Síða 1 af 1
Hvar kaupi ég skjákort sem höndlar 4 skjái í einu
Sent: Lau 13. Feb 2016 19:07
af tothewolves
Heil og sæl,
Það er kominn tími fyrir mig að uppfæra skjákortið mitt þar sem það höndlar bara tvo skjái í einu.
Ég er í vinnu þar sem ég þarf 4 skjái til að nota samtímis. Var að velta fyrir mig hvaða skjákort væri gott fyrir mig að fjárfesta í.
Ég er ekki að leita afhverju 200 þúsund króna skjákorti. Bara eitthvað ágætt kort sem gæti höndlað 4 mónitóra.
Takk kærlega fyrir tíman ykkar.
Re: Hvar kaupi ég skjákort sem höndlar 4 skjái í einu
Sent: Lau 13. Feb 2016 22:57
af baldurgauti
Re: Hvar kaupi ég skjákort sem höndlar 4 skjái í einu
Sent: Þri 03. Maí 2016 19:10
af Kjartan G
Ég er að nota R9 390x og það kemur með 3x displayport, 1x HDMI tengi og 1x DVI. Kostar um 80 þús hjá Kísildal. Myndi virka fínt fyrir þig en þú gætir eflaust fengið eitthvað ódýrara en þá yrðu gæðin minni.
Re: Hvar kaupi ég skjákort sem höndlar 4 skjái í einu
Sent: Þri 03. Maí 2016 21:00
af andribolla
Sjálfur er ég að nota Fartölvu í vinnuni hjá mér sem er bara með stuðning fyrir 2 skjái, ég keipti mér svona usb 3 yfir í DVI/HDMI og ég tek ekki eftir neinum mun á milli skjáa hjá mér, þar sem ég er oftast bara að vinna með texta og pdf skjöl.
https://www.amazon.co.uk/Plugable-Graph ... B007L6NYAO
Re: Hvar kaupi ég skjákort sem höndlar 4 skjái í einu
Sent: Þri 03. Maí 2016 21:18
af hagur
Geturðu ekki sett tvö skjákort í vélina? Ef svo er þá er örugglega ódýrara að kaupa bara 2 basic skjákort og keyra 2 skjái á hvoru um sig. Hugmynd ....
Re: Hvar kaupi ég skjákort sem höndlar 4 skjái í einu
Sent: Þri 03. Maí 2016 21:34
af Hizzman
Já, frekar 2 algeng skjákort eða USB>DVI heldur en eitthvert fancy kort með 4 tengjum.
Re: Hvar kaupi ég skjákort sem höndlar 4 skjái í einu
Sent: Mið 04. Maí 2016 08:59
af asgeireg
Það var að koma nýtt Nvidia Quadro K1200 sem er með 4 dispaly portum og á að vera á viðráðanlegu verði.
http://images.nvidia.com/content/quadro ... _US_HR.pdfÉg veit að Tölvulistinn hefur verið með Quadro kortin og þeir geta líklega pantað þetta inn fyrir þig. Miðað við verið á Amazon er um 300$ þá ætti þetta kort ekki að vera neitt svaka dýrt.
Re: Hvar kaupi ég skjákort sem höndlar 4 skjái í einu
Sent: Mið 04. Maí 2016 13:23
af vesley
Nvidia Geforce GTX750TI er gefið upp fyrir stuðning á 4 skjái og er það kort ekki á nema tæpann 25þús kall.
Ef þú ert ekki að nota vélina í neitt sem þarf mikið afl þá væri það eitt af betri valmöguleikunum.