Síða 1 af 1

Skjákort. GeForce GTX970 OC vs. GTX980 OC?

Sent: Fös 05. Jún 2015 17:05
af suxxass
Sælir,

Nú er ég að pæla í því að uppfæra vélina hjá mér, og kominn langleiðina með hvaða hluti ég ætla að fá mér.

En skjákortið er eftir.

Ég get ekki gert upp á milli þessara tveggja.

Ég veit auðvitað að 980 kortið er miklu betra, en er það þess virði?

http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=28_35&products_id=2856 GTX970 - 68.900

http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2940 GTX980 - 109.900

Hafa Vaktarar álit á þessu? Kostir og gallar? Reynslusögur?

Re: Skjákort. GeForce GTX970 OC vs. GTX980 OC?

Sent: Fös 05. Jún 2015 18:10
af worghal
2x970 fyrir aðeins meiri pening en eitt 980.
ef þú ert með budget og pláss fyrir það :p

Re: Skjákort. GeForce GTX970 OC vs. GTX980 OC?

Sent: Fös 05. Jún 2015 18:31
af atlif
er í sama vandamáli! en 980TI er það ekki betra en 2 970 oc og kostar smá meira?

btw. mér finnst þessi lokaða týpa af skjákortum sem blæs hitanum útur kassanum vera sniðugara en að hafa 3 viftur á sjálfu kortinu inní kassanum

Mynd

Mynd

Re: Skjákort. GeForce GTX970 OC vs. GTX980 OC?

Sent: Fös 05. Jún 2015 18:34
af hjalti8
Mynd
~15% meira performance fyrir 60% meiri pening. Engan veginn þess virði imo. 970 einfaldlega miklu betri kaup.

Annars fara AMD að kynna ný kort núna 16.júní svo það er ekki ólíklegt að það verði price cuts eins og þegar þeir gáfu út 290X.

Re: Skjákort. GeForce GTX970 OC vs. GTX980 OC?

Sent: Fös 05. Jún 2015 19:38
af Alfa
Ætli það sé ekki líka spurning hvaða leiki þú ert að spila núna og ertu með 144mhz skjá?

Sjálfur spila ég t.d. BF3 og BF4 mikið með 144mhz skjá og MSI 970 GTX og framecappa leikinn í 144 römmum með mest allt í high (BF4) Ég fæ aldrei framedrop undir 144 fps þannig.

Persónulega vill ég ekki sjá SLi aftur eftir að hafa notað 2 x 670 gtx

Þess má geta einnig að í 1080P sem er algengast í dag er bara 10% munur á 970GTX og 980GTX

Re: Skjákort. GeForce GTX970 OC vs. GTX980 OC?

Sent: Fös 05. Jún 2015 23:11
af SolviKarlsson
Alfa skrifaði: ertu með 144mhz skjá?


Það sem 144mHz væri algjört himnaríki

Re: Skjákort. GeForce GTX970 OC vs. GTX980 OC?

Sent: Lau 06. Jún 2015 00:22
af Xovius
Hvað sem þú ákveður, bíddu aðeins. Verðið mun vonandi lækka þegar 980TI kemur í búðir og það ætti að gerast mjög bráðlega.

Re: Skjákort. GeForce GTX970 OC vs. GTX980 OC?

Sent: Lau 06. Jún 2015 00:43
af Minuz1
Er ekki AMD miklu miklu betra bang for buck núna?
nvm, 970 og 290x eru á svipuðu róli.

spurning kannski um freesync/g-sync þá aðallega?

Re: Skjákort. GeForce GTX970 OC vs. GTX980 OC?

Sent: Lau 06. Jún 2015 00:51
af Xovius
Minuz1 skrifaði:Er ekki AMD miklu miklu betra bang for buck núna?
nvm, 970 og 290x eru á svipuðu róli.

spurning kannski um freesync/g-sync þá aðallega?

290x er á svipuðu róli en samt ekki alveg jafn gott og það er dýrara. Og Nvidia kortin fara sennilega að lækka enn meira í verði.

Re: Skjákort. GeForce GTX970 OC vs. GTX980 OC?

Sent: Lau 06. Jún 2015 10:40
af suxxass
Xovius skrifaði:Hvað sem þú ákveður, bíddu aðeins. Verðið mun vonandi lækka þegar 980TI kemur í búðir og það ætti að gerast mjög bráðlega.



Vildi að ég gæti beðið. Skjákortið í tölvunni minni hrundi endanlega í gærkvöldi. Þannig ég fer í þetta á mánudaginn :)