Síða 1 af 1

vandamál með harðdisk.. ónýt prentplata?

Sent: Fös 14. Nóv 2014 21:10
af DaRKSTaR
fékk einn disk í hendurnar 1tb wd.

þegar ég skelli honum í dokkina á vélinni hjá mér kemur hann inn en frís nánast strax.. ég get rétt séð hvað er inn á honum en svo bókstaflega frís hann
prufaði að henda honum í dokkina og restartaði tölvunni.. checkdisk fraus bara.. var bara fast í 0%..

er þetta ekki prentplatan eða hvað sem þetta lítla verk aftan á disknum heitir?

týpan:
WD10EAVS-32D7B1 A00 AC

var ekki beint að detta í lukkupottinn þegar ég googlaði þetta eða leitaði á ebay :P

Re: vandamál með harðdisk.. ónýt prentplata?

Sent: Lau 15. Nóv 2014 14:01
af jonsig
Væri réttast að hafa samband við WD .

Re: vandamál með harðdisk.. ónýt prentplata?

Sent: Lau 15. Nóv 2014 21:35
af methylman
Ég gæti átt þetta ónotað eintak innsiglað skal kanna það á morgun

Re: vandamál með harðdisk.. ónýt prentplata?

Sent: Lau 15. Nóv 2014 22:12
af SteiniP
Þetta hljómar meira eins og mekanísk bilun, ef það væri eitthvað rof í prentplötunni þá myndi diskurinn ekkert koma fram, eða koma fram sem einhver "unknown" búnaður, með bull model númeri/stærð eða eitthvað slíkt.
Ef þig vantar gögnin, þá myndi ég byrja á að reyna að mounta hann sem read only í linux og afrita með cp eða rsync, sleppa því eins og þú getur að browsa eitthvað inn á honum.