Síða 1 af 1
ATI Radeon X600 Pro eða XT??
Sent: Mán 20. Sep 2004 00:42
af jon_ice
Veit einhver hérna hver munurinn á þessum kortum er? Ég er að fara að kaupa mér tölvu með PCI Express og ég skil ekki alveg muninn á þessum kortum. Síðan er náttúrulega Geforce PCX 5750 líka með stuðning við PCI Express. Getur einhver sagt mér eitthvað um þetta því það er lítið búið að skrifa um þessi kort vegna ferskleika og er t.d. Tomshardware ekki komið með neitt um þessi kort.
P.S: Sumir kalla þetta örugglega PCI 16x, ég var ekki viss svo ég notaði bara PCI Express.
Sent: Mán 20. Sep 2004 00:44
af dabb
Nvidia Geforce 6600 GT pci-express
Sent: Mán 20. Sep 2004 00:45
af jon_ice
Hvar er það eiginlega selt??
Sent: Mán 20. Sep 2004 03:11
af BlitZ3r
ef þú ert með engin peninga takmörk þá er x600xt held ég besti kosturiinn. en þú þarft að fá þér móðurborð með pci-express og væntanlega örgjörva
Sent: Mán 20. Sep 2004 03:53
af jon_ice
Amm, ég er að fara að fá mér glænýja tölvu. Og ég held að PCI Express sé málið í dag. Annars er ég að spá í að bíða eftir GeForce 6600 GT
Það er ekkert smá gott og á að kosta í kringum 200$... það er ekki mikið
Takk Dabbtech
Sent: Mán 20. Sep 2004 04:25
af dabb
Getur líka notað 2 í einu með einhverju nifty stikki, sem þarf náttúrulega 2 pci-express móðurborða fjanda, alienware er farinn að nota þannig tækni á úber gaming tölvurnar þeirra.
Sent: Mán 20. Sep 2004 16:40
af jon_ice
Jamm, það er einhver sonna brú á milli kortana. Það er samt einum of... hehehe
Sent: Mán 20. Sep 2004 18:12
af BlitZ3r
hver þarf 2 skjákort bara til að sýna sig eða getað notað þessa brú
Sent: Mán 20. Sep 2004 18:26
af Daz
BlitZ3r skrifaði:hver þarf 2 skjákort bara til að sýna sig eða getað notað þessa brú
FPS is god.
Re: ATI Radeon X600 Pro eða XT??
Sent: Mán 20. Sep 2004 18:37
af sveik
http://www.hardocp.com/article.html?art=NjY0
Gott review um flest kortin... ég myndi sjálfur taka Radeon X600XT
Sent: Þri 21. Sep 2004 08:17
af Stebbi_Johannsson
Daz skrifaði:BlitZ3r skrifaði:hver þarf 2 skjákort bara til að sýna sig eða getað notað þessa brú
FPS is god.
Er FPS guð?
Sent: Þri 21. Sep 2004 21:42
af jon_ice
Síðan er líka ATI Radeon X700 að koma út bráðum. Ég ætla að bíða aðeins lengur og sjá hvað setur.
Sent: Mið 22. Sep 2004 00:00
af Hörde
Ég myndi ekki snerta við neinu með x600 nafninu. Bíddu frekar með að kaupa þar til 6600 eða x700 kortin koma til landsins. Þau eru amk tvöfalt hraðvirkari en x600 kortin, og ættu að kosta það sama.
Sent: Mið 22. Sep 2004 12:51
af jon_ice
Vitið þið hvað það tekur langan tíma fyrir svona ný kort að koma til landsins. ATI Radeon X700 kom sko út í gær (21. sept.) og ég er svona aðeins að spá í þessu.
Sent: Mið 22. Sep 2004 22:46
af wICE_man
Það er misjafnt, Prescott var kominn til landsins innan mánaðar frá útkomu, en það bólaði varla á Socket 939 móbóum fyrr en 3 mánuðum eftir útkomu þeirra. Venjulega tekur þetta 1-2 mánuði en þó sáum við undantekningu á því með 6800 og X800 kortin, þar voru tölvubúðirnar vel með á nótunum, vonum bara að þær séu það líka núna.
Sent: Mið 22. Sep 2004 22:48
af wICE_man
Stebbi_Johannsson:
Er FPS guð?
Ja.... fyrir sumum er það svo
Sent: Fös 24. Sep 2004 15:21
af jon_ice
Vona að það komi eins fljótt og auðið er