Síða 1 af 1

Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Þri 07. Jan 2014 21:00
af karlth
Er einhver aðili hérna á Íslandi sem sérhæfir sig í þannig vélum? Þarf að uppfæra í hljóðláta en mjög kraftmikla vél.

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Þri 07. Jan 2014 22:52
af upg8
Er ekki best að setja eitthvað saman sjálfur? vaktin.is er full af fólki til að ráðleggja þér ef þú kemur með verð og hvað þú ætlar að nota tölvuna í ;)

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Þri 07. Jan 2014 23:14
af littli-Jake
Fáðu þér Antec-Pxxx kassa og 3 Tacens Aura II 120mm kæliviftur. Síðan geturu skóflað eins öflugum vélbúnaði og þú vilt inn í þetta.

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Þri 07. Jan 2014 23:35
af demaNtur
b16a4 getur verið mjög hljóðlát og smá kraftur í henni.. :fly

Annars hvernig "vél" ertu að tala um félagi?

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 00:57
af littli-Jake
demaNtur skrifaði:b16a4 getur verið mjög hljóðlát og smá kraftur í henni.. :fly

Annars hvernig "vél" ertu að tala um félagi?

Pifff. EJ257 með VF-35. Þá erum við að tala saman

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 01:33
af Hnykill
þetta fer bara eftir kassanum og kassaviftum.. ef þú vilt það besta þá mæli ég með

Thermaltake Armor Revo
http://www.tolvutek.is/vara/thermaltake ... si-svartur

Það eru það stórar viftur að dæla lofti inn og út að þær búa ekki til það mikinn hávaða.. stærri viftur er = minni hávaði ;)

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 01:52
af littli-Jake
Hnykill skrifaði:þetta fer bara eftir kassanum og kassaviftum.. ef þú vilt það besta þá mæli ég með

Thermaltake Armor Revo
http://www.tolvutek.is/vara/thermaltake ... si-svartur

Það eru það stórar viftur að dæla lofti inn og út að þær búa ekki til það mikinn hávaða.. stærri viftur er = minni hávaði ;)

Og hvað með hávaðann frá CPU og GPU kælingunnu? kæliviftunni í aflgjafanum? Þessi kassi er bara netabúr. Sé reyndar alveg fyrir mér að það væri gaman að græja vatnskælingu í hann er þetta ekki rétti kassinn fyrir Silent buld
(Fyrir utan að mér finst hann ljótur)

Ef þú ætlar að bulda silent þá viltu þetta http://www.youtube.com/watch?feature=pl ... tDf8#t=142 Kostar meira að seigja minna en Armor.
Eitt sem ég sé að kassanum er að skrúfurnar eru ekki svartar og ég sakna spolersins sem er á P-180. Finst hann setja svaka svip á kassann

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 09:56
af MuGGz

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 10:10
af playman
littli-Jake skrifaði:

Ég er með þennan armor kassa og er bara helvíti ánægður með hann og er með líka Thermaltake SpinQ VT örgjörvakælingu, og
settuppið var rosalega hljóðlátt, það var ekki fyrr en að ég setti 7970GHz kortið í hana að ég fór að heyra eitthvað að ráði í henni.
Það er rétt að hann er soldið opin, og ef þú ert með hávært kort þá kemur það aðeins í gegn, en þegar að maður er að spila leiki eða
hlusta á tónlist þá verður maður ekkert var við það.
En þetta er líka flottur turn fyrir vatnskælingar, nóg af plássi í honum.

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 10:34
af Tiger
Nýju Mac Pro :)

Mynd

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 12:26
af Hvati

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 12:34
af valdij
http://www.tolvutek.is/vara/antec-p280- ... ur-svartur

Ég var í sömu hugleiðingum og þú, endaði að fá mér þennan kassa og gæti ekki verið ánægðari.

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 13:00
af krat
karlth skrifaði:Er einhver aðili hérna á Íslandi sem sérhæfir sig í þannig vélum? Þarf að uppfæra í hljóðláta en mjög kraftmikla vél.

hentu tölvunni bara í geymsluna eða bílskúr og þræddu 3x eithernet kapla í herbergið hjá þér 2x fyrir HDMI og 1x fyrir USB

http://lifehacker.com/5918457/hdmi-over ... aves-money
http://www.usbgear.com/images/USBNET-400.jpg

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 13:34
af chaplin
Nákvæmlega sama pæling og ég hef í huga þegar ég er að versla mér tölvur.

Þú getur sent póst á hvaða verslun sem er og beðið um tilboð í slíka vél, þær alment kostar meira því þú ert að fara í dýrari turn og kælingar.

Tölvan sem ég er með í undirskrift keypti ég hjá Tölvutækni, turninn sem ég nota er Antec P183 með engum turnviftum, Noctua NH-D14 kælir örgjörvann og eingöngu með eina viftu í gangi á low (um 200-400 rpm). Heyrist í raun ekkert í tölvunni nema það sé algjört hljóð í herberginu.

Ef þú vilt hinsvegar fara extreme leiðina eins og Klemmi hjá Tölvutækni gerði, að þá keyrir hann tölvuna með ekki einni einustu viftu. Af því sem ég best veit heyrist nákvæmlega ekkert í tölvunni. Þú þarft almennt að fórna smá afli fyrir slíkt verkefni, hugsa að öflugast örgjörvinn sem þú kemst í sé i3 og mid-range skjákort. Þú getur svo fengið þér 500W viftulausan aflgjafa eða ef þú vilt eiga möguleika á öflugra skjákorti gætir þú farið í AX760 og farið í skjákort með Windforce kælingu eins og GTX780. Orðið dálítið dýrt en eins og ég tók fram hér að ofan, þú borgar premium verð fyrir þessi skilyrði. :happy

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 17:09
af littli-Jake

Djöfull líst mér vel á þennan. Er reyndar ekki hrifinn af því að usb tengin vísi upp. Á eftir að fillast af riki og síðan finst mér hönnunin á viftunum að framan ekki skinsamleg. Define hefur hinsvegar vinning með það að þeir eru með viftustýringuna frmaná ( hef aldrei skilið afhverju Antec eru með hana að aftan og að þú getur fjarlægt HDD búrin. Er svoltið ósáttur með Antec að hafa hætt með það. Væri virkilega til í að skoða svona kassa með setupi og heira hversu hljóðláttur hann er í raun og veru.

Re: Hljóðlátar en kraftmiklar vélar?

Sent: Mið 08. Jan 2014 17:38
af MuGGz
littli-Jake skrifaði:

Djöfull líst mér vel á þennan. Er reyndar ekki hrifinn af því að usb tengin vísi upp. Á eftir að fillast af riki og síðan finst mér hönnunin á viftunum að framan ekki skinsamleg. Define hefur hinsvegar vinning með það að þeir eru með viftustýringuna frmaná ( hef aldrei skilið afhverju Antec eru með hana að aftan og að þú getur fjarlægt HDD búrin. Er svoltið ósáttur með Antec að hafa hætt með það. Væri virkilega til í að skoða svona kassa með setupi og heira hversu hljóðláttur hann er í raun og veru.

Ekki mikið mál að ryksuga þessi usb tengi annað slagið og halda þeim hreinum

Annars er fullt á netinu með þessum kassa :)