Síða 1 af 1

Betri kælingu á skjákortið

Sent: Mið 17. Nóv 2004 21:01
af jo
Ég er með 9600XT kort og eins og þið flestir vitið þá eru original vifturnar og heatsinkin á original kortum yfirleitt ekki merkileg svo ekki sé nú minnst á hávaðann sem fer að koma úr þeim eftir smá notkun.
Mig langar í góða kælingu sem heyrist ekkert í. Er þá ekki Zalman ZM-80D-HP málið.Þessi bláa. http://www.overclockers.co.uk/acatalog/copy_of_Zalman.html
Einnig er ég að spá í viftustýringar. Ég er með antec soho fileserver kassa og þrjár viftur, er að spá í að fjölga þeim í fimm. Líst ágætlega á Zalman Multi Fan Speed Controller ZM-MFC1 http://www.overclockers.co.uk/acatalog/Zalman.html
Endilega deilið með mér ykkar reynslu og skoðunum.

Sent: Mið 17. Nóv 2004 21:27
af Revenant
Kíktu á ATI Silencer. Ég er með svoleiðis á 9800XT kortinu og er mjög hljóðlátt. Kostaði minna sent frá UK með sendingarkostnaði og tollskýrslugerð heldur en að kaupa hér heima Zalman kælisettið og viftuna.

Tók ca 5 mín að taka gömlu kælinguna af og setja nýju á.

Sent: Fim 18. Nóv 2004 08:48
af Stutturdreki
Ég er að nota Zalman ZM-80D og er bara ánægður með það, tók reyndar lengri tíma en 5 mínútur að koma því á og þurfti að kaupa viftu á það (nota 92mm silenX) til að það næði að halda 9800 se (softmodað í pro og með klukkuhraða XT kortsins) undir 55°C í load. Minnir að samkvæmt heimasíðu Zalman þá eigi 9600 kortin ekki að þurfa viftu.. (but don't take my word for it..)

Varðandi viftustýringu þá er ég með Akasa AK-FC-03, stýrir 4 viftum og er með 4 hitaprobes. Voru aðallega hitaprobin sem ég var að sækjast eftir..

Sent: Fim 18. Nóv 2004 23:55
af BlitZ3r
ég held að 9600xt korin séu nú ekki að hitna mikið. þannig að ef þú ert ekki að far í oC þá ætturu ekki að þurfa þess

Ps. Zalman settið er púsluspil :lol:


Btw. ég er í bölvuðu brasli að breyta um nick einhver þráðstjóri að hjálpa mer

Sent: Fös 19. Nóv 2004 02:39
af gumol
Við getum ekkert gert við því, höfum ekki aðgang að notendastjórnuninni.

Sent: Fös 19. Nóv 2004 10:31
af elv
Er líka ekki sniðugt þegar þið eruð að breyta um nick hvað eftir annað :evil:

Sent: Fös 19. Nóv 2004 11:00
af MezzUp
Erum búnir að loka alveg fyrir nickbreytingar

Sent: Fös 19. Nóv 2004 12:46
af BlitZ3r
damm jæja þá verður bara að hafa það :cry: