Síða 1 af 1
AMD X8 FX-8320
Sent: Fös 01. Nóv 2013 05:39
af Zimbi
Vantar smá hjálp hér, er búinn að vera að vesenast í google-inu en fann ekkert....
Var að spá hvernig þessi X8 FX-8320
http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_28_209&products_id=8217 örgjafi myndi ganga á þessu móðurborði
http://www.expertreviews.co.uk/motherboards/1282765/msi-890gxm-g65/specifications. Ég veit að móðurborði stiður ekki am3+ en það á samt að virka, þá er það bara spurningin hversu vel þetta gengur saman....
Öll hjálp þeginn með opnum örmum.
Re: AMD X8 FX-8320
Sent: Fös 01. Nóv 2013 10:48
af upg8
Mér sýnist að þetta móðurborð styðji AM3+, í það minnsta að eitthverju leiti. Farðu samt varlega í að yfirklukka. Þessi örgjörvi sem þú ert að spá í er 125W, athugaðu hvað borðið er gert til að þola.
http://event.msi.com/mb/am3+/http://www.msi.com/product/mb/890GXM-G65.html#/?div=BIOS Hér getur þú fundið BIOS uppfærslur fyrir borðið.
Re: AMD X8 FX-8320
Sent: Fös 01. Nóv 2013 13:21
af Hnykill
stutta svarið er nei.. getur notað AM3 í AM3+ socket en ekki öfugt.
þú þarft lágmark 9xx móðurborð með AMD SB950 kubbasetti (AMD 950 South Bridge).. þú ert með 8xx móðurborð og AMD 850 South Bridge
svo nei :/
getur líka séð litinn á Socketinu á móðurborðinu.. AM3 og undir er hvítt, en AM3+ er svart.
Re: AMD X8 FX-8320
Sent: Lau 02. Nóv 2013 16:59
af upg8
Hnykill hví stendur þá á síðunni hjá MSI að þeir hafi bætt við stuðning fyrir AM3+ örgjörva 20. apríl 2011? Það sem var aðal vandamálið ef ég man rétt var að ekki öllu móðurborð réðu við þá auknu orkuþörf sem AM3+ örgjörvar höfðu almennt samanborið við AM3, þau sem gerðu það fengu flest firmware upgrade fyrir AM3+ stuðning.
Leitaði á netinu og get ekki betur séð en það sé slatti af móðurborðum með þessum kubbasettum sem eru auglýst með AM3+ stuðning, -hugsanlega eitthverjar takmarkanir þar á sem vonandi einhver hér getur svarað.
Re: AMD X8 FX-8320
Sent: Lau 02. Nóv 2013 17:11
af MrSparklez
Re: AMD X8 FX-8320
Sent: Lau 02. Nóv 2013 17:14
af Hnykill
Tjahh.. viti menn :Þ ..virðist geta keyrt þessa örgjörva . ég las bara þegar ég var að kaupa móðurborð að það þyrfti 9xx móðurborð til að keyra þessa "nýju" AMD örgjörva.. (voru að koma út þá) ..en þetta er í CPU Support listanum fyrir móðurborðið hans, svo ég biðst bara afsökunar
Re: AMD X8 FX-8320
Sent: Fös 08. Nóv 2013 00:21
af Zimbi
Takk fyrir þessa hjálp strákar/stelpur.
ætti maður að splæsa í þetta eða fá sér bara nýtt móðurborð og þennann örgjörva?
Re: AMD X8 FX-8320
Sent: Fös 08. Nóv 2013 00:58
af kizi86
bara skella sér á Asus ROG Crosshair V formula-Z 990FX móðurborðið