Síða 1 af 1

1-2 aflgjafar í einu!

Sent: Mán 06. Des 2004 21:48
af llMasterlBll
Nú er ég að fara að gera mér fileserver úr öllum gömlu góðu HDD unum og var að spá hvort að ekki væri örugast að láta þá alla (er þá að tala um þónokkra) HDD ana runa á sér PSU, og hvort það sé hægt, að hveikja á psu án þess að tengja það við móðurborð!eða tengja tvo PSU við eitt móðurborð?

Sent: Mán 06. Des 2004 21:54
af MezzUp
Jamm, það er hægt. Getur keypt sérstakt stykki sem að ég held að þú tengir í molex á secondary PSU og í P1 á primary PSU. Síðan held ég að það sé líka hægt að modda það einhvernveginn.

En ætlarðu ekki að prófa þetta fyrst á einu PSU'i? Ég held að það sé ekki hægt að skemma neitt með því að keyra á of lágri spennu.

Sent: Mán 06. Des 2004 22:39
af Pandemic
Gerir það einfaldlega svona hef reyndar ekki hugmynd hvort þetta skemmi psuið
http://modtown.co.uk/mt/article2.php?id=psumod

Sent: Þri 07. Des 2004 09:03
af so
Pandemic skrifaði:Gerir það einfaldlega svona hef reyndar ekki hugmynd hvort þetta skemmi psuið
http://modtown.co.uk/mt/article2.php?id=psumod


Þetta er nú einfalt og lýtur sakleysislega út.
Láttu vita ef þú prufar llMasterlBll

Sent: Þri 07. Des 2004 12:29
af Pandemic
Þetta virkar alveg hef prófað þetta í rauninni ertu bara að hotvíra powersupplyið

Sent: Mán 13. Des 2004 17:55
af llMasterlBll
já... var að spá í einhverju svona löguðu akkúrat...bara að spá hvort það væri alveg eðlilegt álag á psu ið...að allt aflið færi í molexin..en ekki ATX rengið...svo vantaði mér einmitt að vita hvaða tvö göt það eru...prófa á miðvikudaginn!! og læt vita hvað brennur og hvað ekki:) !

Sent: Þri 14. Des 2004 13:24
af Dingo
Það er ekkert mál að hafa 2 PSU í kassa, þ.e. ef þeir komast fyrir, tengir ein PSU í móðurborð og allt því tengt, og hefur hinn fyrir HDD og viftur, Muna bara að kveikja á þeim PSU sem er tengdur HDD fyrst og slökkva á honum seinast.

Sent: Fös 31. Des 2004 16:37
af DoRi-
æeg prófaði þetta með gömlu psu-i og etta virkaði.. síða opnaði ég psu-ið og fiktaði eitthvað og reyndi síðan aftur og rafmagnið fór af húsinu :oops:

Sent: Fös 31. Des 2004 18:12
af Pandemic
slóstu lekaliðan út :?

Sent: Mán 03. Jan 2005 14:37
af DoRi-
veit það ekki, fiktaði eitthvað og rafmagnið fór af húsinu :?

Sent: Mán 03. Jan 2005 14:52
af Cascade
Þessir vírar sem á að hotwire-a

Það er einn grænn vír í ATX kaplinum, shortaðu hann við e-ð ground og það kveiknar á psu

Sent: Mán 03. Jan 2005 19:00
af kristjanm
EKKI vera að fikta í rafmagni ef þú veist ekki hvað þú ert að gera!

Þú getur drepið þig á þessu.

Sent: Mán 03. Jan 2005 19:13
af MezzUp
kristjanm skrifaði:EKKI vera að fikta í rafmagni ef þú veist ekki hvað þú ert að gera!

Þú getur drepið þig á þessu.
Ekki á aflgjafa er það nokkuð? (ef að maður opnar hann ekki þ.e.) PSU gefa í mesta lagi frá sér 12V, og ég hef heyrt að það geti ekki skaðað mann vegna þess að mannshúðin er með viðnám uppá 22 ohm eða eitthvað svoleiðis.

Sent: Mán 03. Jan 2005 19:15
af viddi
þú finnur ekki fyrir 12 v

Sent: Mán 03. Jan 2005 20:54
af MezzUp
viddi skrifaði:þú finnur ekki fyrir 12 v
Jafnvel þótt að straumurinn sé mörg amper? Ég hef nú aldrei sett tunguna á 9v batterý, en menn segjast finna smá straum af því.



ps. veit að þetta er í þversögn við það sem ég sagði seinast, grunar bara að viddi viti ekki alveg hvað hann er að segja, (12 volt eru ekki bara 12 volt) og dugi því ekki til þess að staðfesta þetta hjá mér.
pss. Var það ekki örugglega Volt/Ohm = Amper?
psss. Þetta með 9v batterý'ið er þá líklegast vegna þess að viðnámið er minna á tungunni(og vörunum) heldur en húðinni?

Sent: Mán 03. Jan 2005 21:05
af kristjanm
Ég er nú enginn sérfræðingur um rafmagn og hef ekki hugmynd um hvort þetta sé hættulegt eða ekki.

En ef þið vitið það ekki sjálfir eigiði ekki að vera að mæla með þessu.

Sent: Þri 04. Jan 2005 18:27
af DoRi-
pabbi er rafvirki og hann var því miður heima, og ég fékk að heyra það :(