Síða 1 af 1

Kaupa nýja tölvu

Sent: Sun 07. Des 2014 20:47
af logi616
jæja sæl öll sömul. Ég er ekki sá fróðasti um tölvur þannig ég ætla bara að spurja ykkur hvernig tölvu er best að kaupa. Veit ekki allveg hvað ég er tilbúinn í að eyða miklu. nota hana bara til að downloada myndum og svo spila ég mikið tölvuleiki einsog bf,cod etc. vil geta spilað þá í bestu gæðum. fyrir fram þakkir Logi

Re: Kaupa nýja tölvu

Sent: Mán 08. Des 2014 18:19
af suxxass
Ertu opinn fyrir því að setja hana saman sjálfur? (Þá geturðu fundið ódýrustu hlutina hjá mismunandi fyrirtækjum og sett saman sjálfur) - Klárlega ódýrari lausn.

Eða viltu tilbúinn tölvuturn? (Keyptur frá einu fyrirtæki annaðhvort með tilbúinn turn eða þú velur hvaða hluti þú vilt í hann, en þeir þá allir keyptir frá sama fyrirtækinu) - Klárlega dýrari lausn.

Re: Kaupa nýja tölvu

Sent: Mán 08. Des 2014 22:28
af logi616
.

Re: Kaupa nýja tölvu

Sent: Mán 08. Des 2014 22:28
af logi616
ég get setthana saman sjálfur, það er minnsta mál í heimi. Spurningin er bara hvaða íhlut er best að kaupa til að gera góða leikja vél sem ég þarf ekki að uppfæra strax eftir 1 ára

Re: Kaupa nýja tölvu

Sent: Mán 08. Des 2014 23:14
af Xovius
Hvað ertu að hugsa um að eyða miklu?

Re: Kaupa nýja tölvu

Sent: Mán 08. Des 2014 23:53
af logi616
Ég er bara ekki búinn að ákveða það. En hvernig er það, er einhver verslun sem tekur gamla tolvuhluti uppí nyja eða haha?

Re: Kaupa nýja tölvu

Sent: Þri 09. Des 2014 08:34
af jonandrii
logi616 skrifaði:Ég er bara ekki búinn að ákveða það. En hvernig er það, er einhver verslun sem tekur gamla tolvuhluti uppí nyja eða haha?


Já, getur farið uppí tölvuvirkni með gömlu tölvuna : http://tolvuvirkni.is/page/tolvupartar

Myndi nú finna út fyrst c.a hvað þú ert tilbúinn að eyða svo það er hægt að hjálpa þér að setja einhverja fína leikjavél saman.

Re: Kaupa nýja tölvu

Sent: Þri 09. Des 2014 15:27
af logi616
Takk, Einsog ég seigi þá er ég tilbúinn að skoða allt.