag, þannig ef þú ætlar að fara í þennann örgjörva (sem er skiljanlegt ef þú ætlar ekki að overclocka) þá myndi ég eyða minna í móðurborðið og meira í skjákortið, fara þessvegna bara í eitthvað m-atx ef þú ætlar bara að keyra eitt skjákort á vélinni