Síða 1 af 1

Vantar álit :)

Sent: Sun 28. Jún 2015 15:48
af Sariam
Sælir verð þið vaktarar
Svona seinnusta vikur er ég búin að hafa þá hugmynd í hausnum að fá mér PC leikjatölvu þar sem ég er orðinn frekar leiður á fartölvuni minni sem er ekki neitt rosaleg í spilun(Er mest í rpg og mmo leikjum þar sem hún ræður bara við það). Ég er búin að vera pæla hvort að það sé betra fyrir mann eins og mig sem hefur enga reynslu á að byggja tölvu eða eða hef einhverja hugmynd hvaða örgjörva eða móðurborð ég á að velja fyrir svona fyrstu tölvuna að byggja sjálfur tölvuna EÐA bara kaupa mér tölvu.
Hvað finnst ykkur sem eruð komnir lengra en ég í svona málum

Re: Vantar álit :)

Sent: Sun 28. Jún 2015 16:43
af Hnykill
Það er alveg sniðugt að setja saman eigin PC tölvu. ekki jafn erfitt að púsla þessu saman eins og margir halda. hvað ertu til í að eyða miklu í þetta ?

Re: Vantar álit :)

Sent: Sun 28. Jún 2015 16:55
af Sariam
Var að spá að reyna fara ekki yfir 130 þús

Re: Vantar álit :)

Sent: Sun 28. Jún 2015 18:24
af Tesy
Mæli með að þú setur þetta saman sjálfur, fínasta afþreying. Kíkir á nokkur youtube myndbönd ef þú lendir í vandræðum, nóg til af þeim.

Hérna er build án OS sem þú gætir kannski kíkt á (Allt frá start.is).
Kaupir síðan 1-2TB disk seinna þegar þú átt pening eða skiptir út SSD í HDD þar sem 120gb er alls ekki nóg. 120gb SDD kostar svipað mikið og 1-2TB HDD í dag.
Mynd

Re: Vantar álit :)

Sent: Mán 29. Jún 2015 13:37
af NumerusX
Tesy. Gleymdir netkortinu!

Re: Vantar álit :)

Sent: Mán 29. Jún 2015 15:54
af Hnykill
NumerusX skrifaði:Tesy. Gleymdir netkortinu!


Það er nánast alltaf innbyggt í móðurborðið eins og það hefur verið til siðs síðustu 10-15 ár eða svo. á þessu móðurborði er það "Realtek Gigabit LAN (10/100/1000 Mbit)" ..bara þetta venjulega standard netkort :klessa :happy

Re: Vantar álit :)

Sent: Mið 01. Júl 2015 19:50
af NumerusX
Ég er að tala um þráðlaust!

Re: Vantar álit :)

Sent: Mið 01. Júl 2015 21:16
af Baraoli
oft eru innbyggð þráðlaus netkort, annars er alltaf best að beintengja tölvuna við routerinn en annars myndi ég bara frá mér gott usb netkort, kostar 3-5þús.

Re: Vantar álit :)

Sent: Mið 01. Júl 2015 21:56
af Tesy
NumerusX skrifaði:Ég er að tala um þráðlaust!


Væntanlega beintengir maður tölvuna ef maður vill actually spila leiki.. Ekki annað hægt