Síða 1 af 1

HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Lau 28. Jún 2014 14:41
af grimurkolbeins
Myndi fólk segja að þessi vél sé virði 70þ kr https://bland.is/til-solu/raftaeki/tolv ... r/2320412/

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Lau 28. Jún 2014 14:52
af MatroX
20-30þús max með ssd disknum

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Lau 28. Jún 2014 15:09
af Tesy
Aldrei 70þ.. Beilaðu á þessu ef hann fer ekki neðar en 35k og endilega bentu seljandan á vaktin.is ef hann kemur með eitthvað ridiculous svar um að þessi tölva sé 70þ virði.

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Lau 28. Jún 2014 15:11
af grimurkolbeins
Það er svoleiðis er ekkert varið í þessa parta? ræður þessi vél við world of warcraft í góðum gæðum?

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Lau 28. Jún 2014 15:13
af Tesy
grimurkolbeins skrifaði:Það er svoleiðis er ekkert varið í þessa parta? ræður þessi vél við world of warcraft í góðum gæðum?


Þessi tölva ræður við WoW í góðum gæði jú en þessir partar eru mjög gamlir og tækjavörur falla í verði mjög hratt.
Svo þarf maður alls ekki öfluga tölvu til þess að spila WoW í góðum gæðum.

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Lau 28. Jún 2014 15:17
af Klemmi
grimurkolbeins skrifaði:Það er svoleiðis er ekkert varið í þessa parta? ræður þessi vél við world of warcraft í góðum gæðum?


Þetta eru ekki góð kaup, eins og menn nefna, ef hann vill selja á 35-40þús þá má skoða það, 70-80þús er rán.

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Lau 28. Jún 2014 15:21
af Tesy
Mobo: ASRock H81 Pro (13.900kr)
CPU: Intel Core i3-4130 (15.800kr)
RAM: Crucial 4GB (1x4GB) DDR3 1600MHz (6.400kr)
HDD: 1TB Seagate SATA3 7200rpm 64MB (9.400kr)
GPU: ASUS Radeon R7 260X 1GB OC (21.900kr)
Kassi: EZ-cool N2-800D (7.500kr)
PSU: Inter-Tech SL Series 700W (7.990kr)

Samtals: 82.890kr

Hérna er það sem ég setti saman fyrir 82.890kr ef þú ert að drífa þig og finnur ekkert notað eða ef þú vilt kaupa alveg nýtt dót.. Þú getur allavegana fengið miklu betri tölvu en þessi inná bland fyrir 70þ ef þú finnur eitthvað notað.

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Lau 28. Jún 2014 15:39
af grimurkolbeins
Okei Já ég var nú reyndar að fara að skipta við hann á 2 desktop gömlum vélum og borga svo 50þ, enn já ég bara virðist ekki finna neitt notað gott .... er einhver með hugmynd á vél fyrir mig ?

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Lau 28. Jún 2014 16:00
af oskar9
grimurkolbeins skrifaði:Okei Já ég var nú reyndar að fara að skipta við hann á 2 desktop gömlum vélum og borga svo 50þ, enn já ég bara virðist ekki finna neitt notað gott .... er einhver með hugmynd á vél fyrir mig ?


Þannig að þú ætlaðir að láta hann fá tvær gamlar vélar og 50 þús og færð eina gamla vél í staðinn.... Sound solid to me :lol:

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Mán 30. Jún 2014 00:43
af FitnessGuru
MatroX skrifaði:20-30þús max með ssd disknum


Hvernig færðu 20-30 þús kr út?

Kassinn er glænýr og kostar 17.990kr í start .is
örgjörvaviftan er glæný og kostar 5000kr í kísildal.
1tb Harði diskurinn er glænýr og kostar 9400kr í start.is
ssd diskurinn er glænýr og kostar 9990kr í start.is
Aflgjafinn er glænýr og kostar 12.995kr í tölvuvirkni

Bara þessir hlutir kosta 55.370kr nýjir og eru nýjir keyptir í síðustu viku og enn í pakkningum því vélin er ekki komin saman.
Hinir hlutirnir eins og Örri = Intel® Core™2 Extreme Processor QX6850 Quad Core, Minni = OCZ 8GB DDR2 800mhz , Skjakort = AMD HD6850 1GB og Móðurborð = Gigabyte GA-P35 DQ6 er hinsvegar notað en í toppstandi.

Það fylgir vélinni 17" skjár,lyklaborð og mús og uppsett styrikerfi + vinna á bakvið vélina.
Það er DVD skrifari í vélinni og allir kaplar eru glænýjir.

+ það fylgir mánaðar ábyrgð því sem er notað og nótur með öllu því sem nýtt er.

HVERNIG FÆRÐU 20-30ÞÚS kr út úr þínum reikningum????

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Mán 30. Jún 2014 01:12
af kax
FitnessGuru skrifaði:og allir kaplar eru glænýjir.



hahaha keyptiru nýja kapla í allt draslið?

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Mán 30. Jún 2014 02:23
af FitnessGuru
Þá er ég að tala um sata snúrurnar inní vélina ;)
Á til helling af hinum snúrunum nýjum líka reyndar.

Ekki eins og þær séu mikils virði en nýtt samt.

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Mán 30. Jún 2014 02:27
af vesley
Án þess að vera leiðinlegur en allt það "nýja" sem þú keyptir í vélina er ekki hlutir sem auka verðgildi tölvunna.

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Mán 30. Jún 2014 02:36
af FitnessGuru
vesley skrifaði:Án þess að vera leiðinlegur en allt það "nýja" sem þú keyptir í vélina er ekki hlutir sem auka verðgildi tölvunna.


Já okey ætlaru þá að verðmeta örran,mobo,minni og skjakort sem X og allt hitt sem nýtt og í raun aðal virði vélarinnar er þá einskiss virði?

Re: HJALP ER AÐ KAUPA TÖLVU!(VERÐLÖGGUR)

Sent: Mán 30. Jún 2014 06:34
af Tesy
FitnessGuru skrifaði:
vesley skrifaði:Án þess að vera leiðinlegur en allt það "nýja" sem þú keyptir í vélina er ekki hlutir sem auka verðgildi tölvunna.


Já okey ætlaru þá að verðmeta örran,mobo,minni og skjakort sem X og allt hitt sem nýtt og í raun aðal virði vélarinnar er þá einskiss virði?


Ok, ég ætla að gera ráð fyrir því að þú ert maðurinn sem er að selja tölvuna á 70þ inná bland eða þekkir hann allavegana mjög vel þar sem þú veist að PSU er nýtt þegar það stóð bara 750W og það stóð ekki AMD 6850 heldur eitthvað gamalt 9800GX2 en þú segir núna 6850.

Segðu mér eitt, Finnst þér sanngjarnt að verðleggja tölvuna með core2extreme og DDR2 (Sem segir að tölvan sé ágætlega gömul) á 70þ þegar ÞESSI TÖLVA er verðlögð á 50þ (sem er rétt) með HAF922, 6850, 8gb DDR3?