Síða 1 af 1
Hvernig mp3 spilarar á maður að fá sér?
Sent: Fös 01. Okt 2004 18:50
af Milz
Er að pæla í að fjárfesta í einum slíkum. En hvernig ætti maður að kaupa sér? Ég vil helst ekki hafa hann of dýran svona um 15 þús og ég þarf bara annað hvort 128 mb og 256 mb.
En er hægt að kaupa mp3 með hleðslu batterýi eins og ipod-arnir.
Ég var að pæla í þessum hérna
http://bt.is/BT/Raftaeki/Hljomtaeki/Fer ... pilari.htm
Borgar sig eitthvað að panta þetta frá útlöndum? er maður eitthvað að græða á því?
Vil helst hafa skjá á honum....
Sent: Lau 02. Okt 2004 12:17
af ICM
http://computer.is/vorur/4607
Capable of Auto Sync with Windows media Player 10
Sent: Lau 02. Okt 2004 12:30
af MezzUp
það er nýbúinn að vera þráður um MP3(DAP
) spilara minnir mig
Sent: Lau 02. Okt 2004 21:20
af mazo
fá sér bara iPod reyndar rándýr hér á landi....en ef einhver sem þú þekkjir er að fara til usa bráðum láta hann eða hana kaupa einn þannig fyrir þig á uþb 25þús kr isl...
Sent: Lau 02. Okt 2004 21:43
af Birkir
mazo... það munar þá ekki nema 5k.
http://www.dutyfree.is versla þetta bara þar.
Sent: Lau 02. Okt 2004 23:14
af MezzUp
þú veist að þú þarft að fara til útlanda til þess að versla í Fríhöfninni?
Sent: Sun 03. Okt 2004 00:17
af Birkir
jahh.. tók eftir því
Sent: Sun 03. Okt 2004 22:39
af Milz
en ég þarf ekkert svona stórann eins og Ipod er. Mér finnst hann óþarflegur stór líka í laginu. En er hægt að fá svona mp3 spila sem eru svona 256 mb með hleðslubatterý?
Sent: Sun 03. Okt 2004 22:44
af Snorrmund
getur bara keypt þér hleðslubatterí.. þá geturu líka notað venjuleg ef að þú týnir hinum eða gleymir.. eða bara öll "dauð"
Sent: Mán 04. Okt 2004 15:53
af sikki
ég mundi bara bíða eftir að 512 mb mp3 spilarnarnir koma hingað til lands.
keypti mér einn svoleiðis uti dk nuna í sumar, Hefur einhver séð þetta hér á isl *?
Sent: Mán 04. Okt 2004 16:29
af Snorrmund
uss þú verður að gefa mér eitt þannig stykki þegar þú kemur úr usa..
hvenær ferðu annars aftur