Síða 1 af 1

4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 03:42
af mjámjá

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 03:56
af darkppl
Og 120hz :)

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 04:07
af worghal
darkppl skrifaði:Og 120hz :)

bara 30hz í 4k í tölvum.

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 15:19
af mjámjá
darkppl skrifaði:Og 120hz :)

Miðað við vídeo sem ég er búinn að horfa á þá er ekki hægt að ná meira en 30 fp/s í leikjunum með þessu tæki.

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 15:22
af appel
39"?

WTF...

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 15:35
af krummo
Búinn að fylgjast með þessari græju lengi. Fyrst og fremst gagnlegt sem refrence mónitor fyrir þá sem eru að vinna með efni í 4K (langt frá því að vera color accurate sem slíkur) en þið getið gleymt því að nota hann í einhverja productivity vinnslu.

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 16:17
af mjámjá
appel skrifaði:39"?

WTF...



Líka til í 50"

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 16:45
af DaRKSTaR
ég keypti mér 55" sony um daginn var búinn að skoða 4k tækin hjá þeim og fannst þetta ekki þess virði í svona lítilli stærð.. skoða þetta eftir 3 ár í svona 70"+

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 16:57
af svanur08
Hvað er þetta, eitthvað no name china drasl?

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 17:59
af mjámjá
svanur08 skrifaði:Hvað er þetta, eitthvað no name china drasl?


QNIX var einusinni "no-name-drasl"

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 22:07
af hjalti8
panellinn höndlar 120hz@1080p og amk 60hz@4K en vandamálið er að hdmi hefur bara bandvídd fyrir 4k@30hz eða 1080p@120hz.
DisplayPort(það er ekki dp á þessum seiki skjá) hefur samt sem áður nægilega mikla bandvídd fyrir 4k@60hz en það eru ekki til neinir controllerar sem ná að lesa slíkt signal.
Svo að í 4K skjáum eins og ASUS PQ321Q eru tveir controllerar sem lesa báðir 1920x2160 @ 60hz og skipta skjánum þannig upp í tvennt sem virkar ágætlega, en það er ekki ákjósanleg lausn.

Asus ætla að fara að gefa út 39" 4K skjá með VA panel en hann verður væntanlega með almennilegum controller sem höndlar 4K@60Hz og mun sennilega ekki vera það dýr, amk ekki nærrum því jafn dýr og 4K skjáir með IGZO panel.
http://www.techpowerup.com/184910/asus-ultra-hd-monitor-lineup-led-by-a-39-incher.html


DaRKSTaR skrifaði:ég keypti mér 55" sony um daginn var búinn að skoða 4k tækin hjá þeim og fannst þetta ekki þess virði í svona lítilli stærð.. skoða þetta eftir 3 ár í svona 70"+


Fyrir sjónvarp í ~tveggja metra fjarlægð+ þarf maður já mjög stórt sjónvarp til að sjá mun á 4K og 1080p en fyrir monitor er 4K algjör snilld.
Sem dæmi er 4k 39" skjár með svipað ppi og 1440p 27" skjár svo að í sömu fjarlægð er auka plássið svakalegt og hvað þá ef maður er að fara úr 1080p skjá

Re: 4k TV/ Monitor á 699$

Sent: Fös 01. Nóv 2013 22:08
af appel
4k meikar bara sense í 70"+

Augun í 90% fólks eru bara of döpur til að sjá einhvern mun á 1080p og 4k í lægri upplausnum í 4-5 metra fjarlægð.