Síða 1 af 1

Nýtt skjákort

Sent: Þri 14. Apr 2015 13:25
af testdriver
Sælir

Ég ætla að fara að kaupa mér nýtt skjákort og langaði að athuga með ykkar álit.
Ég er núna með AMD Radeon HD 6950 og ég er með 50.000 kr budget fyrir nýja kortið,
ég fékk ráðleggingu um að kaupa þetta kort.
https://tolvutek.is/vara/gigabyte-gtx-9 ... -2gb-gddr5
Langaði bara að vita hvað ykkur fynnst.

dót sem ég er með núna:

CPU: Intel Core i7 960 3.20GHz
RAm: 12,0GB Triple-Channel DDR3 536MHz
Móðurborð: ASRock X58 Extreme3
GPU: AMD Radeon HD 6950

Re: Nýtt skjákort

Sent: Þri 14. Apr 2015 13:40
af Halli25
ég myndi frekar fara í MSI Gaming sem er ódýrara en Gigabyte:
http://tl.is/product/geforce-gtx-960-gaming-2g
hef bara heyrt slæmt um kælingarnar á Gigabyte en ég er svo sem ekki alveg hlutlaus ;)

Re: Nýtt skjákort

Sent: Þri 14. Apr 2015 13:49
af testdriver
Halli25 skrifaði:ég myndi frekar fara í MSI Gaming sem er ódýrara en Gigabyte:
http://tl.is/product/geforce-gtx-960-gaming-2g
hef bara heyrt slæmt um kælingarnar á Gigabyte en ég er svo sem ekki alveg hlutlaus ;)


Nú er ég frekar mikil nýliði í þessu en ég var að pæla hvort það skipti máli að kortin eru með sama minni og mitt gamla eða sem sagt 2 GB

Re: Nýtt skjákort

Sent: Þri 14. Apr 2015 14:36
af hjalti8
úff, þessi 960 kort eru ansi slöpp fyrir peninginn. Það er ekki oft sem high-end kort hafa betra perf/$ en mid-range kort.
GTX970 er vissulega 10k yfir budget en það er imo margfalt betri kaup. Að kaupa skjákort með 2gb vram í dag á 45k er ekkert nema rán.
Fyrir open world leiki eins og GTA V og Witcher 3 þá skiptir miklu máli að hafa nóg vram uppá að geta notað high res textures.

Re: Nýtt skjákort

Sent: Þri 14. Apr 2015 14:42
af Kristján
viewtopic.php?f=11&t=65263

veit ekkert hver þetta er en þetta var bara þráður akkurat undir þínum og 770 er fínt kort og það er á 35k

en skil ef þú vilt fara í nýtt frekar en notað

Re: Nýtt skjákort

Sent: Þri 14. Apr 2015 15:11
af flottur
Kristján skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=65263

veit ekkert hver þetta er en þetta var bara þráður akkurat undir þínum og 770 er fínt kort og það er á 35k

en skil ef þú vilt fara í nýtt frekar en notað


Þetta var það sem ég var að fara benda honum á, ég myndi hiklaust taka þetta kort fram yfir 960

Edit : sem fyrrverandi eigandi 770 korts(ekki þessa korts reyndar) þá svín virkar þetta fyrir allan peningin.

Re: Nýtt skjákort

Sent: Þri 14. Apr 2015 16:15
af halli1987
spurning með þetta ef nokkrir þúsundkallar eru ekki vandamál
http://www.att.is/product/msi-radeon-r9-290-skjakort
en sennilega mundi ég taka gtx770 kortið á 35 kall