Síða 1 af 1

Vandamál með les- og skrifhraða.

Sent: Mán 01. Nóv 2004 21:04
af AddiBig
Svona er mál með vexti. Lennti í einhverju HDD vandamáli hérna um daginn(samsung diskurinn minn var að vinna hægt) Keypti mér nýja og setti hann í. Er núna með 2.diska annar(master) er WD 200GB 7200 ATA100 og hinn(slave) er 160GB samsung 7200 ata100. En hérna er problemið. Þeir eru núna báðir slow. Náði í quick bench og tékkaði á þeim. 200GB WD er að lesa í kringum 65MB/s en skrifa í kringum 3MB/s :oops: Samsungin160GB er aftur á móti að lesa í kringum 3MB/s og skrifa í kringum 65MB/s. Veit einhver hvað gæti verið að. Er buinn að setja nýasta BIOS inn, nýja drivera fyrir móðuborðið. SKipta um kapal. Er þetta eitthvað sem tengist móðuborðinu eða IDE raufunum....WTF :shock: :shock:

[Titli breytt að þráðsjóra]

Sent: Mán 01. Nóv 2004 21:44
af AddiBig
Koma svo...er enginn með hjálp við þessu?? :roll:

Sent: Mán 01. Nóv 2004 22:32
af MezzUp
AddiBig skrifaði:Koma svo...er enginn með hjálp við þessu?? :roll:

kannski ekki, ef að þú getur ekki beðið í 40 mínútur eftr svari :shock:

Sent: Mán 01. Nóv 2004 23:16
af Sveinn
MezzUp skrifaði:
AddiBig skrifaði:Koma svo...er enginn með hjálp við þessu?? :roll:

kannski ekki, ef að þú getur ekki beðið í 40 mínútur eftr svari :shock:

Hahah já satt, en ég verð nú samt að viðurkenna að á þessum 40 mínútum væri ég búinn að kíkja allavega 6 sinnum á póstinn :] en aldrei póstað hvort ég væri ekki að fá svar :P

Sent: Þri 02. Nóv 2004 00:52
af llMasterlBll
fragment...ef diskurinn er bara rauður í fragment check..annars kannski bad sector..á samsung disknum... búinn að gera scandisk?

(fara í my computer, hægrismella á harðadisks drifið með músinni, fara í prperties, fara í tools flipann, íta á start(allavegana svona í win xp og win 2k3)scandisk).

Sent: Þri 02. Nóv 2004 11:11
af gnarr
klikkaðu með hægri á "My Computer" -> "Properties" -> "Hardware" flipinn -> [Device Manager] -> klikkar á plúsinn hjá "Ide ATA/ATAPI controllers" -> klikka með hægri á "Primary IDE Channel" -> Properties -> "Advanced Settings" flipinn -> Passaðu að "Transfer Mode" fyrir bæði "Device 0" og "Device 1" sé á "DMA if available" og athugaðu hvað stendur í "Current Transfer Mode" í báðum dálkum -> klikkaðu á [OK] -> Hægriklikka á "Secondary IDE Channel" og velja "properties og gera það sama og þú gerðir fyrir "Primary IDE Channel".

Sent: Þri 02. Nóv 2004 12:17
af gumol
Muna að hafa lýsandi titil :!:

Sent: Þri 02. Nóv 2004 12:26
af AddiBig
Þakka fyrir svörin(var dálítið óðolinnmóður) En ég var búinn að tékka á PIO stillingum og samsunginn er fastur á PIO. Gat ekki breytt því en setti win xp aftur inn og þá bara virkaði þetta allt í einu. Takk fyrir hjálpina samt.(Þið svöruðuð á endanum) :)

Sent: Þri 02. Nóv 2004 16:32
af Stebbi_Johannsson
Það eru gæðamenn hér á vaktinni get ég sagt þér :D

Sent: Þri 02. Nóv 2004 16:51
af llMasterlBll
já..margir hverjir alveg merkilegir... þó það taki þá 2 tíma að finna og lesa póstinn þinn þá leggja þeir það á sig að svara!!!

Sent: Fim 04. Nóv 2004 16:22
af GoDzMacK
Þurfa allir hjálp í byrjun, eða einhvern tímann gæti ég haldið. :roll: