Síða 1 af 1

Nas Flakkari hvaða tegund

Sent: Sun 18. Maí 2014 23:43
af Farcry
Mig vantar Nas flakkara hvað er sniðugt að kaupa. Þarf að taka lágmark 2 diska (8Tb), streyma efni i xbmc tölvu
Helst sem ódýrast 30-40 þúsund get farið aðeins hærra ef ég þarf.

Fyrirfram þökk.

Re: Nas Flakkari hvaða tegund

Sent: Sun 18. Maí 2014 23:46
af lukkuláki
Farcry skrifaði:Mig vantar Nas flakkara hvað er sniðugt að kaupa. Þarf að taka lágmark 2 diska (8Tb), streyma efni i xbmc tölvu
Helst sem ódýrast 30-40 þúsund get farið aðeins hærra ef ég þarf.

Fyrirfram þökk.


Algjör snilld
http://www.netverslun.is/Verslun/produc ... 18723.aspx

Re: Nas Flakkari hvaða tegund

Sent: Mán 19. Maí 2014 13:20
af coldone
Ódýrari í Start

START

Re: Nas Flakkari hvaða tegund

Sent: Mán 19. Maí 2014 15:09
af Farcry
Takk, fór í morgun og keypti niðri í nýherja (Synology Diskstation DS-213j) . 4-7 daga bið hjá start. er ekki þolinmóður :)

Á ég ekki að geta tengt usb flakkara við boxið (verð reyndar með 2x4Tb diska í) eins prentara og þá á það að deilast á netinu hjá mér ? .

Er boxið ekki með sitt skráa kerfi ég get ekki bara tekið diskana sem eru formataðir HFS+ Apple og skellt í boxið ?

Re: Nas Flakkari hvaða tegund

Sent: Mán 19. Maí 2014 15:12
af robakri
ættirðu ekki að spyrja að þessu áður en þú ferð og verslar þér 45 þúsund króna tæki eftir ein meðmæli?

Re: Nas Flakkari hvaða tegund

Sent: Mán 19. Maí 2014 15:22
af Farcry
Var nú reyndar buin að lesa mörg góð review á netinu, var bara ekki viss með usb flakkaran því boxið tekur 8tb max, svo hef ég ekki átt nas flakkara áður þannig að ég þekki ekki skráar formatið, Svo stendur á kassanum print server þannig að það er leyst

Re: Nas Flakkari hvaða tegund

Sent: Mán 19. Maí 2014 15:45
af robakri
:)

ég veit ég var leiðinlegur, mér fannst þetta bara svo fyndið, þeas að þú værir búinn að kaupa græjuna og þér lá svona á og síðan dældust bara inn spurningarnar eins og þú hefðir ekki nokkra hugmynd um hvað þú værir með í höndunum :D

þetta er allt gott og gilt, ég ætla reyndar að svekkja þig með því að tilkynna þér það að ég var algjörlega að vera ekkert nema leiðinlegur þar sem ég get bara ekkert aðstoðað þig við þetta :)

Re: Nas Flakkari hvaða tegund

Sent: Mán 19. Maí 2014 16:53
af slapi
Jú þú getur tengt usb flakkara við hann

Re: Nas Flakkari hvaða tegund

Sent: Mán 19. Maí 2014 19:29
af lukkuláki
Mæli með því að glugga vel í bæklinginn sem fylgir og kynna sér hann vel.

Re: Nas Flakkari hvaða tegund

Sent: Mán 19. Maí 2014 21:06
af slapi
Á svona 4 diska Synology , hugbúnaðurinn er mjög góður og Synology er með höfuð og herðar yfir aðra NAS menn þar.
Einnig er lítið mál að setja upp plex media server , sickbeard , sabnzb oþh