Síða 1 af 1

2 x 120hz+ skjáir og 1 x DVI tengi = 2 x 120hz+ no go ?

Sent: Mán 02. Nóv 2015 13:56
af Alfa
Hefur einhver leist að ná 2 x 120+ hz á tvo sjái sem supporta það, með skjákorti sem er með 1 x DVI tengi, 3 x Display port og 1 x HDMI tengi.

þar sem t.d. Benq (2410T og 2411T) skjáir virka bara 120hz + á DVI dual link tenginu.

Það er auðvitað hægt að ná þessum tilheyandi hz á display port en þessir skjáir eru ekki með neinu slíku. Venjulegir display port -> DVi converterar virkar ekki, né held ég display port -> DVI (dual link) snúrur.

Einhver með einfalda lausn á þessu ?

Mynd

Re: 2 x 120hz+ skjáir og 1 x DVI tengi = 2 x 120hz+ no go ?

Sent: Mán 02. Nóv 2015 15:15
af Hvati
Held að þú þurfir Active DP í DVI Dual link breyti. Finnur þetta sennilega ekki hérna á Íslandi allavega.
Eitthvað eins og þetta t.d.
EDIT: Advania eiga þetta greinilega: https://www.advania.is/vefverslun/vara/ ... k-breytir/

Re: 2 x 120hz+ skjáir og 1 x DVI tengi = 2 x 120hz+ no go ?

Sent: Mán 02. Nóv 2015 22:35
af Alfa
Hvati skrifaði:Held að þú þurfir Active DP í DVI Dual link breyti.


Þetta er akkúrat það sem ég hef verið að lesa, vandamálið er að það er hálf grátlegt að kaupa 15 þús kr aukahlut fyrir 20 þús kr skjá :) En kannski maður láti vera að því. Allavega virka ekki venjulegir DP í DVI link breytar nema með svona auka rafmagni að það virðist.

Segjandi það þá lætur maður sig kannski hafa það að vera með hinn í 60hz ég nota hann ekkert í leiki hvort sem er. Bara auka skjár.

Takk fyrir svarið.

Re: 2 x 120hz+ skjáir og 1 x DVI tengi = 2 x 120hz+ no go ?

Sent: Mán 02. Nóv 2015 22:37
af mercury
2x display port..
eru skjáirnir bara með hdmi og dvi ?

Re: 2 x 120hz+ skjáir og 1 x DVI tengi = 2 x 120hz+ no go ?

Sent: Mán 02. Nóv 2015 23:38
af Hvati
mercury skrifaði:2x display port..
eru skjáirnir bara með hdmi og dvi ?

Hvorugur skjárinn með DP. Annars fyrst þetta er bara auka skjár þá myndi ég ekkert stressa mig á þessu Alfa :P

Re: 2 x 120hz+ skjáir og 1 x DVI tengi = 2 x 120hz+ no go ?

Sent: Þri 03. Nóv 2015 01:07
af Alfa
mercury skrifaði:2x display port..
eru skjáirnir bara með hdmi og dvi ?


og VGA sem gerir náttúrulega ekkert