Síða 1 af 1
afruglun á breiðbandsstöðvar
Sent: Fös 18. Apr 2003 20:49
af muggs
Ég er ekki með örbylgjuloftnet, en er með breiðbandið gegnum jarðstreng. Þar af leiðandi ruglast Breiðbandsstöðvarnar allt öðru vísi en stöð2 og sýn sem ég á í engum vandræðum með að afrugla með K!TV. Ég er að leita af plugins í K!TV til að afrugla breiðbandsstöðvarnar en enginn árangur. Ef einhver hefur einhver ráð vinsamlegast látið mig vita
Sent: Fös 18. Apr 2003 20:54
af Voffinn
er svona afruglun ólögleg?
veit það einhver?
-ég vill meina að það sé ekki, því, þú getur horft á þetta ruglað í sjónvarpinu, en þeir ráði ekkert hvaða tæki þetta fer í gegnum, ( loftnet->afruglaratölva->sjónvarp)
Er að vonast eftir smá skemmtilegum skoðanaskiptum :0)
Sent: Lau 19. Apr 2003 18:07
af MezzUp
muggs, ertu búinn að reyna eitthvað annað forrit. K!TV ræður kannski bara við sumar decode aðferðir
Voffinn: hmm, sterkur punktur hjá þér. Fyrst að þeir eru að senda þetta út í loftið fyrir alla til þess að sjá ruglað, þá ráða þeir ekkert hvað við gerum við efnið þegar það er komið til okkar. Ég myndi nú samt ekkert segja einvherjum sem að vinnur hjá Stöð2 að ég væri að afrugla með tölvunni :)
Sent: Lau 19. Apr 2003 18:54
af Voffinn
einmitt, og hérna muggs, ég sá hjá vini mínum um daginn, eitthvað svona plugins or sum til að (af)rugla breiðbandið....
Sent: Lau 19. Apr 2003 20:28
af halanegri
sko muggs... breiðbandið afruglast ekkert öðruvísi útaf því að það fer gegnum kapal en ekki loft, heldur einfaldlega vegna þess að þeir(landssíminn eða whatever) ákváðu að nota annan svona "ruglunarbúnað". Þ.e.a.s. það er ruglað á sama hátt þó að þú tengir þetta með loftnetinu.
En allavega, þá er til eitthvað forrit/aðferð eða eitthvað sem heitir Cablecrypt. Ég veit ekki um neitt slíkt plugin fyrir K!TV, en í ExoTV er svona tilraunaútgáfa af því, en það virkar allavega ekki hjá mér. Síðan er til eitt forrit í Linux sem heitir CableTV, það afruglar fullkomlega hjá mér, en allar stöðvar(ekki bara breiðbandsstöðvarnar) flakka einhvern veginn um skjáinn(læsast ekki), s.s. vonlaust að horfa.
Sent: Lau 19. Apr 2003 21:14
af Snorrmund
hvar nær maður i K!TV sko mér finnst þetta soldið snidugt
er hægt að horfa á sýn með essu
Sent: Lau 19. Apr 2003 21:59
af halanegri
http://www.kastortv.com/ sem er á frönsku
ýtir á "Téléchargement" takkann, og síðan á "QuenotteTV_XP" linkinn
Sent: Sun 20. Apr 2003 00:21
af Voffinn
Stocker, en þú veist að þú þarft að vera með sjónvarpskort með bt8x8 kubbasetti.
Sent: Sun 20. Apr 2003 09:04
af elv
Vitið hvaða kort eru með það
Sent: Sun 20. Apr 2003 10:24
af Voffinn
ég er nú með eitt hérna sem er frá 1996...sem er með bt8x8 (878/848) þetta kemur venjulega fram í specunum. annars stendur þetta líka á einum kubbnum á kortinu.
Sent: Sun 20. Apr 2003 11:06
af elv
Var að skoða Msi Tv@nywhere .Sé ekki að það sé með þetta kubbaset.Veistu um einhver kort sem eru í sölu núna.
Sent: Sun 20. Apr 2003 11:13
af Voffinn
nei, því miður, ég reddaði mér mínu frá kunningja...
en sko, núna fór ég á computer.is og þar er
þetta kort, SJÓNVARPSKORT - JETWAY TV 878 MPEG fyrir PAL BG kerfið
ég býst sterklega við að þetta 878 í nafninu sé bt878, hringdu í þá á morgun (ef það er opið) eða bara þá á þriðjudaginn. Annars er þetta kort alveg skuggalega líkt mínu korti, nema það heitir "Hauppauge"
Vonandi hefur þetta hjálpað þér eitthvað... það er bara að hringja í þessa náunga og spurja....
Sent: Sun 20. Apr 2003 11:58
af halanegri
til að geta notar K!TV / ExoTV / BorgTV / eða einhver þessa forrita þarf kubbasettið að vera annað hvort Bt848, Bt849, Bt878 eða Bt879.
Sent: Sun 20. Apr 2003 13:46
af MezzUp
tölvuvirkni er að selja [url=http://tolvuvirkni.net/pw?inc=view&flo=product&id_top=301&id_sub=324&topl=10&page=1&viewsing=ok&head_topnav=SJO_ PCTV Rave]þetta[/url] og
þetta kort sem að eru með CN878 chipsettinu sem að á að vera það sama og BT878
Sent: Sun 20. Apr 2003 13:59
af elv
Fór á síðuna hjá k!tv var skoða screenshot og þar er svona suð í myndinni svona eins og hálfruglað.Er þetta svona hjá ykkur líka
Sent: Mán 21. Apr 2003 19:04
af halanegri
MezzUp skrifaði:tölvuvirkni er að selja [url=http://tolvuvirkni.net/pw?inc=view&flo=product&id_top=301&id_sub=324&topl=10&page=1&viewsing=ok&head_topnav=SJO_ PCTV Rave]þetta[/url] og
þetta kort sem að eru með CN878 chipsettinu sem að á að vera það sama og BT878
amm, Connexant(CN) eiga þessi sett núna.
Sent: Mán 01. Sep 2003 16:52
af Pittur
jæja, en vitið þið um eitthvað plugin til að afrugla breiðbandið?
afrugla á breiðbandinu
Sent: Mán 29. Des 2003 23:06
af Spudi
1www
Sent: Þri 30. Des 2003 23:20
af Bendill
Bara svona til minnis, gáfað væri að útvega sér upplýsingar um hvort þetta sé löglegt eða ekki. Ég veit að það hafa nokkrir fengið háar fjársektir fyrir að framleiða svokallaða "sjóræningjalykla" sem eru hakkaðir myndlyklar... Þetta myndi falla undir sama flokk held ég. Ekki það að ég sé útsendari Norðurljósa, ég vill bara ekki sjá saklaust fikt enda í einhverju ljótu
Þau fyrirtæki sem eru að veita þessa þjónustu geta skaffað einhverskonar "disclaimer" sem myndi varpa ljósi á þessar spurningar.
En svona á öðrum nótum, ég eltist við þetta fyrir nokkrum árum og náði að koma bt848 korti upp í Linux með afruglun, það kom svart hvítt en var samt í stakasta lagi
Ég mæli sterklega með því að nota Linux í þetta, það gat allavega varpað full-screen mynd án þess að setja álag á örgjörvann. Það getur Windows ekki, allavega ekki þegar ég reyndi, tölvan mín drapst bara
Sent: Mið 31. Des 2003 09:04
af ICM
bendill það er ekkert mál að vera með full screen á sjónvarpi og hafa skjáin lausan til að vera t.d. á netinu, þú átt bara að breya priorities eins oft og þú þarft, ef þú setur þetta á high þá verður auðvitað erfitt að vera í öðrum forritum.
Sent: Fös 02. Jan 2004 11:44
af Bendill
IceCaveman skrifaði:bendill það er ekkert mál að vera með full screen á sjónvarpi og hafa skjáin lausan til að vera t.d. á netinu, þú átt bara að breya priorities eins oft og þú þarft, ef þú setur þetta á high þá verður auðvitað erfitt að vera í öðrum forritum.
Samt miklu betra að vera með þetta í Linux!!!!
neinei, smá spaug... Ég reyndi þetta fyrir 2 árum á gömlu BP6'unni
Var örugglega með einhvern lélegan kóða