Síða 1 af 1

Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 12:43
af dabbi2000
ég er með P5Q SE
[url]https://www.asus.com/Motherboards/P5Q_SE/#specifications[/url]

og Core 2 Duo E8400 á því sem var öflugur á sínum tíma en allt of lengi að render-a video og því kominn tími á uppfærslu sbr.
http://www.cpubenchmark.net/cpu.php?cpu ... GHz&id=955

Ég er að hugsa um nýjan CPU á bilinu 25-30þ en þarf ég þá ekki að fara upp í nýjasta Socket 1150 og þar með nýtt móðurborð og minni líka (úr DDR2 í DDR3)?

Eða get ég gert þetta e-n veginn öðruvísi?

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 12:57
af dabbi2000
Annað - ég er með fantagott Nvidia skjákort, spara ég mér eitthvað á því að skoða bara Intel CPU sem eru ekki með innbyggðan GPU - eða er það bara klink í stóra samhenginu?

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 14:31
af arons4
Flestir eða ekki allir örgjörvar hafa innbyggðan skjákjarna, en sum móðurborðs chipset virkja hann ekki(P67 tildæmis).

En geturðu bara ekki renderað með skjákortinu?

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 14:36
af dabbi2000
jú jú, bara að spá hvort ég sé að borga óþarfa þúsundkalla fyrir þennan fídus þegar ég er þegar með gott skjákort

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 15:17
af nidur
Er ekki kominn tími á að uppfæra allt, er þetta ekki 4 ára gömul vél.

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 15:19
af dabbi2000
Móðurborðið bara 3ja en vélin er aöl. eldsnögg með SSD og Linux (5sek boot tími td) - það er bara í video rendering sem mig vantar meiri hraða. Þess vegna kannski sniðugara að fá hraðari CPU bara og bíða með hitt en ég veit ekki hversu langt ég kemst með socket 775

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 16:23
af viddi
Gætir reynt að finna Q9650 örgjörva

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 18:13
af dabbi2000
já það er pæling, hann er samt hrikalega dýr fyrir að ná ekki nema 2x afköstum á við E8400

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 18:16
af kizi86
hvernig skjákort ertu með annars?

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 18:55
af dabbi2000
GTX 560 (Gigabyte)

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Sun 16. Feb 2014 18:56
af audiophile
Eina vitið að uppfæra örgjörva+móðurborð+minni í allavega i5 Haswell.

Re: Uppfæra MB + CPU + RAM eða bara CPU?

Sent: Mán 17. Feb 2014 08:35
af dabbi2000
Sýnist allt stefna í það já!