Síða 1 af 1

Er til Harður diskur sem er 1 TB eða meira?

Sent: Sun 19. Sep 2004 17:34
af sprayer
er til Harði diskur sem er 1 TB eða meira ?

Sent: Sun 19. Sep 2004 17:40
af axyne

Sent: Sun 19. Sep 2004 17:58
af gumol
Hafa titil sem gefur vísbendingu um innihaldið!

Titli breytt

Sent: Sun 19. Sep 2004 18:53
af nomaad
Þetta er ekki "alvöru" 1 TB diskur. Mig minnir að þetta séu fjórir 250GB diskar í RAID 0, þannig að það eru fjórfalt meiri líkur á að þetta klikki :/

Sent: Sun 19. Sep 2004 22:02
af gnarr
Max Sustained Transfer Rate :

FireWire 800: up to 55MB/s
FireWire 400: up to 35MB/s
USB 2.0: up to 34MB/s**



þetta er nokkuð pottþétt ekki 4 diskar á raid 0. þetta er líklegast bara Span yfir 4 diska. þannig að það er fjórumsinnum meiri líkur að maður tapi 1/4 af gögnunum sínum.
ef þetta væru 4x 333GB á RAID5, þá væri það pottþét tekið fram, og það væri mun hærra transfer rate.

Sent: Þri 21. Sep 2004 14:07
af arnarj
Rétt!

The case holds four 250GB ATA/133 drives, but LaCie's custom firmware spans the four drives, so your Mac sees them as one volume. You can't see or format the individual drives, but you can partition the large volume.


http://www.macworld.com/2004/05/reviews ... iggerdisk/

Sent: Mið 29. Sep 2004 17:46
af sho
gnarr skrifaði:þetta er nokkuð pottþétt ekki 4 diskar á raid 0. þetta er líklegast bara Span yfir 4 diska.
Og hver er munurinn ef ég má spyrja?

Sent: Mið 29. Sep 2004 19:21
af MezzUp
sho skrifaði:
gnarr skrifaði:þetta er nokkuð pottþétt ekki 4 diskar á raid 0. þetta er líklegast bara Span yfir 4 diska.
Og hver er munurinn ef ég má spyrja?

Stripe - RAID-0: dreifir gögnunum á diskana, bit fyrir bit á hvern disk, þannig að þegar skráin er lesin eru 4 diskar að lesa. Þessi aðferð er hraðvirkari en bara einn diskur.

Span - JBOD(just a buch of drives): Gögin eru skrifuð venjulega á fyrsta diskinn, en þegar hann fyllist heldur skráin og næstu skrár áfram á næsta disk. Þessi aðferð er jafnhröð því og að vera með einn disk.

Sent: Mið 29. Sep 2004 19:25
af sho
Mirror = RAID1
Striping = RAID0

Er þetta Spanning notað einhverstaðar?

Sent: Mið 29. Sep 2004 19:40
af MezzUp
sho skrifaði:Mirror = RAID1
Striping = RAID0

Er þetta Spanning notað einhverstaðar?

ahh, ruglaðist, my bad :)

Veit ekki hvort að þetta er notað mikið. En þetta er góð hugmynd hjá t.d. minna tölvuvænum notendum, þegar harðidiskurinn þeirra fyllist skellirðu öðrum í, og spannar gamla diskinn bara á hann. Geymsluplássið stækkar og notandinn þarf ekkert að hugsa um að vista eða færa gögin á annan disk, heldur bara áfram þar sem frá var horfið

Sent: Þri 05. Okt 2004 22:59
af Birkir
en hvernig er þetta með RAID-0 þegar maður setur t.d. einn 120 GB 7200RPM disk og einn 20 GB 5400RPM disk.. vinna þeir þá samt hraðar?

Sent: Þri 05. Okt 2004 23:08
af axyne
Birkir skrifaði:en hvernig er þetta með RAID-0 þegar maður setur t.d. einn 120 GB 7200RPM disk og einn 20 GB 5400RPM disk.. vinna þeir þá samt hraðar?


ef þú myndir Raid0 20 gb disk og 120 gb disk. þá myndi raid'diskurinn koma út sem einn 40 gb diskur og 100 gb af 120 gb disknum gætirðu ekki nýtt.

raid'ið myndi aldrei vinna hraðar en 2x hraði gamla 20 gb disksins.

værir ekki að græða neitt.

Sent: Mið 06. Okt 2004 08:20
af gnarr
það myndi vinna vel tæplega tvöföldum hraða gamladisksins. nýji diskurinn væri líklega hraðari ef hann fengi að vinna bara einn.

Sent: Mið 06. Okt 2004 15:38
af Birkir
Þannig að það er best að hafa tvo eins diska saman á raid?

Sent: Mið 06. Okt 2004 16:36
af gnarr
já. eða 2 diska sem að performa nákvæmelga eins.

Sent: Mið 13. Okt 2004 01:20
af llMasterlBll
Vissi ekki að það væri hægt að mirrora mismunandi diska... ja eða semsagt... svona mismunandi
og þar sem þessi TB diskur er USB/IEEE þá efast ég um að raid mindi bæta transfer raitið!

Sent: Mið 13. Okt 2004 22:28
af MezzUp
llMasterlBll skrifaði:Vissi ekki að það væri hægt að mirrora mismunandi diska... ja eða semsagt... svona mismunandi
og þar sem þessi TB diskur er USB/IEEE þá efast ég um að raid mindi bæta transfer raitið!

IEEE = nefnd sem setur staðla (right?)
IEEE-1394 = FireWire :)