Síða 1 af 1

AMD64 3400 eða 3500

Sent: Þri 30. Nóv 2004 13:50
af levi
Ég er að fara að fá mér AMD64 örgjörva og hef verið að skoða og langar að vita hvor sé betri.

AMD64 3400 eða AMD64 3500?

Sent: Þri 30. Nóv 2004 14:40
af Stebbi_Johannsson
3400+ nema þú skítir peningum, annars myndi ég fá mér S939 3000+ :8)

Sent: Þri 30. Nóv 2004 14:54
af gnarr
3000+ eða 3200+ 939! ekki spurning.

Sent: Þri 30. Nóv 2004 14:56
af levi
afhverju ekki 3500 ?

Sent: Þri 30. Nóv 2004 15:01
af Stebbi_Johannsson
því 3000+ og 3200+ eru 90nm en 3500+ 130nm :8)

Sent: Þri 30. Nóv 2004 15:11
af sveik
Stebbi_Johannsson skrifaði:því 3000+ og 3200+ eru 90nm en 3500+ 130nm :8)

Það er til 3500+ 90nm en 3000/3200 er miklu meira "bang the buck" !

Sent: Þri 30. Nóv 2004 17:03
af levi
ég myndi fá mér 3500 sem væri 90nm

Sent: Þri 30. Nóv 2004 17:45
af hahallur
Er nokkuð hægt að fá hann hér á landi fyrir jól ?
Ég mindi skella mér á hann ef það væri möguleiki.

Sent: Þri 30. Nóv 2004 18:28
af levi
Ég fæ þetta frá usa. Og mun taka 1 shuttle kassa með. En það er tæpt að þetta komi fyrir jól. Lendir 22des ;]

Hefur einhver reynslu af því hvað það tekur tölvuvirkni langan tíma að skella þessu saman fyrir mann og hvað það kostar?

Sent: Þri 30. Nóv 2004 19:38
af hahallur
Levi þú ættir að kynna þér málin aðeins betur.
Frekar asnalegt að spyrja "AMD 64 3400 eða 3500" þar sem 3400 er s754 og 3500 er s939.
Hellsti munurinn þar á er að s939 er með dual channel minnisstýringu en s754 bara single channel.

Sent: Þri 30. Nóv 2004 20:11
af Birkir
það er samt bara til 3400+ fyrir s754 og 3500+ fyrir s939. Þannig að það er ekkert ansnalegt :)

Sent: Þri 30. Nóv 2004 20:15
af levi
Afhverju er það asnalegt? Ég er bara að spurja hvor er betri? Og ef 3500 er betri útaf 939 þá bara segja það. Það má nú bera saman hluti sem eru ekki alveg eins ;]