Síða 1 af 1
Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Mið 12. Feb 2014 21:05
af karvel
Er með tveggja diska NAS og vantar ráðleggingar hvaða diskar væru bestir í þess háttar uppsetningu. Nú sé ég að fyrirtækin eru að auglýsa sérhannaða diska sem eru sérstaklega ætlaðir til NAS brúks. Ég hafði hugsað mér að byrja með 4TB disk og bæta síðan við öðrum samskonar þegar þörf krefur. Hvort á ég að kaupa Seagate ST4000VN000, 4TB, SATA3, 5900rpm, 64MB eða Western Digital Red WD40EFRX 4TB IntelliPower SATA3/SATA 6.0 GB/s 64MB? Ef einhver getur ráðlagt mér væri það vel þegið
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Mið 12. Feb 2014 21:19
af Nacos
Þar sem það er komin lítil sem engin reynsla á þessa diska þá er ómögulegt að segja hvor er betri.
Hér er samanburðar grein á diskunum:
http://www.tweaktown.com/articles/5790/ ... index.htmlÉg persónulega myndi taka IntelliPower diska fram yfir constant rpm vegna þess að mig grunar að þeir eigi eftir að endast betur. En ég hef ekkert concreat fyrir mér í þeim málum.
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Mið 12. Feb 2014 21:25
af gnarr
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Mið 12. Feb 2014 21:30
af GuðjónR
WD RED ... ekki spurning!
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Mið 12. Feb 2014 22:43
af Tiger
Ég er með 5stk af WD Red 3TB í Drobo hjá mér, ekki komin löng reynsla svo sem, en so far so good.
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Fim 13. Feb 2014 08:46
af nidur
Ég myndi taka WD Red og passa að wdidle sé ekki 8 sec á honum, breyta því í 300 sec.
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Fös 14. Feb 2014 10:04
af andribolla
Mér fynst nú bara vera svo mikill verðmunur á þessum tvem diskum þessvegna myndi ég frekar fara í Seagate ....
4tb Seagate 5900RPM 64MB
25.990 kr http://www.start.is/index.php?route=product/product&path=25_76_77&product_id=103Western Digital 4 TB RED
42.900 kr http://www.computer.is/vorur/1330/Gerði smá útreikninga miðað við 4 diska í Raid 5
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Fös 14. Feb 2014 13:06
af Nacos
Seagate ST4000
VN000 og ST4000
DM000 eru langt frá því að vera sambærilegir diskar.
ST4000VN000 sýnist mér vera dýrari en WD RED samanber:
http://tl.is/search/ST4000VN000 og
http://www.tolvutek.is/leita/ST4000VN000
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Fös 14. Feb 2014 20:57
af karvel
Ég þakka svörin og ráðleggingarnar.
Sammála Nacos, langt í frá sambærilegir diskar, reynsla, dómar og ráðleggingar benda eindregið á WD Red
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Fös 14. Feb 2014 21:10
af Hjaltiatla
Flottar pælingar @karvel
Er sjálfur að spá í Nas boxi frá Ix systems og var einmitt að hugleiða hvaða diska maður ætti að taka í þetta box:
http://www.ixsystems.com/mini/
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Fös 14. Feb 2014 21:38
af GuðjónR
Keypti mér
TimeCapsule fyrir tveimur árum síðan, fyrir rúmu ári þegar WD Red voru komnir á markað hérlendis þá tók ég Seagate diskinn úr (1TB) og setti 2TB WD Red í staðinn, auðvitað kostaði hann mun meira en sambærilegur Seagate en hvers virði eru gögnin mín sem ég er að taka backup af?
Ég myndi ekki eyða í WD Red ef ég væri að geyma torrent dót eða eitthvað sem skiptir engu máli, en ef gögnin skipta máli þá skiptir máli að vera með gagnageymslu sem þú getur treyst. Missti Seagate 2.5" diskinn úr lappanum, fékk nýjan þar sem hann var í ábyrgð og sá diskur dó líka nokkrum mánuðum síðar. Setti SSD í lappann og þriðja "ábyrgðardiskinn" í flakkara þar sem hann mun örugglega deyja áður ein langt um líður.
Re: Seagate eða Western Digital HDD í NAS?
Sent: Fös 14. Feb 2014 22:16
af Hjaltiatla
@Guðjónr
ég myndi hugleiða líka hvaða nas device þú ert að kaupa