Síða 1 af 2

geforce FX5500

Sent: Mán 15. Nóv 2004 17:12
af 2pac
er að pæla í að kaupa mér svona kort því mig bráð vamtar nýtt kort hitt er að sucka enn þetta er lang ódýrasta 254mb kortið er það eithvað alfjört drasl sem hrinur strax eða einhver svoleiðis skýring á verðinu eða er það bara fínt og drullu ódyrt?!?!?!?

Sent: Mán 15. Nóv 2004 17:23
af fallen
AAAAAAAAAAAAAAAAHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH

Sent: Mán 15. Nóv 2004 17:31
af CraZy
híhí(hver póstaði addresunni á vaktina á bt.is :x )

Sent: Mán 15. Nóv 2004 17:46
af gumol
256 MB segir ekkert um hvað kortið er öflugt. Þú þarft að skoða benchmörk til að sjá hvað er best: http://graphics.tomshardware.com/graphi ... index.html

Sent: Mán 15. Nóv 2004 18:36
af MezzUp
Vertu velkominn á spjallið en athugaði að hérna gilda hærri staðlar heldur en á mörgum öðrum spjallborðum, eða einsog dönskukennarinn minn á það til að segja ,,við tölum mannamál hérna inni"

Vinsamlegast bættu þig ef að þú ætlar að halda áfram að stunda þetta frábæra spjallborð

Sent: Mán 15. Nóv 2004 19:03
af ErectuZ
Já, einmitt, og Danska er mannamál *hóst hóst* :twisted:

Sent: Mán 15. Nóv 2004 19:03
af 2pac
I called for help not flame!

Sent: Mán 15. Nóv 2004 19:12
af Birkir
Þú varst nú í rauninni að biðja um flame með fyrsta póstinum :)

Sent: Mán 15. Nóv 2004 19:23
af Daz
2pac skrifaði:I called for help not flame!

Við hjálpum þeim sem hjálpa sér sjálfur. Þú lagar þína stafsetningu, við lögum þín grafísku vandamál. Annars áhugavert að sjá að þú gast skrifað (svotil) villulaust á ensku...

Sent: Mán 15. Nóv 2004 19:38
af MezzUp
2pac skrifaði:Fínt enn róasig á kassa vona að það komi geimflaug eða eithvað með essum 40k kassa allaveganna ekki sparka í hann þegar þú verður fúll. Er þetta ekki einum of mikið fyrir kassa þetta er svona 1/4 ef verðinu

2pac skrifaði:er að pæla í að kaupa mér svona kort því mig bráð vamtar nýtt kort hitt er að sucka enn þetta er lang ódýrasta 254mb kortið er það eithvað alfjört drasl sem hrinur strax eða einhver svoleiðis skýring á verðinu eða er það bara fínt og drullu ódyrt?!?!?!?

Ertu virkilega 16 ára? (einsog ég)

2pac skrifaði:I called for help not flame!

Trúðu mér, þetta var ekki flame hjá okkur, en hérna gildir oft ,,what goes around comes around"
Það er enginn fullkominn, þannig að ég er alveg til í að gefa þér séns til þess að bæta þig

Vill nú ekki segja að þú saurgir nafn þessa frábæra listsmanns, en verð að segja að mér þykir frekar leitt að þú kallir þig 2pac, nema vitaskuld að þú bætir þig í framtíðinni

Sent: Mán 15. Nóv 2004 22:05
af wICE_man
Þessi svör eru nú til skammar. Það er allt í lagi að benda mönnum á að bæta stafsetninguna sína en sjö skeyti bara til þess er einum of. Reynum að halda okkur við efnið.

2pac, GeForce FX5500 er að nánast nákvæmlega eins og FX5200, semsagt bara rétt nóg til að spila nýjustu leikina í lágmarks-upplausn með litlum myndgæðum og kostar samt formúgu miðað við það.

Það að fá sér 256MB kort í þessum verðflokki er bara dauðadæmd fáfræði, og að fá sér FX5500 þegar maður getur fengið jafn gott FX5200 kort fyrir miklu minni pening.

Fyrir 12.000 kall mæli ég með FX5700LE sem er miklu betra en áðurnefnd kort. Ef þú ferð upp í 14.000 þá er það Radeon 9600Pro.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 22:34
af 2pac
takk wice-man. og mezzup já ég er 16 ára einsog(hvernig veistu hvað ég er gamall ?) og hvernig manstu eftir 30 ára gömlum korki?!?!?

Sent: Mán 15. Nóv 2004 22:41
af fallen
2pac skrifaði:takk wice-man. og mezzup já ég er 16 ára einsog(hvernig veistu hvað ég er gamall ?) og hvernig manstu eftir 30 ára gömlum korki?!?!?


prófíll beibí
ert með 88 í msn addressu og svo er hægt að fara í það að skoða alla pósta eftir þig

Sent: Mán 15. Nóv 2004 22:54
af 2pac
Hvað er samt málið með AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAHHHHHHHHHHHHH er það eithvað sem bara þessir sem eru með 100+ pósta skilja eða bara að semda inn fyrsta komment eða eithvað allt annað?

Sent: Mán 15. Nóv 2004 23:36
af MezzUp
2pac skrifaði:Hvað er samt málið með AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAHHHHHHHHHHHHH er það eithvað sem bara þessir sem eru með 100+ pósta skilja eða bara að semda inn fyrsta komment eða eithvað allt annað?

Nei, eitthvað sem allir sem kunna stafsetningu og setningarfræði skilja? :P
wICE_man skrifaði:Þessi svör eru nú til skammar. Það er allt í lagi að benda mönnum á að bæta stafsetninguna sína en sjö skeyti bara til þess er einum of. Reynum að halda okkur við efnið.

Regla sem að ég hef nú aldrei kunnað við, en skil loksins ,,Do not feed the troll" :-/
Menn halda áfram að pósta svona ef að þeir fá svör og eru ekki skikkaðir til í byrjun, en jú, viðurkenni að 7 er of mikið :oops:

Sent: Þri 16. Nóv 2004 11:43
af 2pac
Ég viður kenni líka að stafsetning er ekki mín sterkahlið og það er ástæða fyrir því að ég fæ 0 á öllum stafsetningarprófum og þessi grein var líka skrifuð á svona 10 se. ég skal reyna að bæta mig :D

Sent: Þri 16. Nóv 2004 13:03
af ponzer
Held að Radeon kortin séu berti... Kíktu frekar á Radeon kortin =)

Sent: Þri 16. Nóv 2004 16:12
af MezzUp
2pac skrifaði:Ég viður kenni líka að stafsetning er ekki mín sterkahlið og það er ástæða fyrir því að ég fæ 0 á öllum stafsetningarprófum og þessi grein var líka skrifuð á svona 10 se. ég skal reyna að bæta mig :D

Frábært, endilega taktu þér nægan tíma í að gera flotta pósta, færð fleiri svör þannig :D

Sent: Þri 16. Nóv 2004 17:49
af BlitZ3r
Æfingin skapar meistarann

En held að það væri heldur bertri kostur að fá 5700non-ultra/ultra eða 9600xt/9800se

Sent: Þri 16. Nóv 2004 18:01
af Sup3rfly
Ég er með FX 5700 Ultra og er bara hæstánægður með það, er að spila HL2 í fullum gæðum og Doom III í Ultra.

Sent: Þri 16. Nóv 2004 19:58
af Pandemic
Vandaðu skrif þín sérstaklega þegar þú ert að búa til nýjan póst þarf kannski ekki alveg að vera jafn flott þegar maður svarar en það kemur með tímanum.

1. Reyndu að forðast að gera nýjan þráð gera frekar svar í öðrum pósti oft vill fólk ekki svara fólki sem skrifar endalausa pósta um vandamál frekar gera svona 1 þráð sem sem sér alfarið um vandamál t.d ef þú ert að setja saman tölvu.

2. Stafsetning þarf ekki að vera 100% en þó alltaf betra að reyna og að fá einhvern til að fara yfir ef þú ert t.d lesblindur.

3. Gerðu skrif þín snyrtileg átt meiri möguleika á að fá svar og gerir fólki greiða sem þarf að lesa skrif þín.

4. Reyndu að hafa allt eins ítarlegt og hægt er þannig maður geti kannað vandamálið og jafnvel leyst það fyrir þig það er nefninlega ekkert létt að hjálpa fólki yfir netið.

Bara svona til að hjálpa þér og jafnvel öðrum að komast af stað

Sent: Fim 18. Nóv 2004 01:05
af deviant
fx5500 er bara ágætis budget kort fyrir venjulega heimilisnotkun.. þá meina ég ekki doom3 sem heimilisnotkun :) kostar skít og er hægt að overclocka smá.. (slatta ef þú bætir aukakælingu á skjáminnið)

Ma og pa eru með 5500 í vélinni sinni og það gerir allt sem þau vilja að það geri + er "ok" í leikjum.

Sent: Fim 18. Nóv 2004 16:03
af wICE_man
Eftir stendur að FX5200 er enn ódýrara og afkastar alveg jafn vel (innan 2% frá FX5500) og ég endurtek, þegar menn kaupa svona ódýr kort þá eiga menn ekki að fá sér 256MB, þau nota ódýrari(=lélegri) minniskubba og eru því hægvirkari í 90% tilfella.

Sent: Fim 18. Nóv 2004 18:16
af deviant
wICE_man skrifaði:Eftir stendur að FX5200 er enn ódýrara og afkastar alveg jafn vel (innan 2% frá FX5500) og ég endurtek, þegar menn kaupa svona ódýr kort þá eiga menn ekki að fá sér 256MB, þau nota ódýrari(=lélegri) minniskubba og eru því hægvirkari í 90% tilfella.


Veit nú ekki betur en FX5200 kosti um 10.000 en FX5500 kosti rúmlega 7.000

Sent: Fim 18. Nóv 2004 18:20
af deviant
wICE_man skrifaði:Eftir stendur að FX5200 er enn ódýrara og afkastar alveg jafn vel (innan 2% frá FX5500) og ég endurtek, þegar menn kaupa svona ódýr kort þá eiga menn ekki að fá sér 256MB, þau nota ódýrari(=lélegri) minniskubba og eru því hægvirkari í 90% tilfella.


ef þú ert að tala um notað 5200 kort þá er það náttúrulega út í hött.. að bera saman verð á nýju og notuðu. Þá gæti maður alveg eins sagt honum að leita sér að notuðu Radeon 9700Pró korti á lítinn pening og taka bæði þessi kort í nefið..