Síða 1 af 1

Lyklaborðsvesen!

Sent: Þri 20. Ágú 2013 13:31
af Solstice
Sælir vaktarar!

Nú var ég rétt í þessu að kaupa mér coolermaster CM Storm QuickFire TK lyklaborð, og viti menn... Það virkar ekki.

Það virkar hins vegar á hinni tölvunni minni sem er með mun eldra móðurborð svo lyklaborðið ætti að vera í góðu lagi.

Vandamálið sem ég fæ er að það tengist og aftengist sí og æ, ég ryendi að ná í allskins drivera fyrir móðurborðið en hafði jú ekkert upp úr því svo nú stend ég alveg á gati.
Getur einhver sniðugur einstaklingur hjálpað mér hér?

Upplýsingar um vélbúnað.

Lyklaborð: http://www.cmstorm.com/en/products/keyboards/quickfiretk/&tab=support
Móðurborð: http://www.asus.com/Motherboards/M5A99X_EVO/#overview

Re: Lyklaborðsvesen!

Sent: Þri 20. Ágú 2013 13:35
af playman
búin að prófa öll USB port, aftan og sem að framan?

Re: Lyklaborðsvesen!

Sent: Þri 20. Ágú 2013 13:41
af Solstice
jebb alltaf sama vesenið: Durum... Dörum

Re: Lyklaborðsvesen!

Sent: Þri 20. Ágú 2013 13:43
af playman
Búin að uppfæra/enduruppsetja USB og chipset dræverin?

Re: Lyklaborðsvesen!

Sent: Þri 20. Ágú 2013 14:20
af Solstice
Já er að reyna að uppfæra allt hérna en það virðist ekki vera málið. Það virkar 100% í gamalli tölvu. Skil ekki af hverju það ætti ekki að virka í þessari.

Re: Lyklaborðsvesen!

Sent: Þri 20. Ágú 2013 14:56
af Solstice
Ókei, búinn að vera að troubleshoota hérna.

Svo virðist vera sem að kapallinn sem kemur með þessu borði virki ekki, en hann virkar samt með allt annað. Ég prófaði að setja aðra snúru í og þá hrökk það í gang.

Ætla ekki að lýsa því hvað ég er pirraður yfir þessu þar sem snúran sem kemur með þessu er miklu betri og alveg hrikalega flott líka.

Re: Lyklaborðsvesen!

Sent: Þri 20. Ágú 2013 15:36
af playman
Helvíti er það skrítið, prófaðu að heyra í þeim sem að seldu þér lyklaborðið og sjáðu hvað þeir seygja.