Síða 1 af 1
Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 13:17
af thiwas
Sælir,
Vitiði eitthvað um þetta síðu - pb.is, hvort að þetta sé eitthvað af viti ?
Ég er ekki að leita að fyrir mig, en var að fá fyrirspurn um þessa síðu, hvort að þetta væri eitthvað sniðugt.
Finnst þetta eitthvað vafasamt svona við fyrstu skoðun.
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 13:29
af fannar82
Veit ekkert um þá en þetta er gert af
http://www.verksmidjan.is/ sé að þeir eru til húsa í Hverafold 1-3 sem er verslunarmiðstöðin í Grafarvogi ef ég man rétt, getur smellt þér þangað og checkað bara
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 13:40
af fedora1
"VISSIR ÞÚ AÐ ÁR HVERT ERU YFIR 52% FÓLKS SEM TÝNIR ÓBÆTANLEGUM LJÓSMYNDUM, TÓNLIST EÐA MYNDBÖNDUM?"
Er einhver hér sem týnir óbætanlegum ljósmyndum/tónlist eða myndböndum annað hvert ár ?
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 13:56
af oskar9
Núna spyr ég sem leikmaður... af hverju er alltaf verið að predika um að þessi cloud storage séu svo örugg, er ekki verið að hakka svona ský á hverjum degi sbr. apple skýið núna í haust, og þú ert að setja gögnin á netið í hendurnar á einhverjum öðrum til að gæta þeirra ?
Persónulega keypti ég mér 256gb intel disk sem ég geymi ofan í skúffu, svo tengi ég hann við vélina þegar ég vil færa myndir á hann, svo set ég hann aftur í skúffuna, annað er ég svo með í tvíriti á USB lykli....
Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 14:02
af Demon
oskar9 skrifaði:Núna spyr ég sem leikmaður... af hverju er alltaf verið að predika um að þessi cloud storage séu svo örugg, er ekki verið að hakka svona ský á hverjum degi sbr. apple skýið núna í haust, og þú ert að setja gögnin á netið í hendurnar á einhverjum öðrum til að gæta þeirra ?
Persónulega keypti ég mér 256gb intel disk sem ég geymi ofan í skúffu, svo tengi ég hann við vélina þegar ég vil færa myndir á hann, svo set ég hann aftur í skúffuna, annað er ég svo með í tvíriti á USB lykli....
Hvað ef húsið þitt brennur og þarmeð backup-diskurinn sem þú geymir í skúffu?
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 14:08
af oskar9
ég vil frekar lifa með þeim líkum frekar en að setja þau í hendurnar á einhverjum sem geymir þau á netinu, eldurinn getur þó ekki notað þessu gögn gegn mér þó hann eyðileggi þau
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 14:13
af hagur
Mehh. Ég kýs að treysta cloud lausnum. Er sjálfur með account hjá Crashplan sem ég tel að séu traustsins verðir. Það er ákveðið comfort fólgið í því að vera með offsite backup. Að auki er ég með allt tvöfalt hérna heima, bæði á RAID5 stæðu sem veitir ákveðið redundancy fyrir gögn sem mega svosem glatast (en væri aðallega vesen að tapa) og svo er ég með sérstakan backup disk fyrir það sem ég vil síður missa. Allt draslið svo speglað upp í Crashplan ský.
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 14:20
af Revenant
pb.is er hýst hjá greenqloud þ.a það er líklegt að þeir séu að nota þá sem bakenda.
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 14:55
af Tiger
oskar9 skrifaði:Núna spyr ég sem leikmaður... af hverju er alltaf verið að predika um að þessi cloud storage séu svo örugg, er ekki verið að hakka svona ský á hverjum degi sbr. apple skýið núna í haust, og þú ert að setja gögnin á netið í hendurnar á einhverjum öðrum til að gæta þeirra ?
Það er nú reyndar búið að upplýsa að það var aldrei brotist inní skýið þeirra, heldur lykilorð notenda hökkuð og því engum nema notendum með lykilorðið "password" eða álíka að kenna.
oskar9 skrifaði:ég vil frekar lifa með þeim líkum frekar en að setja þau í hendurnar á einhverjum sem geymir þau á netinu, eldurinn getur þó ekki notað þessu gögn gegn mér þó hann eyðileggi þau
Þá gerir þú það bara. Það eru aðrir sem hafa aðra skoðun á þessu eins og ég t.d. Með meira en 1TB af ljósmyndum hjá Crashplan, og í raun þótt einhver myndi hacka þá, þá bara ná þeir í RAW skrárnar mínar af hinum og þessum íþróttamyndum (ekki allir sem setja bara nektamyndir af sér á netið) and no harm done.
En að vita af margar ára sögu af íþróttaviðburðum með 3falt backup veitir mér ákveðna friðþægingu (Drobo raid heima, Crashplan fyrir allar skrár, og svo smugmug fyrir allar puplished myndir).
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 15:20
af Hannesinn
Mælikvarðinn hvort maður treysti "cloud þjónustum", eða bara á fallegri íslensku "bandarískum stórfyrirtækjum", er akkurat sá hvort maður myndi setja nektarmyndir af sér eða af viðskiptalausnum eða kóða eða öðru sem gæti skapað þér mikla peninga þangað. Fyrir mitt leiti er og verður svarið nei.
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 17:41
af slapi
Ég skil alveg að menn vilja ekki komast yfir allar myndir manns , ég er með hluta á crashplan í encryptuðu container þannig að ég tel það vera öruggt hjá þeim.
Þessi þjónusta hjá Plan B virðist vera ágætis lausn fyrir íslendinga , væri gaman að fá update frá einhverjum sem hefur prófað þessa þjónustu
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 18:00
af Tiger
Þetta lítur nokkuð vel út þarna hjá PlanB allavegana, reyndar minnir öll uppsettning og fleirra verulega á Crashplan, bæði síðan og forritið sjálft.
Þar sem ég græði ekkert á að hafa þetta innlengt DL (er hjá símanum), og Crashplan er enn ódýrara þá held ég mig bara þar enda allt virkað 110% þar þessi 4 ár sem ég hef verið þar.
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 22:29
af Gúrú
Tiger skrifaði:oskar9 skrifaði:Núna spyr ég sem leikmaður... af hverju er alltaf verið að predika um að þessi cloud storage séu svo örugg, er ekki verið að hakka svona ský á hverjum degi sbr. apple skýið núna í haust, og þú ert að setja gögnin á netið í hendurnar á einhverjum öðrum til að gæta þeirra ?
Það er nú reyndar búið að upplýsa að það var aldrei brotist inní skýið þeirra, heldur lykilorð notenda hökkuð og því engum nema notendum með lykilorðið "password" eða álíka að kenna.
Ekki rétt. Ef ég man rétt þá var engin hömlun á gisk/tímaeiningu á ákveðnum stöðum í kerfinu og því frelsi til að bruteforcea.
Hvað heldurðu t.d. að mörg prósent af notendum hérna séu að nota <10 stafa lykilorð? Ég myndi giska á 88-99%.
@oskar9 Þú dulkóðar bara gögnin með TrueCrypt og >16 stafa lykilorði áður en þú lætur þau á skýið eða harða diskinn þinn og þá þarftu ekki einu sinni að spá í þessu.
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 22:53
af HalistaX
Plan B hljómar eins og eitthvað fóstureyðinga dót.
Re: Plan B - pb.is
Sent: Sun 28. Des 2014 23:34
af Framed
Demon skrifaði:oskar9 skrifaði:Núna spyr ég sem leikmaður... af hverju er alltaf verið að predika um að þessi cloud storage séu svo örugg, er ekki verið að hakka svona ský á hverjum degi sbr. apple skýið núna í haust, og þú ert að setja gögnin á netið í hendurnar á einhverjum öðrum til að gæta þeirra ?
Persónulega keypti ég mér 256gb intel disk sem ég geymi ofan í skúffu, svo tengi ég hann við vélina þegar ég vil færa myndir á hann, svo set ég hann aftur í skúffuna, annað er ég svo með í tvíriti á USB lykli....
Hvað ef húsið þitt brennur og þarmeð backup-diskurinn sem þú geymir í skúffu?
Hafi maður áhyggjur af privacy en vill samt vera (nokkuð) öruggur fyrir eldsvoða þá eru tveir möguleikar;
Encyrpted cloud storage eða
bruna- og vatnsheldur NAS.Persónulega myndi ég fjárfesta í ioSafe ef ég hefði efni á því. Þangað til verða mín mikilvægu gögn geymd í margföldu backup-i bæði í encrypted cloud lausnum og mismunandi formum öðrum.