Síða 1 af 1

Móðurborð fyrir crossfire, er PCIe-3.0 8x/x8 nóg?

Sent: Sun 22. Nóv 2015 17:35
af sinister
Daginn,

Ég veit að margir hafa brennt sig af Crossfire/SLI, en mig langar að fara út í svoleiðis rugl ;)

Er að plana að builda nýja tölvu frá grunni með Skylake og 1440p freesync skjá, 700W PSU o.s.frv.

..og langar að kaupa 2x Asus R9 380 4GB kort með því eftir að hafa skoðað þetta benchmark sem dæmi, þó það miði reyndar við 2GB útgáfuna, og frá tveim mismunandi framleiðendum: http://www.eteknix.com/amd-radeon-r9-38 ... ds-review/

PC Gamer mæla með þessu móðurborði sem er með allt sem ég þarf: http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6813132567 en Asus móðurborðin virðast bara vera með 8x/8x support í crossfire, en Gigabyte oft 16x/16x, ég er bara ekki hrifinn af Gigabyte.

Þannig að mín spurning er, veit einhver hvernig ég get komist að því hvort PCI-e 3.0 8x/8x sé nóg fyrir þessi skjákort í crossfire?

Re: Móðurborð fyrir crossfire, er PCIe-3.0 8x/x8 nóg?

Sent: Sun 22. Nóv 2015 18:12
af Sennapy
Þannig að mín spurning er, veit einhver hvernig ég get komist að því hvort PCI-e 3.0 8x/8x sé nóg fyrir þessi skjákort í crossfire?


Daginn.

Skylake örgjörvar á markaðnum í dag hafa bara stuðning fyrir 16 PCIe lanes, svo þú munt vera að að nota 8x/8x óháð hvort að móðurborðið styðji 16x/16x eða ekki (sjá t.d. i7-6700k specs hér: http://ark.intel.com/products/88195/Intel-Core-i7-6700K-Processor-8M-Cache-up-to-4_20-GHz). Og til að svara spurningunni þinni, já það er alveg nóg, það er mjög smávægilegur performance munur á 8x/8x og 16x/16x.

Re: Móðurborð fyrir crossfire, er PCIe-3.0 8x/x8 nóg?

Sent: Sun 22. Nóv 2015 18:24
af slapi
8x/8x er feikinóg og ekki marktækur munur vs 16x/16x.

Það sem skylake færir þér miklu betur umfram eldri kynslóðir að nú ertu með 16 PCIe-3.0 brautir beint á CPU og allt að 20 PCIe-3.0brautir frá PCH því getur verið öðruvísi eftir móðurborðum hvernig PCIe raufarnar eru víraðar þannig hafðu það í huga þegar þú ert að versla.
Hinar 20 brautirnar eru venjulega hugsaðar fyrir m.2 pcie drif , SATA Express, USB 3.1 og miklu fleira.

Re: Móðurborð fyrir crossfire, er PCIe-3.0 8x/x8 nóg?

Sent: Sun 22. Nóv 2015 18:35
af sinister
Snilld, takk fyrir!