Síða 1 af 1

Er þetta þokkalegt?

Sent: Mið 22. Des 2004 01:36
af valdiþ
Sælir vaktarar

Ég hef verið að fylgjast með spjallinu ykkar í þónokkurn tíma og hef lært helling af.
Nú er svo komið að ég þarf að fara að uppfæra vélina mína og vantar mig örgjöva, móðurborð og skjákort.
Ég er búinn að púsla saman hlutum sem mér líst vel á og eru á budget sem er um 65 þúsund.

AMD64 3200+ 939 20.250 kr.
MSI K8N NEO2 Platinum - Nforce3 18.950 kr.
Microstar GeForce NX6600GT - VTD128 26.950 kr.

Pakkinn er semsagt á 66.150 kr.

Nú væri gaman að fá álit ykkar á þessu og ábendingar um hvað mætti betur fara.
Einnig er ég að velta fyrir mér hvort að ég ætti frekar að bíða í smá stund eftir Nforce4 PCIe móðurborðum og fá mér þá frekar svoleiðis og PCIe skjákort með.

Sent: Mið 22. Des 2004 02:09
af everdark
Skjákortið er PCIE, móðurborðið styður það ekki.

Sent: Mið 22. Des 2004 03:03
af Birkir
everdark skrifaði:Skjákortið er PCIE, móðurborðið styður það ekki.

Ertu viss?

Sent: Mið 22. Des 2004 03:52
af axyne
Birkir skrifaði:
everdark skrifaði:Skjákortið er PCIE, móðurborðið styður það ekki.

Ertu viss?


Slots
• One AGP (Accelerated Graphics Port) 1.5V 4X/8X slot
• Five 32-bit v2.3 Master PCI bus slots (support 3.3v/5v PCI bus interface).

Sent: Mið 22. Des 2004 06:53
af urban
uhh ég er kannski blindur en hvar kemur fram að þetta sé pci kort ??

Sent: Mið 22. Des 2004 08:24
af viddi
Þetta er ekki PCI Express kort.

Sent: Mið 22. Des 2004 08:24
af MuGGz
það er til 2 útgáfur af kortinu hjá att.is

PCI Express

AGP

Sent: Mið 22. Des 2004 12:34
af everdark
Alveg frábært hjá att, þeir eru með sömu lýsingu á báðum kortum

Sent: Mið 22. Des 2004 13:04
af kristjanm
Ég held að þú ættir að bíða eftir nForce 4, það ætti að fara að birtast í verslunum hérna á næstu vikum.

Annars er þetta mjög vel valið hjá þér.

Sent: Mið 22. Des 2004 13:46
af nomaad
Sammála kristjanm, ef þú þarft þetta ekki alveg strax, þá myndi ég bíða eftir NF4 móðurborðum, þau detta inn kannski í jan-feb.

Sent: Mið 22. Des 2004 15:33
af MuGGz
Hver er munurinn á nforce 3 og 4 ?

Sent: Mið 22. Des 2004 15:42
af axyne
MuGGz skrifaði:Hver er munurinn á nforce 3 og 4 ?


nforce 4 er t.d með PCIe

Sent: Mið 22. Des 2004 17:00
af hahallur
Nforce 4 er nú ekkert að performa mikið betur.

Sent: Mið 22. Des 2004 17:22
af kristjanm
hahallur skrifaði:Nforce 4 er nú ekkert að performa mikið betur.


Það er kannski ekki að performa betur en það eru ýmsir hlutir í því sem eru mikið bættir frá nForce 3 og svo er líka PCI-Express á nForce 4 sem gerir uppfærslur í framtíðinni auðveldari.

Sent: Mið 22. Des 2004 18:06
af MuGGz
þegar nforce4 kemur mun það ekki lækka verðið á nforce3 ?

Sent: Mið 22. Des 2004 18:25
af axyne
þetta er flottur pakki, myndi ekkert vera að bíða ef þú nennir því ekki.
gætir sparað þér einhverja þúsundkalla með að bíða. og auðveldari uppfærslu á skjákorti í framtíðinni en þú ert með gott kort núna og ætti alveg að duga jafn lengi og hinn búnaðurinn.

kaupir þér bara aðra uppfærslu eftir 18-24 mán.

Sent: Mið 22. Des 2004 18:43
af kristjanm
Það er mikið skynsamlegra fyrir hann að bíða.

Það er ekki bara skjákortið sem verður auðveldara að uppfæra í framtíðinni. Bráðum verða líka hljóðkort, netkort og öll slík kort gerð fyrir PCIe x1 slotið. Svo kannski vill hann uppfæra móðurborðið og þá þarf hann að kaupa sér nýtt skjákort líka.

Þetta snýst ekki bara um skjákortið heldur einnig móðurborðið og þar með jafnvel líka örgjörvann. Svo er nForce 4 líka betra chipset en nForce 3.

Sent: Mið 22. Des 2004 19:11
af valdiþ
Takk fyrir svörin.

Ég sé ekki fram á að uppfæra fyrr en eftir áramót þannig að ég býst við að bíða eftir Nforce4 borðunum.

Sent: Mið 22. Des 2004 19:40
af kristjanm
Góður.