Síða 1 af 1

2 verson af AMD 64 3400 clawhammer ?

Sent: Sun 14. Nóv 2004 11:43
af hahallur
Ég var næstum búin að festa kaup á AMD 64 3400 í start tölvuverslun sem kostar 29.900 kr.
Task AMD 64 3400 var á 38.900 kr þannig ég var ekki að fara að kaupa hann þar.
Svo fór ég aðeins að grugga í þessu og sá að Operating Frequency: 2.4GHz var á 3400 hjá TASK á 38.900 kr en Operating Frequency: 2.2gzh á 3400 hjá Start á 29.900kr.

http://start.is/product_info.php?cPath=80_47_82&products_id=790

http://www.task.is/?webID=1&p=93&sp=131&ssp=134&item=1248

Hvað á maður nú að kaupa ef ég vil öflugasta S 754 öran á landinu sem er ekki eins dýr og task örgjörvin ?

Sent: Sun 14. Nóv 2004 13:13
af wICE_man
Annar er Clawhammer með 1Mb skyndiminni og keyrir á 2.2GHz en hinn er Newcastle með 512Kb skyndiminni og keyrir á 2.4GHz, hann er því aðeins hraðari í flestu en Clawhammer týpan, þessir Newcastle kjarnar eru ekki jafn algengir og Clawhammer enda eru þeir bara aukaafurð þ.e. Clawhammer kjarnar með hálft skyndiminnið óvirkt.

Sent: Sun 14. Nóv 2004 16:28
af hahallur
WTF núna ertu að rugla.
Þeir eru báðir clawhammer og báðir með 1mb í skyndiminni.

Það stendur skýrym stöfum.

Hjá task:
AMD Athlon64 3400+
Core: ClawHammer
Operating Frequency: 2.4GHz
Cache: L1/64K+64K; L2/1MB
Voltage: 1.5V
Process: 0.13Micron
Socket: 754

Verð: 38.900

Hjá start:

Model: AMD Athlon 64 3400+
Core: ClawHammer
Operating Frequency: 2.2GHz
FSB: Integrated into chip
Cache: L1/64K+64K; L2/1MB
Voltage: 1.5V
Process: 0.13Micron
Socket: Socket 754

Sent: Sun 14. Nóv 2004 16:58
af Dannir
þetta er bull hjá task

það er ekki til clawhammer 3400 sem keyrir á 2.4

Veit líka til þess að computer.is eru búnir að vera að selja Newcastle sem clawhammer

Sent: Sun 14. Nóv 2004 17:01
af hahallur
Dannir skrifaði:þetta er bull hjá task

það er ekki til clawhammer 3400 sem keyrir á 2.4

Veit líka til þess að computer.is eru búnir að vera að selja Newcastle sem clawhammer


Einhverjir fleiri sem geta staðfest þetta.
Eða var það eins og mig grunaði, TASK er alltof dýr búð ?

Sent: Sun 14. Nóv 2004 17:18
af fallen
hahallur skrifaði:Eða var það eins og mig grunaði, TASK er alltof dýr búð ?


Task voru alltaf mjög fínir, en svo hætti 'aðalheilinn' hjá þeim fyrir nokkru og þeir hafa verið á niðurleið síðan, vona að þeir geri eitthvað í þessu.
Veit til þess að það mætti gaur sem ég þekki í búðina þeirra og bað um örraviftu, fékk svarið 'við eigum ekki svoleiðis til', hann benti sölumanninum á því að fyrir aftan hann væri veggur fullur af örraviftum, hann snéri sér við og beinti á einhverja viftu 'þessi er mjög góð'... gaurinn labbaði út og ætlar aldrei að versla við þá aftur

Sent: Sun 14. Nóv 2004 18:57
af gumol
hahallur: wICE_man er venjulega með staðreyndirnar á hreinu og það er þegar komið second opinion frá Dannir.

fallen: :o Þetta hljómar eins og BT

Sent: Sun 14. Nóv 2004 18:58
af Zkari
fallen, hve langt er síðan aðalheilinn hætti þarna? Mánuðir? Vikur? Dagar?

Sent: Sun 14. Nóv 2004 19:11
af hahallur
Can we stick to the subyect.

Er þetta bara crap hjá Task eða er þá kaldur sannleiki.

Sent: Sun 14. Nóv 2004 19:15
af fallen
Zkari skrifaði:fallen, hve langt er síðan aðalheilinn hætti þarna? Mánuðir? Vikur? Dagar?


ekki hugmynd
en verðið og greinilega þjónustan hjá þeim hefur farið versnandi

Sent: Sun 14. Nóv 2004 22:41
af OverClocker
Ég heyrði nú um daginn að það væri búið að selja Task, og stofnendur færu út hægt og rólega skv samning. Fínt ef einhver taskari hérna gæti staðfest það.

Sent: Sun 14. Nóv 2004 23:01
af wICE_man
hahallur skrifaði:einhverjir fleiri sem geta staðfest þetta.
Eða var það eins og mig grunaði, TASK er alltof dýr búð ?


Task er ekki dýr búð, það fer bara eftir því hvað þú ert að kaupa, þeir eru með gott verð á minnum, aflgjöfum, kössum, hörðum diskum osfv. bara skjákort og örgjörvar mættu vera á lægra verði hjá þeim, þar eru þeir svolítið á eftir öðrum búðum. En þeir mega eiga það að þeir selja vandaða vöru.

fallen skrifaði:Task voru alltaf mjög fínir, en svo hætti 'aðalheilinn' hjá þeim fyrir nokkru og þeir hafa verið á niðurleið síðan, vona að þeir geri eitthvað í þessu.


Það er ljótt ef Task er að missa dampinn, ég hef heyrt margt gott um þá hingað til, þeir eru með nokkuð góð verð, gott úrval og ágætis þjónustu, allavega eftir því sem ég hef heyrt.

fallen skrifaði:Veit til þess að það mætti gaur sem ég þekki í búðina þeirra og bað um örraviftu, fékk svarið 'við eigum ekki svoleiðis til', hann benti sölumanninum á því að fyrir aftan hann væri veggur fullur af örraviftum, hann snéri sér við og beinti á einhverja viftu 'þessi er mjög góð'... gaurinn labbaði út og ætlar aldrei að versla við þá aftur


Tölvubúðir ættu að sjálfsögðu að sjá sóma sinn í því að hafa hæft starfsfólk sem veit sínu viti um það sem það er að selja. Ekkert leiðinlegra en að kaupa tölvuíhluti af manni sem veit minna um þá en litli bróðir manns.

Sent: Sun 14. Nóv 2004 23:05
af wICE_man
Ég kíkti á þetta, það virðist sem þetta sé clawhammer en þeir fari bara rangt með klukkutíðnina, þ.e. hún á að vera 2.2GHz, annars væri þetta 3700+ og þá er verðið allt of lágt.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 08:44
af hahallur
Þannig að þið mælið með því að ég fari niður í start frekar ?

Sent: Mán 15. Nóv 2004 10:21
af wICE_man
Ef þú ætlar að kaupa A64 3400+ örgjörva, já.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 16:40
af hahallur
LOL

Það er greinlega einhver task-ari hérna á vappi því að þetta var strax lagað. :)

Sent: Mán 15. Nóv 2004 18:26
af MezzUp
hahallur skrifaði:LOL

Það er greinlega einhver task-ari hérna á vappi því að þetta var strax lagað. :)

Coppertop

Sent: Mán 15. Nóv 2004 22:08
af wICE_man
Gaman að sjá að tuðið í okkur hérna á vaktinni hefur jákvæð áhrif :)

Sent: Mán 15. Nóv 2004 22:40
af fallen
Eitt sem ég er samt að spá í, afhverju eru tölvuvirkni búnir að taka öll verð af verðvaktinni ?

Sent: Mán 15. Nóv 2004 22:45
af axyne
fallen skrifaði:Eitt sem ég er samt að spá í, afhverju eru tölvuvirkni búnir að taka öll verð af verðvaktinni ?


ætli þeir hafi farið í fílu útaf dæminu með örgjörvann um daginn ?
ég er forvitinn.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 23:30
af MezzUp
wICE_man skrifaði:Gaman að sjá að tuðið í okkur hérna á vaktinni hefur jákvæð áhrif :)

that's a first :D

Sent: Þri 16. Nóv 2004 08:29
af ponzer
Ég var að kaupa AMD64 3200 NewCastle fyrir stuttu í Þýskalandi og þegar ég sá hann þar þá spurði ég til hérna heima og einginn vissi um þessa NewCastle örgjörva, þeir ljóta að vera nýjir eða allvega ekki eldir en clawhammer.