Síða 1 af 1
Læsa USB lykli
Sent: Mán 09. Mar 2015 16:25
af FriðrikH
Hvaða aðferð mælið þið með til að læsa alveg USB lykli.
Þá gæti bæði komið til greina eitthvað til að læsa öllum lyklinum eða þá bara einni möppu.
Er til einhver góður frír hugbúnaður sem gerir þetta eða kostar þetta allt? Hvað er best í þessum efnum?
Re: Læsa USB lykli
Sent: Mán 09. Mar 2015 17:03
af svensven
Fer eftir því hvaða stýrikerfi þú ert með, ef þú ert með Pro/Ultimate/Enterprise Windows þá getur þú skoðað Bitlocker - getur þá dulkóðað kubbinn og sett lykilorð.
Re: Læsa USB lykli
Sent: Mán 09. Mar 2015 17:09
af jonsig
hidden ekki nóg í þessu tilviki ?
Er verið að fela dvergaklámið ?
Re: Læsa USB lykli
Sent: Mán 09. Mar 2015 18:30
af FriðrikH
svensven skrifaði:Fer eftir því hvaða stýrikerfi þú ert með, ef þú ert með Pro/Ultimate/Enterprise Windows þá getur þú skoðað Bitlocker - getur þá dulkóðað kubbinn og sett lykilorð.
Súper, prófa þetta, takk fyrir.
Jónsig - Ekki um dvergaklám að ræða þannig að hidden duga ekki
Re: Læsa USB lykli
Sent: Mán 09. Mar 2015 18:52
af FriðrikH
Crap, Bitlocker virðist bara virka fyrir Win7 Ultimate og Enterprise
Getið þið mælt með einhverju 3rd party dæmi?
Re: Læsa USB lykli
Sent: Mán 09. Mar 2015 19:16
af braudrist
TrueCrypt, USB Safeguard
Re: Læsa USB lykli
Sent: Mán 09. Mar 2015 21:05
af Frantic
Ekki nota TrueCrypt.
https://en.wikipedia.org/wiki/TrueCryptOn 28 May 2014, the TrueCrypt website announced that the project was no longer maintained and recommended users to find alternative solutions.
Re: Læsa USB lykli
Sent: Mán 09. Mar 2015 21:19
af FriðrikH
Hafið þið einhverja reynslu af Veracrypt? Það er víst eitthvað afsprengi af TrueCrypt.
Re: Læsa USB lykli
Sent: Mán 09. Mar 2015 22:20
af nidur
TrueCrypt virkar ennþá mjög vel ekki nota samt nýjustu útgáfuna af því.
Re: Læsa USB lykli
Sent: Þri 10. Mar 2015 08:05
af Frantic
nidur skrifaði:TrueCrypt virkar ennþá mjög vel ekki nota samt nýjustu útgáfuna af því.
Virkar kannski en er ekki eins öruggt og aðrar þjónustur.
Ættum að hætta að nota það asap.
@OP: Fáðu að fara í tölvu hjá einhverjum sem er með Bitlock og læstu lyklinum.
Þú ættir að geta notað hann samt í öðrum útgáfum af Windows 7+
Re: Læsa USB lykli
Sent: Þri 10. Mar 2015 10:33
af Davidoe
"VeraCrypt is a fork of and a successor to TrueCrypt"
http://lifehacker.com/five-best-file-encryption-tools-5677725/1685273934/+alanhenryVeraCrypt ætti að geta læst öllum disknum. Ef þetta er svipað og truecrypt þá ætti það að vera lítið mál.
Re: Læsa USB lykli
Sent: Þri 10. Mar 2015 20:10
af nidur
Frantic skrifaði:Ættum að hætta að nota það asap.
Eins og er þá er ekkert sem bendir til þess að fólk ætti að hætta að nota TrueCrypt.
Það er audit í gangi sjá nánar hérna
http://istruecryptauditedyet.com/Og málið snýst um hvort að source kóðinn innihaldi bakdyr sem ekki er búið að finna ennþá
Margir telja það verra að fara í forked útgáfu þar sem nýjir aðilar sem eru hugsanlega ekki traustsins verðir hafi uppfært kóðann og sett inn bakdyr eða opnað á veikleika sem ekki voru þar fyrir.
Vissulega eru veikleikar á TrueCrypt sjá nánar hérna
https://opencryptoaudit.org/reports/iSe ... ssment.pdfÉg sé engan tilgang til að hætta að nota þetta þar sem þetta er öruggara eins og er en aðrar þjónustur.
Ég skoða VeraCrypt þegar búið verður að gera Security Audit á því.
Re: Læsa USB lykli
Sent: Þri 10. Mar 2015 20:56
af FriðrikH
Ég prófaði allavega VeraCrypt og uppsetningin gekk allavega fínt. Þetta dugar fyrir það sem ég þarf að nota þetta í.. Ekkert djúsí stöff sem ég er að læsa, en það þarf bara að vera læst.
Re: Læsa USB lykli
Sent: Fös 03. Apr 2015 11:38
af nidur
Smá uppfærsla á þessa umræðu
TrueCrypt audit is done.
http://lifehacker.com/truecrypts-securi ... 1695243253Það sem er áhugavert er að höfundur þessara greinar mælir með að fólk noti veracrypt, en eins og kemur fram í comments þá viðurkennir hann að vissulega gæti hafa verið komið fyrir backdoors í Truecrypt forks. Kjánalegt.
Þessi útskýrir hætturnar sem TrueCrypt gæti lumað á í mjög sérstökum tilfellum.
http://blog.cryptographyengineering.com ... eport.html