Síða 1 af 1

Kaup á netinu.

Sent: Þri 16. Nóv 2004 15:19
af dadi
Ég er búinn að vera skoða ýmsa tölvuhluti á netinu undanfarið og þetta er allt miklu ódýrara á útlenskum síðum. Hefur einhver hérna pantað sér tölvuíhluti á netinu og hvernig gekk það? Hvað eru bestu síðurnar í þetta? Er alveg öruggt að panta á Ebay?

PS. Ef einhver veit hversu hár tollur á tölvuíhlutum er gæti hann þá sagt mér það? Ég er búinn að skoða http://www.tollur.is en finn ekkert um það.

Sent: Þri 16. Nóv 2004 16:21
af MezzUp
Alltof mikið af svona þráðum búið að gera, held þessu þó opnu ef að einhver vill svara.

dadi, færð örugglega svar fyrr ef að þú leitar aðeins hérna á spjallinu

Sent: Þri 16. Nóv 2004 17:32
af hahallur
Dadi ég mæli ekki með því að kaupa neytt á ebay.
Ég þekki gaur sem á frænda sem kaeypti bíl á ebay og fékk hann aldrei.

Enn þvílíkur fáviti að kaupa bíl á Ebay

Sent: Þri 16. Nóv 2004 18:02
af CraZy
seigi þad ekki frændi minn keipti vélsleða a ebay og þad var ekkert að honum :?

Sent: Þri 16. Nóv 2004 18:05
af Sup3rfly
Fer allt eftir seljandanum. Ef hann er með góð reviews þá ætti að vera í lagi að kaupa af honum.

Sent: Þri 16. Nóv 2004 18:09
af MezzUp
hahallur skrifaði:Dadi ég mæli ekki með því að kaupa neytt á ebay.
Ég þekki gaur sem á frænda sem kaeypti bíl á ebay og fékk hann aldrei.

Enn þvílíkur fáviti að kaupa bíl á Ebay

Já auðvitað, ef að einn aðili(af mörgum þúsundum) fær slæm kaup á síðunni, þá hlýtur síðan að vera ömurleg! :roll: :roll: :roll: :roll:

Dude, þú verður aðeins að vita hvaða vitleysa kemur uppúr þér!
eBay væri ekki ein af vinsælustu netverslununum í dag ef að það væri ekki eitthvað vit í henni, þó að vissulega séu menn sviknir öðru hvoru, en m.v. stærð og fjölda viðskipta þarna þá held ég að það sé lág prósenta.
En ég hef þó aldrei verslað þar þannig að ég leyfi öðrum að segja þér hvað þú átt að passa uppá við kaup. (eða þú getur leitað einsog ég sagð fyrst :) )

Sent: Þri 16. Nóv 2004 19:16
af gnarr
ekki segja mér að hann hafi ekki keypt tryggingu? ef hann hefur verið með tryggingu hefur hann fengið andvirði bílsins endurgreitt. ebay kærir líka ALLA sem að svindla á ebay, og þeir eru með GÓÐA lögfræðinga.

Sent: Mið 24. Nóv 2004 11:05
af arro
Ef menn eru að kaupa tölvuíhluti þá mæli ég með newegg.com, þarf reyndar að panta í gegnum shopusa.is en newegg er með ótrúlega snögga þjónustu.

Er búinn að panta margoft hjá þeim og þeir standa alltaf við sitt. Ef ég panta á mánudegi er varan komin í Shopusa næsta þriðjudag á eftir. (8 dagar)

kv/ Arró

Sent: Þri 07. Des 2004 17:10
af dadi
arro, Hvernig kaupirðu á Newegg? Þegar ég reyni að skrá mig í þetta stendur að billing information verði að vera þar sem kortið er skráð og það er ekkert hægt að skrá Ísland þar. Þar að auki stendur að það verði að skrá addressuna sem þetta er sent á hjá kreditkortafyrirtækinu.

Sent: Mið 08. Des 2004 18:40
af zaiLex
Newegg sendir ekki fyrir utan usa, verður að skrá heimilisfangið hjá shopusa.is og þeir sjá um að senda þetta til þín. Allt um þetta á http://www.shopusa.is

"Ef menn eru að kaupa tölvuíhluti þá mæli ég með newegg.com, þarf reyndar að panta í gegnum shopusa.is en newegg er með ótrúlega snögga þjónustu.

Er búinn að panta margoft hjá þeim og þeir standa alltaf við sitt. Ef ég panta á mánudegi er varan komin í Shopusa næsta þriðjudag á eftir. (8 dagar)

kv/ Arró"

Hey þessi reiknivél á http://www.shopusa.is .. er útkoman á henni treystandi ?

Sent: Sun 12. Des 2004 19:43
af dadi
Ég sendi þeim tölvupóst þarna hjá Newegg og þeir sögðust ekki taka kreditkort sem ekki væru gefin út í Bandaríkjunum og því er ég mjög forvitinn að vita hvernig arro fór að því að panta hjá þeim.

Sent: Sun 12. Des 2004 20:27
af Phanto
með shopusa.is

Sent: Sun 12. Des 2004 22:13
af Pandemic
þú borgar með þínu eigin kreditkorti þegar þú pantar í gegnum shopusa þannig það shopusa kemur hvergi nálægt kaupunum bara sendingunni og tollinum þannig ég spyr hið sama hvernig fórstu að þessu?

Sent: Mán 13. Des 2004 08:33
af gnarr
það er hægt að skrá heimilisfangið hjá shopusa sem "second address", þá er hægt að nota það.

Sent: Mán 13. Des 2004 12:18
af axyne
ég hef verslað dáldið mikið á e-bay, ég hef aldrei lend í því að gaurinn ekki sendi. en það liðu samt 2 mánuðir að ég fékk eina sendinguna.

Annars er tollurinn duglegur að hirða af þér gróðann sem þú telur þig vera að spara með að versla á e-bay.

t.d um daginn pantaði ég mér 100 stykki ljósdíóður á 2400 kr með sendingarkostnaði. Tollurinn var 3300 kr :!: ég er ekki enn búinn að útleysa 30 gr umslagið :twisted: komnir 2 mánuðir.