Síða 1 af 1

Hugleiðingar við kaup á minni

Sent: Þri 12. Okt 2004 22:50
af Milz
Ég hef verið að pæla í að fjárfesta í minni þá 512 mb. Ég er með 2 minni fyrir og 1 slot laust. Það sem ég vil fá að vita er hvernig tegund af minni ætti ég að kaupa? þarf ég eitthvað að taka tillit til vinnsluminnninsem ég er með
fyrir? og hvað merkir þetta (333) fyrir aftan minnin?

Sent: Þri 12. Okt 2004 23:24
af noizer
og hvað merkir þetta (333) fyrir aftan minnin?

333 Mhz myndi ég nú halda og ef þú ætlar að fá þér annað minni þá best hafa það sama MHz og hin

Sent: Þri 12. Okt 2004 23:31
af Mysingur
Scrapper skrifaði:
og hvað merkir þetta (333) fyrir aftan minnin?

333 Mhz myndi ég nú halda og ef þú ætlar að fá þér annað minni þá best hafa það sama MHz og hin

Reyndar er það 166MHz, DDR333 eða PC2700 :megasmile

Sent: Þri 12. Okt 2004 23:38
af noizer
Hef greinilega ekki eins mikla tölvuþekkingu og þið hinir en ég er nú að nota vaktina til að læra meira á tölvur :sleezyjoe

Sent: Mið 13. Okt 2004 13:40
af Milz
hvernig getur maður séð hvað kortið manns er mörg mhz?

Sent: Mið 13. Okt 2004 14:01
af Stutturdreki
Milz skrifaði:hvernig getur maður séð hvað kortið manns er mörg mhz?


Kort? Hvaða kort?

Ef þú ert að tala um minni, þá virkar það einhvern vegin svona.. þú deilir með tveimur í töluna sem stendur fyrir aftan DDR. Td. DDR333 = 166mhz, DDR433 = 217mhz.. Ef memory multiplyer/divider er 2..

Segir reyndar kannski meira um hver FSB hraðinn er.. en það þarf náttúrulega að taka tillit til memory multiplier/divider..

Sent: Mið 13. Okt 2004 22:39
af MezzUp
Scrapper skrifaði:Hef greinilega ekki eins mikla tölvuþekkingu og þið hinir en ég er nú að nota vaktina til að læra meira á tölvur :sleezyjoe

Þá skaltu endilega skoða FAQ safnið þar sem m.a. er fjallað um vinnsluminni.

Stutturdreki skrifaði:....... Ef memory multiplyer/divider er 2........

Skil ekki alveg hvað þú ert að fara þarna. Það er alltaf margfaldað/deilt með 2 vegna þess að Dual Data Rate minni flytur tvöfalt fleiri gögn á hverju Mhz'i

Sent: Fim 14. Okt 2004 10:18
af Stutturdreki
Æji er að rugla saman við BIOS stillingarnar á divider/multiplier :).. þannig seturðu FSB en deilir náttúrulega alltaf með 2 í FSB til að fá út Mhz..

Sent: Fim 14. Okt 2004 16:48
af MezzUp
Stutturdreki skrifaði:Æji er að rugla saman við BIOS stillingarnar á divider/multiplier :)
heh, grunaði það :)
Stutturdreki skrifaði:þannig seturðu FSB en deilir náttúrulega alltaf með 2 í FSB til að fá út Mhz..
en þarna týndirru mér aftur, ef að þú ert með Quad-Pumped FSB einsog mörg Pentium móðurborð þá deilirðu FSB með 4 til að fá út MHz