Síða 1 af 1

GTX 760 vs 270x

Sent: Fös 16. Jan 2015 17:31
af Gerbill
Er að spá í að uppfæra skjákortið eftir helgi, budgetið í kringum 35.
Mér sýnist GTX 760 vera með mest "bang for the buck" en þá er pælingin með þetta Mantle dæmi hjá AMD hvort það muni koma sterkt inn á þessu ári?
Hvað segið þið?

Re: GTX 760 vs 270x

Sent: Fös 16. Jan 2015 17:35
af MatroX
mér sýnist þú geta fengið svipuð kort á vaktinni fyrir mikið minni pening, 660ti pe frá msi er mjög svipað og 760 og það er til sölu á mikið minni pening hérna á vaktinni, svo er EinsteinZ að selja 280x á 35þús.

Re: GTX 760 vs 270x

Sent: Fös 16. Jan 2015 18:16
af tanketom

Re: GTX 760 vs 270x

Sent: Fös 16. Jan 2015 18:39
af Thormaster1337
er með 660ti pe 2gb handa þér á minni pening :)
viewtopic.php?f=11&t=62616

Re: GTX 760 vs 270x

Sent: Fös 16. Jan 2015 18:43
af Gerbill
Hef verið varaður við því að fá mér frá Gigabyte (sökum compatibility og e-ð)
Annars líst mér vel á 280x kortið en ég hef brennt mig á því að fá mér notað án ábyrgðar sem að bilar svo eftir nokkra mánuði svo ég er frekar varkár í því að fá mér notuð kort.

Re: GTX 760 vs 270x

Sent: Fös 16. Jan 2015 18:55
af Ulli
Keypti Asus 280x á 20k á ebay af íslendingi.

Re: GTX 760 vs 270x

Sent: Lau 17. Jan 2015 00:04
af 1thorarinn
Hef átt bæði gtx 760 og 270x, kortin voru með sömu kælingu(msi twin frozr), munar ekki mjög miklu gtx 760 var öflugra í flestum leikjum en dýrara, skipti úr 760 gtx í 270x því ég var ekki með sli móðurborð. 280x myndi ég halda að væri talsvert öflugra en 760 miða við hvað munar litlu á 270x og 760

Re: GTX 760 vs 270x

Sent: Lau 17. Jan 2015 09:04
af billythemule
Ég er að nota R9 270X. Þetta Mantle er aðallega gott fyrir þá sem skortir CPU afl (lækkar CPU overhead) eða eru með AMD 8-core og vilja nýta hann betur. Það eru fáir leikir sem nota Mantle í augnablikinu svo það er kannski ekki skynsamlegt að kaupa kort út af því (Thief, Battlefield 4, Dragon Age Inquisition og ég man ekki hvað fleira).

Kortið sjálft er fínt og alveg virði peninganna. Það er aðeins kraftminna en gtx 760 og aðeins ódýrara þannig að spurningin er hvað þú vilt eyða miklu. Nvidia býður upp á G-sync ef skjárinn er með það. Ég er að nota 144Hz skjá ekki með g-sync og finnst það ekki skipta miklu máli því þegar skjárinn er kominn með svona háa hertz tölu þá verður stuttering minna vandamál því að myndirnar birtast með jafnara bili heldur en á t.d. 60Hz skjá.