Síða 1 af 1
Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 19:55
af kazgalor
Komiði sælir,
Ég er með nýja vél,
Asus Z87-k
intel i5 4670k
16 GB 1600 mhz corsair (2x8)
Geforce 560 GTX
700w spennugjafi
SSD
1TB secondary HDD
Vandamálið er að vélin er að reboota randomly. Ég hef prufað að álagsprófa örgjörva og skjákort. Ég hef runnað memtest yfir nótt. Hún rebootar hvort sem er undir álagi eða idle. Ekkert bluescreen.
Ef að þið eruð með einhverjar hugmyndir um hvað þetta gæti verið, endilega kommentið.
Re: Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 19:58
af rickyhien
eðlilegur hiti?
Re: Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 19:59
af Hnykill
Búinn að skoða hitatölur á örgjörva undir álagi ?
Re: Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 20:00
af rickyhien
einhverjir vírar lausir kannski?
Re: Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 20:07
af kazgalor
rickyhien skrifaði:eðlilegur hiti?
Sko, í því samhengi er reyndar eithvað furðulegt í gangi. Ég var að nota speedfan og CPUID HWmonitor til að fylgjast með hita í álagsprófuninni.
Þegar ég set forritið í gang þá fer hitinn allt í einu upp í 85°c og svo um leið og ég slekk aftur á því sýnir HWmonitor að hitinn hafi droppað um 40°á 1 sek sem er ofc ómögulegt
Re: Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 20:09
af Selurinn
Er ekki málið bara að endurfesta heatsinkið og skella nýju kremi á örran.
Re: Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 20:14
af kazgalor
Selurinn skrifaði:Er ekki málið bara að endurfesta heatsinkið og skella nýju kremi á örran.
Mögulega. En það útskýrir samt ekki þessar tölur. Það er ómögulegt að hitinn á örgjörvanum fari upp eða niður um 30-40 gráður á einni sekúndu
Re: Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 20:20
af Selurinn
kazgalor skrifaði:Selurinn skrifaði:Er ekki málið bara að endurfesta heatsinkið og skella nýju kremi á örran.
Mögulega. En það útskýrir samt ekki þessar tölur. Það er ómögulegt að hitinn á örgjörvanum fari upp eða niður um 30-40 gráður á einni sekúndu
Hringja á Ghostbusters?
Re: Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 20:24
af Hnykill
Nei þetta eru ekkert óeðlilegar hitasveiflur ef kælinginn er ílla fest á.. örgjörvi í idle er bara örfá wött.. ískaldur bara.. en undir fullri notkun á hann ekkert að fara yfir 75 gráður í þínu tilviki.. þetta hljómar alveg nákvæmlega eins og ílla fest kæling á örgjörva.
Hvaða kælingu ertu með annars ?
Standard kælinginn sem fylgir með örgjörvanum er bara rugl.. og með einhverjum bull smellu skrúf hnöppum.. svoleiðis er bara ávísun á vesen .
Re: Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 20:27
af kazgalor
Hnykill skrifaði:Nei þetta eru ekkert óeðlilegar hitasveiflur ef kælinginn er ílla fest á.. örgjörvi í idle er bara örfá wött.. ískaldur bara.. en undir fullri notkun á hann ekkert að fara yfir 75 gráður í þínu tilviki.. þetta hljómar alveg nákvæmlega eins og ílla fest kæling á örgjörva.
Hvaða kælingu ertu með annars ?
Okei, ég tékka á því. Ég er bara með stock viftuna og heatsinkið sem fylgir Retail útgáfu örgjörvans.
Re: Random krass í nýrri vél, vantar hjálp
Sent: Mið 18. Sep 2013 20:30
af Hnykill
Stock vifta er bara neinei kallinn.. fjárfestu í góðri kælingu. margborgar sig.