Síða 1 af 1

Fyrirspurn varðandi skjákaup !

Sent: Sun 16. Mar 2014 19:19
af smb111
Góða kvöldið, ég ætla að byrja á því að þakka fyrir alla þessa hjálp sem ég hef fengið héðan frá ykkur notendum og stjórnendum. Frábært viðmót hérna á þessu spjallkerfi :happy !

En núna er aftur á móti komið að því eftir að maður hefur fjárfest í nýrri vél, að maður þurfi að fá sér almennilegan skjá ! Ég beini hér með spurningu minni til ykkar kæru notendur \:D/ ?

Er með svona skjákort: (MSI GeForce 760GTX TF) http://att.is/product/msi-geforce-760gt ... 85mhz-core

það sem ég var að spá sökum þess að ég hef verið að skoða 24" skjái á netinu og það er örsjaldan þar sem að það er boðið uppá HDMI tengingu í skjáinn sjálfan ?
Eru alveg sömu gæði t.d. ef maður myndi versla 24" Full-HD Tölvuskjá með DVI/VGA tengi eins og ef ég myndi hafa HDMI snúru frá skjákorti með VGA/DVI tengi uppí skjáinn sjálfan og spila leiki og annað slíkt ? Myndi það skila sér í sömu gæðum í keyrslu á leikjum (HDMI - DVI/VGA) eins og (HDMI - HDMI) ?

Var að spá einhvað í þessum skjá; http://www.start.is/index.php?route=pro ... duct_id=52 langar bara að vita hvernig þetta virkar alltsaman :megasmile

Með fyrirfram þökkum;
SMB111

Re: Fyrirspurn varðandi skjákaup !

Sent: Sun 16. Mar 2014 19:46
af SolidFeather
Tengdu allt klabbið DVI-tengi.

Re: Fyrirspurn varðandi skjákaup !

Sent: Sun 16. Mar 2014 20:00
af smb111
.

Re: Fyrirspurn varðandi skjákaup !

Sent: Sun 16. Mar 2014 20:01
af smb111
SolidFeather skrifaði:Tengdu allt klabbið DVI-tengi.


Ef allt yrði DVI tengt hjá mér myndi það samt sem áður skila sömu gæðum eins og ef ég myndi fá mér skjá með HDMI tengi þeas. HDMI - HDMI tengt ?

Re: Fyrirspurn varðandi skjákaup !

Sent: Sun 16. Mar 2014 20:02
af SolidFeather
smb111 skrifaði:
SolidFeather skrifaði:Tengdu allt klabbið DVI-tengi.


Ef allt yrði DVI tengt hjá mér myndi það samt sem áður skila sömu gæðum eins og ef ég myndi fá mér skjá með HDMI tengi þeas. HDMI - HDMI tengt ?



Bæði tengin eru digital - sérð engan mun. Ég er ekki svo viss um að þú myndir einu sinni sjá mun á VGA og HDMI.

Re: Fyrirspurn varðandi skjákaup !

Sent: Sun 16. Mar 2014 20:03
af Gunnar
HDMI/DVI er sama signal nema HDMI flytur hljóð líka.

Re: Fyrirspurn varðandi skjákaup !

Sent: Sun 16. Mar 2014 20:33
af MrSparklez
SolidFeather skrifaði:
smb111 skrifaði:
SolidFeather skrifaði:Tengdu allt klabbið DVI-tengi.


Ef allt yrði DVI tengt hjá mér myndi það samt sem áður skila sömu gæðum eins og ef ég myndi fá mér skjá með HDMI tengi þeas. HDMI - HDMI tengt ?



Bæði tengin eru digital - sérð engan mun. Ég er ekki svo viss um að þú myndir einu sinni sjá mun á VGA og HDMI.

Ég er með sama skjá og hann er að fara að kaupa, notaði vga kapalinn sem fylgdi í um það bil tvo mánuði, fékk mér svo dvi snúru, það breytti alveg miklu, allt varð meira crisp og svona.

Re: Fyrirspurn varðandi skjákaup !

Sent: Mán 17. Mar 2014 05:31
af Hnykill
http://tolvutek.is/vara/benq-xl4211z-24 ... ar-svartur

Ef þér er alvara ! ... rústar öllu því sem að þú kallar skjár.. þetta er toppurinn "

Re: Fyrirspurn varðandi skjákaup !

Sent: Mán 17. Mar 2014 05:36
af Viktor
smb111 skrifaði:ef maður myndi versla 24" Full-HD Tölvuskjá með DVI/VGA tengi eins og ef ég myndi hafa HDMI snúru frá skjákorti með VGA/DVI tengi uppí skjáinn sjálfan og spila leiki og annað slíkt ? Myndi það skila sér í sömu gæðum í keyrslu á leikjum (HDMI - DVI/VGA) eins og (HDMI - HDMI) ?1


Já. Ekki nota VGA samt ;)

Re: Fyrirspurn varðandi skjákaup !

Sent: Mán 17. Mar 2014 16:56
af smb111
Heyrðu frábært, Takk fyrir skjót svör ! Þá verð ég allavega ekki í neinu veseni við að fjárfesta í skjá lengur ;)..