Síða 1 af 1

Logitech Z-680 og SoundBlaster Audigy 2 ZS

Sent: Sun 07. Nóv 2004 22:15
af SolidFeather
Eftir nokkra umhugsun þá hef ég ákveðið að panta Logitech Z-680 og [url=http://www.newegg.com/app/ViewProductDesc.asp?description=29-102-162&depa=0]SoundBlaster
Audigy 2 ZS[/url] af NewEgg.com og flytja þá inn í gegnum ShopUSA.is. Aðalega vegna þess að ég hef hvergi fundið Z-680 hér á landi.
Ætti að vera komið hingað á um 35-40.000 (Ef að einhver veit um þá hér á landi endilaga láta mig vita)


Yay or nay?

Sent: Sun 07. Nóv 2004 22:17
af gnarr
þú veist að hátalarakerfi flokkast ekki sem tölvuhlutir varðandi tolal og vask.

Sent: Sun 07. Nóv 2004 22:20
af SolidFeather
Var einmitt að spá í því, er það raftæki eða?

Sent: Sun 07. Nóv 2004 22:27
af gnarr
ég er ekki alveg viss. hringdu bar aí þó í shopusa á morgun og spurðu.

Sent: Sun 07. Nóv 2004 22:32
af axyne
ég myndi bara skrá þetta sem Tölvudót.
þeir opna alla pakka og skoða og ef þeim finnst þetta ekki vera tölvudót þá breyta þeir því og rukka þig meira.

þá segir þú "ó ég held þetta væri hinsegin"

en ef þeir nenna ekki að standa í því þá færðu þetta á tölvudótsverði.

Sent: Mán 08. Nóv 2004 11:16
af emmi
Ég spurði tollinn einhvern tímann að þessu og þeir sögðu þetta flokkast undir hljómtæki. Semsagt, tollur og vsk, man ekki prósentuna en þú getur talað við tollinn og spurt hann að þessu. :)

Sent: Mán 08. Nóv 2004 18:56
af kemiztry
35% tollur af hátölurum

Sent: Þri 09. Nóv 2004 08:57
af gnarr
vá!

Sent: Þri 09. Nóv 2004 09:28
af hahallur
Það er mikið 35% en nálta með vsk.

Það er sammt fyndið hve mikið maður þarf að borga við að koma bíl inní landið.

Pabbi var að kaupa nýjan bíl

Hann og aðrir bílar sem fólk keypti sem við þekjum fá 2 földun á verðinu plús 100.000 kr sammt er bíllinn ódýrari en hér. :)

Sent: Þri 09. Nóv 2004 12:15
af skipio
kemiztry skrifaði:35% tollur af hátölurum


Það er alls ekki rétt. Þetta er það sem þeir segja í hljómtækjabúðunum en maður á aldrei að treysta sölumönnum sem eru að reyna að réttlæta há verð.

Hið rétta er að tollur á hljómflutningstækjum er 7,5% eins og sjá má í tollaskrá á http://www.tollur.is/upload/files/85_kafli%282%29.pdf

Síðan kemur auðvitað virðisaukaskatturinn þar ofan á, þannig að samtals hækkar verðið um 33,8375%

Já, og tollurinn er aðeins á vörum sem eru upprunnar utan EES. Þannig að Dynaudio hátalarar sem eru framleiddir í .dk, svo dæmi sé tekið, eru ekki tollskyldir.

Sent: Fös 12. Nóv 2004 00:35
af SolidFeather
Úff, tékkaði á Z-680 í BT og þeir kosta 69.000 :knockedout

Sent: Fös 12. Nóv 2004 10:12
af hahallur
Jafn mikið og Gigaworks.

En annars er ég svo heppinn í mínu braski að afi minn er gamall tollari og reddar öllu og þekkir alla. :twisted:

Re: Logitech Z-680 og SoundBlaster Audigy 2 ZS

Sent: Fös 12. Nóv 2004 16:50
af Skiti
SolidFeather skrifaði:Eftir nokkra umhugsun þá hef ég ákveðið að panta Logitech Z-680 og [url=http://www.newegg.com/app/ViewProductDesc.asp?description=29-102-162&depa=0]SoundBlaster
Audigy 2 ZS[/url] af NewEgg.com og flytja þá inn í gegnum ShopUSA.is. Aðalega vegna þess að ég hef hvergi fundið Z-680 hér á landi.
Ætti að vera komið hingað á um 35-40.000 (Ef að einhver veit um þá hér á landi endilaga láta mig vita)


Yay or nay?


Ég keypti mér Z-680 fyrir tæpu ári í gegnum Shop-USA, það var þá ódýrast hjá DELL.com. Athugaðu að þú verður að kaupa straumbreyti því fyrir USA markað er þetta bara 110 volt.

Þetta var selt á sama tíma í BT á 59.900 ef ég man rétt. Hingað komið kostaði það tæp 40 þús. + straumbreytir sem ég fékk í Radíóbæ á 3-5 þúsund svo ég sparaði slatta á þessu.

Þetta er magnað kerfi, ég er með DVD spilarann og tölvuna í þeim. Það er eitt DIRECT input (tölvan) og tvö digital (DVD + eitt laust), með DTS kóðun sem er frábært þegar þaður er að glápa á DVD.

Ég er reyndar bara með innbyggt hljóðkort í tölvunni en með því að skrúfa bassann svolítið upp í Z-680 er ég kominn með bestu hljómtæki sem ég hef átt. Langar virkilega til að fá mér alvöru hljóðkort...

Keyptu þetta dót því þú verður EKKI svikinn af soundinu!

Sent: Fös 12. Nóv 2004 19:34
af SolidFeather
Keypti SouldBlaster-inn í Tölvuvirkni og Hátalararnir eru á leiðinni. :8)

Sent: Lau 13. Nóv 2004 18:27
af Skiti
SolidFeather skrifaði:Keypti SouldBlaster-inn í Tölvuvirkni og Hátalararnir eru á leiðinni. :8)


Döööö... Láttu vita hérna á spjallinu hvernig þetta hljóðkort virkar með Z-680.

Ég GET ekki verið minni maður en þú (ég er sko 192 cm.)