Síða 1 af 1
G15 viðgerð ?
Sent: Sun 12. Jan 2014 23:34
af Viktor
Sælir.
Það helltist hvítvín á G15 lyklaborðið mitt svo ef ég reyni að stroka út kemur 0, og svo eru ýmsir fleiri gallar.
Er hægt að baða það til þess að það verði aftur eins og það á að vera, eða er það ónýtt? Það væri ferlegt.
Re: G15 viðgerð ?
Sent: Mán 13. Jan 2014 00:01
af upg8
Reyndu að fá t.d. isopropyl eða annað samskonar alkóhól, þeim sterkara þeim betra, helst jafnvel 99% ef þú finnur það. Það er mjög gott að þrífa með því þar sem það leiðir ekki rafmagn ef það er hreint og er mjög fljótt að þorna. Farðu samt varlega í kringum LCD skjáinn á lyklaborðinu og aðra sérstaklega viðkvæma hluti, hef þó ekki skoðað hvernig G15 er innan-klæða.
Annars þá gæti baðvatnið dugað en það er miklu lengur að þorna og þú ert ekki eins öruggur með það hversu hreint það er.
Re: G15 viðgerð ?
Sent: Sun 19. Jan 2014 12:56
af upg8
Eitthvað að frétta af lyklaborðinu?
Re: G15 viðgerð ?
Sent: Sun 19. Jan 2014 12:58
af Viktor
Heyrðu nei, náði mér í annað borð, hef ekki ennþá nennt að skrúfa það í sundur
Myndi skjóta á að hvítvínið sé að leiða saman einhverjar rásir þarna á bakvið, ætla að prufa alkóhól
Re: G15 viðgerð ?
Sent: Sun 19. Jan 2014 13:02
af upg8
Re: G15 viðgerð ?
Sent: Sun 19. Jan 2014 14:30
af Gúrú
Það er ekkert mál að taka G15 í sundur og setja það saman, hef eflaust gert það svona 30-40 sinnum núna og átt 4-5 G15 í röð.
Það eru gúmmílög þarna undir sem taka á móti öllum skipununum og þú þrífur þau bara í vaski eða baðkari og þurrkar þau og lætur saman aftur.
Ekki baða það í heilu lagi.
Re: G15 viðgerð ?
Sent: Sun 19. Jan 2014 15:47
af Black
Gúrú skrifaði:Það er ekkert mál að taka G15 í sundur og setja það saman, hef eflaust gert það svona 30-40 sinnum núna og átt 4-5 G15 í röð.
Það eru gúmmílög þarna undir sem taka á móti öllum skipununum og þú þrífur þau bara í vaski eða baðkari og þurrkar þau og lætur saman aftur.
Ekki baða það í heilu lagi.
ég er búinn að eiga nokkur g15,nokkur sem var búið að hella gosi yfir ég hef bara verið rífa þau í sundur og setja þau í uppþvottavélina
Re: G15 viðgerð ?
Sent: Sun 19. Jan 2014 15:57
af Páll
ég átti einu sinni g15 og ég fór bara með það í sund