Síða 1 af 1

Er AGP dautt?

Sent: Þri 02. Nóv 2004 17:22
af zedro
Jæja núna er verið að íhuga kaup á leikjavél. :megasmile
En nokkrar sp. hafa komið upp varðandi hvaða móðurborð mar eigi að skella sér á.

Beint út er AGP(8x) dautt og er PCIe(16x) að koma í staðinn.

Ég hef heirt hér og þar að það eigi að hætta með AGP og taka PCIe í
staðinn en ég hef einnig heirt að það það komi bráðum út AGP(16x)
veit einhver hér eitthvað um málið? :shock:

Einnig hvort mælið þið með að kaupa móðurborð með AGP eða PCIe slott? :disastreus

Ef þig vitið um góð kaup endilega posta link eða upls.
(miða við móðurborð: AMD64 3500+, Dual DDR support)

Alla upls. vel teknar, því ég er kominn með bombandi hausverk ](*,)
utaf öllum umsagnunum sem ég hef lesi á netinu.

Sent: Þri 02. Nóv 2004 19:02
af Pandemic
AGP er ekkert að fara að falla í gleymsku það er enþá á miklum meirihluta á móbóum og flest skjákort eru AGP.
Það hefur sýnt sig að PciE kortin eru ekkert hraðari en AGP

Sent: Þri 02. Nóv 2004 19:26
af Birkir
Það mun aldrei rísa upp úr skugga PCIe úr því sem komið er en það er hinsvegar ekki dautt. Ég ákvað að sitja hjá :wink:

Sent: Þri 02. Nóv 2004 19:28
af einarsig
Pandemic skrifaði:Það hefur sýnt sig að PciE kortin eru ekkert hraðari en AGP


ennþá ! ;) uppá framtíðina myndi ég versla mér móðurborð sem styður pci-x útaf að geta uppfært seinna meir þegar AGP kortin ráða ekki öllu :)

annars er ég að fá mér 6800 ultra agp og hef ekki hug á að uppfæra næstu 2 árin sennilega

Sent: Þri 02. Nóv 2004 19:58
af MezzUp
einarsig skrifaði:
Pandemic skrifaði:Það hefur sýnt sig að PciE kortin eru ekkert hraðari en AGP


ennþá ! ;) uppá framtíðina myndi ég versla mér móðurborð sem styður pci-x útaf að geta uppfært seinna meir þegar AGP kortin ráða ekki öllu :)

annars er ég að fá mér 6800 ultra agp og hef ekki hug á að uppfæra næstu 2 árin sennilega

Einsog mig minnir að hafi verið bent á, er PCI-X ekki það sama og PCI-Express (oft kallað PCI-E og PCIe)

Leyfi ykkur að Googla muninum

Sent: Mið 03. Nóv 2004 00:17
af gnarr
16x agp mun aldrei koma. það er hraðamunur á PCIe og agp. en hann er ekki mikill sem stendur.

Sent: Mið 03. Nóv 2004 00:27
af llMasterlBll
held að annar kostur við PCIe (16x) móðurborðin séu hinar PCIe raufarnar sem eru þá oftast líka...minnir mig...darn...er ég kannski bara að bulla?...googla aðeins...seinna...sofa núna!

Sent: Mið 03. Nóv 2004 09:40
af hahallur
Hvernig getur APG verið dautt ef nánast allir nota það í dag :)
Kannski dautt eftir 2 ár hver veit.

Sent: Mið 03. Nóv 2004 19:04
af kristjanm
Ég myndi frekar versla mér PCI-Express móðurborð/skjákort vegna þess að þá er auðveldara að uppfæra í framtíðinni, t.d. ef þú myndir kaupa þér nýtt skjákort, hljóðkort, lankort eða whatever sem væri gert fyrir PCI-Express.

Annars er lítill sem enginn hraðamunur, stundum er AGP aðeins hraðvirkara og stundum PCIe. Annars hef ég tekið eftir á review síðum að Aquamark skorar alveg 2000stigum hærra ef það er á mjög hraðvirku PCIe skjákorti. Þar segir hærri bandvíddin til sín.

Sent: Fim 04. Nóv 2004 10:58
af wICE_man
AGP X4 er ennþá að halda í við AGP X8 svo að það var ekki minnsti tilgagnur í að herða á þessu frekar en það var tilgangur með því að hækka frá ATA100 upp í ATA133, fæstir harðir diskar ná einu sinni að metta ATA66!

En AGP verður dautt eftir eitt eða tvö ár, þar sem allir eru að færa sig yfir í PCIe. Það er hentugt að hafa sama protocal fyrir öll aukakort í tölvunni, og það er akkurat það sem að PCIe tæknin gerir kleyft.

Sent: Þri 30. Nóv 2004 13:55
af ganjha
Þetta móðurborð segir kannski hversvegna PCI express mun verða ofaná í framtíðinni...

Svo gæti það allt breyst aftur á morgun.

Sent: Þri 30. Nóv 2004 14:53
af gnarr
PCIe mun ekki verða oná þegar næsti standard er búinn að vera í 2 ár..

auðvitað er PCIe það sem að mun vera í framtíðinni.

þetta er svona álíka og að segja: "sko! 2005 kemur á eftir 2004!"