Síða 1 af 1

Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fim 11. Sep 2014 19:06
af mxtr
Sælir bræđur og systur!

Ég er ađ velja innmatinn í öfluga vél en þarf í leiđinni ađ gæta ađ hávađamengun þar sem hér á heimili þarf ađ taka tillit til margra ólíkra persóna :D
Ráðgjöf óskast í þessum málum því eins og titillinn gefur til kynna, er ég ekki viss hvort ég eigi að leggja meiri áherslu á að finna silent turn eða íhluti :?

Vélin verður á 250-350þús range miðað við fyrstu athuganir.
Hver veit, kannski endar þessi þráður á því að veita mér öll svör varðandi innkaup í vélina \:D/
Thanks in advance eins og maður segir á góðri íslensku ;)

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fim 11. Sep 2014 21:11
af fedora1
Bæði hefði ég haldið. Ég keypti turn um daginn, sem heyrist varla í ( á reyndar eftir að fá mér skjákort við tækifæri).

viewtopic.php?f=57&t=62077

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fim 11. Sep 2014 21:24
af Eythor
hversu öflug á vélin að vera ? :)

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fös 12. Sep 2014 11:40
af mxtr
Mjög næs linkur fedora1, ég skoða hann vel. Ég vil helst að vélin sé það öflug að ég þurfi ekki að uppfæra næstu árin, hef gert þetta svona síðustu 2 skiptin og vá hvað það er næs að tölvan manns bara éti allt sem maður hendir í hana Eythor :D

Mér finnst persónulega borga sig að eyða big cash og þurfa ekki að uppfæra af og til.

Ég er að horfa á
I7 örgjörva (nema það sé svalara að klukka amd?)
780 Ti skjákort (kannski 2, vantar ykkar álit þar) Hef alltaf valið Nvidia. Er það ennþá betra?
16 í minni (kannski 32, þygg ykkar álit þar líka)
SSD boot disk. Ég veit EKKI SHIT um ssd nema að maður vill ekki setja meira en ca 75% á þá og þeir eru hraðir. Álit og meðmæli nauðsynleg :)
Ég á sjálfur nóg af Seagate Tb diskum

Aflgjafar og móðurborð? Ég er ekki nógu klár í því, vel yfirleitt bara eitthvað overpowered. Miðað við pælingarnar mínar, hvað er "the shit" ?
Hvaða kæling er sniðugust miðað við þessa specca og lágmarks db ?

Tölvuna mun ég svo nota í hljóðvinnslu, myndvinnslu, gaming, FB og porn, í þessari röð. Keyrt á Win 7
Endilega rakkið þetta niður að vild :) bara ekki gleyma að segja hvað þið minduð gera í staðinn!

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fös 12. Sep 2014 13:22
af olafurfo
Corsair Carbide 200r

Pældi mikið í að fá mér þennan útaf hann er mjög hljóðeinangraður og með þokkalegt loftflæði

Hérna er flott review um þennan kassa : https://www.youtube.com/watch?v=8gpYX3mZ3eQ

En ég fór samt sem áður í Corsair Obsidian 450D : https://www.youtube.com/watch?v=z43PXQbbm4U
Hann er mjög hljóðlátur, dustproof og með betri cable management.

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fös 12. Sep 2014 14:23
af Vaski
Þú færð aldrei hljóðláta tölvu með tveimur leikjaskjákortum í, um leið og þú ferð í leik að þá mun hávaðinn verða óbærilegur (já já ég veit að hljóð er huglægt og allt það.)
Held að eina leiðin fyrir þig til þess að hafa þetta hljóðlátt sé að fara í vatnskælingu, þannig að ég myndi velja kassa með það í huga. Það er ekkert mál að kæla örgjörva með lofti án þess að láta heyrast í honum, en það er erfitt með skjákort (þegar það er í fullri vinnslu), og nánast ómögulegt með tvö skjákort. Custom vatn er eina leiðin held ég.

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fös 12. Sep 2014 15:00
af GullMoli
Vaski skrifaði:Þú færð aldrei hljóðláta tölvu með tveimur leikjaskjákortum í, um leið og þú ferð í leik að þá mun hávaðinn verða óbærilegur (já já ég veit að hljóð er huglægt og allt það.)
Held að eina leiðin fyrir þig til þess að hafa þetta hljóðlátt sé að fara í vatnskælingu, þannig að ég myndi velja kassa með það í huga. Það er ekkert mál að kæla örgjörva með lofti án þess að láta heyrast í honum, en það er erfitt með skjákort (þegar það er í fullri vinnslu), og nánast ómögulegt með tvö skjákort. Custom vatn er eina leiðin held ég.


780 kortin eru frekar hljóðlát í "engri" vinnslu. Og þegar maður vippar sér í tölvuleiki þá er maður oftast með heyrnartól á sér sem loka á utanaðkomandi hljóð. Ef staðan er slík þá hugsa ég að það skipti ekki öllu máli þótt vélin sé pínu hávær undir mjög miklu álagi.

Annars er jú vatnskæling klárlega málið.

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fös 12. Sep 2014 15:09
af Squinchy
Ég skipti nýlega frá Fractal Design Core 1000 yfir í R4 þar sem dælu hljóð í H80I og viftunar tvær á vatnskassanum voru að pirra mig (bý í ótrúlega hljóð einangruðu húsi þannig að öll smá hljóð verða fljótt mega pirrandi).
Fann smá mun á því að skipta um kassa, viftu hljóð fóru alveg og sama með dælu hljóðið, heyri af og til í 3TB diskinum þegar ég boota leikjum sem eru á honum en í daglegri notkun þá heyri ég ekki í vélinni nema ég fari að hlusta eftir hljóðum frá henni

Hef þó íhugað að skipta yfir í Noctua NH-D14 og kannski að skipta yfir í einhvern "silent" aflgjafa, en kemst oftast að þeirri niðurstöðu að það sé óþarfa smámunasemi í mér :P

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fös 12. Sep 2014 15:14
af jojoharalds
til að hafa þetta allt sem mest silent myndi ég ráðleggja þér að fá þér Vatnsblock á skjákortinn(þvi vifunar á þeim eru oftast alveg svakalega hávær)
og vatnsblock á cpu,svo færðu þér eitt stykki 360mm radiator í silencio kassann(jafnvel dugar 240 ef þú ert ekki að yfirklukka)
og svo færðu þér 6 víftur á það og setur 7v í staðinn fyrir 12v af rafmagni.
ég held að þetta ætti að verða eins silent og hætt er :)

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fös 12. Sep 2014 15:32
af Vaski
@GullMoli
mxtr skrifaði:hér á heimili þarf ađ taka tillit til margra ólíkra persóna :D

Held að afgangurinn af heimilinu verði ekkert sérstaklega hress þegar bæði 780 korti fara á 90% viftusnúning.
Tölvur nú til dags eru nánast hljóðlausar þegar þær eru í engri eða léttri vinnslu, þannig að það er ekki vandamál, hávaðin kemur þegar þær byrja að gera eitthvað :happy

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fös 12. Sep 2014 16:45
af svanur08
Voðalega er margir alltaf að pirrast á hljóðum í raftækjum, finnst það alveg magnað.

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fös 12. Sep 2014 18:03
af mxtr
Takk allir, fyrir linka og athugasemdir :)

Þessi umræða er búin að víkka sjóndeildarhringinn hjá mér, ég sé að ég þarf að skoða ýmsa möguleika og gera mér betur grein fyrir "hversu mikill hávaði er mikill hávaði", amk hér heima (3 börn og maki í vaktavinnu er eitthvað sem ég ætla mér ekki að ónáða að óþörfu hr svanur08 ;) ).

R4 kassinn kemur vel til greina Squinchy! Eitthvað var youtube þó að hræða mig með að silence Vs airflow. Ég veit ekki hvort það er raunverulegt issue.

Þú steiktir á mér hausinn jojoharalds, ég ætla að googla þetta sem þú talaðir um.

Þetta er í fyrsta skipti sem ég legg vinnu í val á turni svo ég skil vel ef ykkur fynnst pælingarnar mínar kjánalegar eða whatever :D

Þetta er stuð!

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fös 12. Sep 2014 18:10
af svanur08
Ég var nú ekkert endilega að tala um þig. :happy

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fim 18. Sep 2014 13:15
af mxtr
Jæja, það stefnir allt í R4, það virðist vera solid að taka miðju hdd búrið úr honum fyrir góða kælingu með viftum. Ætli ég byrji ekki á viftukælingu og uppfæri í vatn ef ég er ósáttur. 780 ti virðist vera dead silent í þessum kassa nema í svaka keyrslu.

Vill einhver koma með móðurborð tillögu? Þau virðast öll vera "eins" :/

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fim 18. Sep 2014 20:23
af littli-Jake
Ef þú villt að draslið haldi kjafti færðu þér Antec P-100 eða P280. Er sjálfur með P-180(gamal) og þetta er alveg dásamlega hljóðlátt. Kostar sitt en þú þarft að hugsa um þetta sem fjárfestingu. Er sjálfur búinn að uppfæra tvisvar (total 3 rig) síðan ég fékk mér P180 og sé ekki fram á að þurfa að fá mér annan kassa (langar samt svaðalega í P-280)

Það er slatti af dómum á youtube. Mæli með að þú tékkir.

Ekki sérlega gott myndband um P-100. Er að bíða eftir linusTectips komi með

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Þri 23. Sep 2014 19:06
af mxtr
Takk aftur fyrir að koma mér á sporið. Ég er búinn að liggja yfir ótal reviews um allskonar og eftirfarandi er það sem ég er að spá í:

Fractal Design R4 kassi svartur
Fractal design R3 800w aflgjafi (mér gengur illa að finna út hvaða aflgjafi henti þessari tölvu best, aðrar tillögur vel þegnar)
ASRock Z97 Extreme6 móðurborð
Intel Core i7 4790k 4.0GHz örgjörvi
Örgjörvakæling Hér þygg ég aðstoð við valið
16 EÐA 32 gb í vinnsluminni. Hérna er ég strand því ég veit ekki í raun hvort 32gb gagnist mér umfram 16, hef ekki næga reynslu. Sömuleiðis skil ég mhz töluna ekki fullkomlega. Er ég að skilja það rétt að Extreme 6 móðurborðið sé default 1600 mhz en ég geti klukkað það uppí 3200? Þar af leiðandi gagnist mér ekki að taka minni umfram 1600 mhz nema ég ætli að klukka tölvuna?
2 stk Nvidia GTX 980 vitið þið hvaða kort eru hljóðlátust eða með minnsta hitann?
Samsung EVO 1 TB SSD diskur (too big? )
Samsung 24x DVD±RW skrifari Serial-ATA svartur (bara basics)
Besta kælikremið?

Endilega hjálpa mér að þjappa þessu betur saman með því að hrópa húrra yfir góðu vali og drulla yfir draslið :D (já eða, þið skiljið)
quote-a svo í sjálfann mig "Tölvuna mun ég svo nota í hljóðvinnslu, myndvinnslu, gaming, FB og porn, í þessari röð. Keyrt á Win 7"

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Þri 23. Sep 2014 21:15
af CendenZ
GullMoli skrifaði:
Vaski skrifaði:Þú færð aldrei hljóðláta tölvu með tveimur leikjaskjákortum í, um leið og þú ferð í leik að þá mun hávaðinn verða óbærilegur (já já ég veit að hljóð er huglægt og allt það.)
Held að eina leiðin fyrir þig til þess að hafa þetta hljóðlátt sé að fara í vatnskælingu, þannig að ég myndi velja kassa með það í huga. Það er ekkert mál að kæla örgjörva með lofti án þess að láta heyrast í honum, en það er erfitt með skjákort (þegar það er í fullri vinnslu), og nánast ómögulegt með tvö skjákort. Custom vatn er eina leiðin held ég.


780 kortin eru frekar hljóðlát í "engri" vinnslu. Og þegar maður vippar sér í tölvuleiki þá er maður oftast með heyrnartól á sér sem loka á utanaðkomandi hljóð. Ef staðan er slík þá hugsa ég að það skipti ekki öllu máli þótt vélin sé pínu hávær undir mjög miklu álagi.

Annars er jú vatnskæling klárlega málið.


Þetta er gott svar, hávaðinn kemur frá viftum og víbring. Um leið og vélin þarf að vinna byrjar hún að hljóða

Þú hefur svo lítið að gera við 32 gb minni, nema þú sért í þannig vinnslu ;)

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Mið 24. Sep 2014 11:03
af Vaski
mxtr skrifaði:2 stk Nvidia GTX 980 vitið þið hvaða kort eru hljóðlátust eða með minnsta hitann?


asus strix kortin eru að koma vel út hljóðlega séð, held að þau kosti samt eitthvað aðeins meira en default kort, en þau eru semi passive: http://www.asus.com/Graphics_Cards/STRI ... DC2OC4GD5/

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Mið 24. Sep 2014 13:03
af mxtr
Takk fyrir það Vaski :)

Þegar ég ber saman Asus gtx980 Vs STRIX kortið þá sé ég bara 63 mhz boost mun og 51mhz base á kortunum, annars eru þau alveg eins, right?
http://www.asus.com/Graphics_Cards/GTX9804GD5/

Hvað er 63 mhz munur að gera fyrir skjákort?
Spyr sá sem ekki veit :)

Annars vil ég undirstrika við Cendenz að ég er búinn að taka stefnuna frá gtx 780 Ti einmitt vegna þess hve 680 kortið lofar góðu og er ekki nærri eins power hungry = kaldara = hljóðlátara. Right?

Hvað segið þið um örgjörvakælingu í þessa vél? Er kannski æskilegra að þar sem ég hef fengið svör við upprunalegu spurningunni (íhlutir Vs turnar), að ég stofni nýjann þráð varðandi íhlutavalið sjálft?

Editaði póstinn þegar ég sá að ég gleymdi base mhz mismuninum og ég ruglaði wöttum saman við mhz :baby

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Mið 24. Sep 2014 13:30
af Vaski
mxtr skrifaði:Þegar ég ber saman Asus gtx980 Vs STRIX kortið þá sé ég bara 63 mhz boost mun og 51mhz base á kortunum, annars eru þau alveg eins, right?
http://www.asus.com/Graphics_Cards/GTX9804GD5/
Hvað er 63 mhz munur að gera fyrir skjákort?

Ekki neitt, enda var ég ekki að benda þér á "öflugrar" skjákort, heldur hljóðlátara, enda var það spurningin hjá þér. Munurinn liggur í mismunandi kælingum, sem og mismunandi stillingum á viftuhraða (fyrsta sinn sem Nvidia leyfir framleiðundum að slökkva alveg á viftunum þegar kortin eru í idel (msi er líka að koma með svona kort þar sem vifturnar stöðvast alveg þegar kortið er undir einhverjum vissum hita)).

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Fim 25. Sep 2014 17:47
af mxtr
Ekkert illa meint :) Semi passive mindi henta mér mjög vel.
Íhlutalistinn minn er orðinn afar fallegur (að mínu mati amk). Alhyllist Noctua örgjörvakælingu, virðist afar hljóðlát.

Mér þætti gaman að vita hvað þið hafið að segja um SSD stærðir.
Er 1 tb algert overkill eða eykur það endingu disksins að hafa nóg pláss? Þá er ég að miða við að ca 500gb mindu alveg duga.
pælingar pælingar :)

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Lau 04. Okt 2014 21:42
af mxtr
Sælir aftur vaktarar :)

Nú er þessu öllu lokið og ég vil þakka aftur fyrir aðstoðina og inleggin.
Svona endaði þetta:

Fractal define R4 turn
Corsair AX860W modular aflgjafi
ASRock z97 Extreme6 móðurborð
i7-4790k örri
Noctua NH-D14 kæling
Crucial 16gb 2x8 ram
PNY GTX980 skjákort x2
Samsung EVO 500gb SSD
Basic 24x skrifari


Keypti allt nema kassann í tölvutækni :8)

Mikið djö er vaktin ávanabindandi lestrarefni :megasmile

Re: Hljóđeinangrađir turnar Vs lágværir íhlutir

Sent: Sun 05. Okt 2014 12:05
af Framed
Hvað kostuðu svo herlegheitin, ef ég má spyrja? Einnig var ég að pæla, mögulega í fáfræði, af hverju einn SSD? Hefði ekki verið hægt að fá meiri hraða úr vélinni með tvo 250gb í raid 0? Hefði bara munað einhverjum 5 þús. kalli.
Og að lokum þá mættirðu leyfa mér/okkur að heyra þitt álit á hávaðaframleiðslu maskínunnar í fullri vinnslu; tókst takmarkið að vera með lágværa "ofur"vél?

Persónulega er ég forvitinn þar sem þessi vél er nokkurn veginn það sem ég var að hugsa um að kaupa mér seinna í haust, með einmitt sama markmið.