Síða 1 af 1

Mús virkar ekki, en bara á Facebook

Sent: Þri 03. Des 2013 00:28
af bobbson
Sælinú

Veit ekki hvort ég á að pósta þessu hér, en músin fúnkerar ekki á efsta hluta til vinstri á skjáborðinu. Bendillinn fer á staðinn en ekki er hægt að smella á neitt. Skrítna er að þetta gerist bara á Facbook-síðum.

Búið að vera svona í nokkra daga núna og pirrar mig. Ég skil ekkert í þessu. Veit einhver hvað gæti verið málið?

Re: Mús virkar ekki, en bara á Facebook

Sent: Þri 03. Des 2013 00:40
af Gúrú
Ýttu á CTRL+0 til að fá 100% (eðlilega) zoom-ið.

Hljómar eins og að það sé einhvert stillingaratriði sem á við um Facebook (Add-on/extension eða zoom)
sem gerir það að verkum að það er eitthvað ósmellanlegt að fara yfir allt sem er klikkanlegt.

Ef þú skiptir um vafra gerist þetta ekki, er það?

Re: Mús virkar ekki, en bara á Facebook

Sent: Þri 03. Des 2013 01:12
af bobbson
Sæll

Þetta gerist bara í Chrome, allt eðlilegt í Firefox. Ctr+0 virkaði ekki.

Dauða svæðið er rönd efst vinstra megin. Hún þekur 25% af breidd skjásins en er bara 2-3 cm á hæð. Þar er ekki hægt að smella á neitt. En bara á Facebook-síðum. Þetta er flippað :D

Re: Mús virkar ekki, en bara á Facebook

Sent: Þri 03. Des 2013 01:18
af bobbson
Ef ég dreg músina upp skyggist svæðið, en það er ekkert þar :wtf

Mynd

Re: Mús virkar ekki, en bara á Facebook

Sent: Þri 03. Des 2013 01:57
af Viktor
Uninstall > Install?